Fréttablaðið - 11.08.2014, Síða 13

Fréttablaðið - 11.08.2014, Síða 13
MÁNUDAGUR 11. ágúst 2014 | SKOÐUN | 13 Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Lekamálið snýst ekki um að undarlegt sé að sumir hælis- leitendur séu með fölsuð skil- ríki eins og skilja má á Brynjari Níelssyni. Það snýst hugsanlega um samsæri embættismanna og fjölmiðla eins og bæjarstjór- inn í Vestmannaeyjum lætur að liggja – nema samsærið beinist ekki gegn Hönnu Birnu heldur gegn Tony Omos. Málið snýst ekki um hótanir í garð Hönnu Birnu, jafn hörmulegar og þær hljóta að vera fyrir hana og hennar nánustu. Það snýst varla um Tony Omos. Það snýst um stjórnsýslu, meðferð trúnaðar- upplýsinga, sannsögli gagnvart þingi og þjóð, trúverðugleika stjórnmálamanna. Það snýst um Hönnu Birnu og hennar fólk. Það snýst um okkur: til hvers við ætlumst af stjórnmálamönn- um okkar og hvað við umberum þeim. Lekandinn Tony Omos leitaði hér hælis. Hann átti von á barni með konu sem einnig beið úrskurðar um landvistarleyfi. Umsókn hans var hafnað og eftir að hafa verið í felum um hríð gaf hann sig fram og stóð til að vísa honum úr landi. Boðað var til mót- mæla við innanríkisráðuneytið vegna málsins. Brugðist var við því með því að reyna að sýna almenningi fram á að Tony þessi ætti ekki skilið landvist, hann væri grunaður um glæpsam- legt athæfi og hefði sýnt fjöl- lyndi í ástum. Tekið var saman af embættismönnum „óform- legt minnisblað“ í ráðuneytinu um mál Tonys sem ráðuneytis- stjóri, ráðherra og aðstoðar- menn ráðherra fengu að sjá, en slík plögg eru trúnaðargögn. Annar aðstoðarmaðurinn, Gísli Freyr Valdórsson, var í sam- skiptum við blaðamenn daginn áður en efni þessa minnisblaðs birtist – með viðbættum vanga- veltum um að Tony væri hugs- anlega ekki faðir þess barns sem fyrrgreind kona gekk með, og hefði beitt hana þrýstingi til að segja svo vera. Seinna kom á daginn að þetta átti ekki við rök að styðjast. Gísli hafði sama dag og hann talaði við blaða- menn vistað minnisblaðið í tölvu sinni, eins og maður gerir þegar maður opnar skjal og breytir því. Hann neitar því að hafa átt við skjalið. En er þetta ekki harður heim- ur? Og er landið ekki í umsátri glæpamanna sem hér vilja setj- ast að og stunda sína iðju? Og þarf ekki að verjast þeim með öllum meðulum, jafnvel þó að stundum séu á gráu svæði? Á ekki almenningur heimtingu á að vita hvers konar fólk það er sem hér leitar hælis? Svona kunna sumir að hugsa. Sjálfur veit ég ekkert um Tony Omos en við höfum ekkert leyfi til þess að ganga út frá því sem vísu að hann sé illmenni og glæpamað- ur. Þvert á móti: sérhver mann- eskja sem á vegi okkar verður á heimtingu á því að vera talin húsum hæf þar til annað kemur í ljós. Og raunar hefur ekk- ert komið fram um Tony Omos annað en að hann virðist hafa verið nokkuð kvensamur. En við vitum líka hitt: Fyrir tilverknað lekandans var birt í fjölmiðlum nafn íslenskr- ar konu sem átt hafði í sam- bandi við Tony, og nafn barns- móður Tonys er svert í leiðinni í þessari viðleitni við að snúa almenningsálitinu gegn Tony Omos. Farið er inn á svæði í lífi fólks sem við teljum til einka- lífs. Sú iðja ein sýnir okkur við- horf til upplýsinga og til fólks sem eiga ekki heima í opinberri þjónustu. Meðal þess sem við ímyndum okkur að sé gott við að búa hér á landi er að geta treyst því að stjórnsýsla lúti almenn- um reglum og fari fram með ákveðinni festu. Við eigum öll mikið undir því að svo sé. Með því að senda viðkvæmar trún- aðarupplýsingar til blaða – og bæta slaðri við þær án þess að aðgreina það frá skrifi sóma- kærra embættismanna í ráðu- neytinu – brýtur lekandinn gegn réttum stjórnsýsluháttum. Þetta sýnir skeytingarleysi gagnvart einkalífi annarra, virðingarleysi fyrir lögum og reglum, sem fremur má vænta í alræðisríkj- um en réttarríki, dómgreind- arleysi, reynsluleysi, skort á mannúð og skort á pólitískum klókindum. Fer þetta ekki að koma? Hanna Birna leyfði málinu að vaxa og vaxa án þess að bregð- ast við – og enn þráast hún við að grípa til aðgerða, sem sýnir að hún virðist enn ekki átta sig á alvöru málsins þó að afleiðing- ar þess fyrir hana séu hægt og rólega að renna upp fyrir henni. Hún hlýtur að hafa hlustað á vonda ráðgjafa. Hún gerði illt verra þegar hún staðhæfði á alþingi að ekkert sambærilegt plagg við það sem birtist í fjöl- miðlum hefði verið til í ráðu- neytinu á þeim tíma: það var beinlínis ósatt. Og versnaði enn í því þegar hún reyndi að láta liggja að því, gegn betri vitund, að plaggið gæti hafa ratað í fjöl- miðla frá Rauða krossinum. Þegar ráðherra er staðinn að því hafa sagt þinginu ósatt – og reyna að koma sök yfir á mann- úðarsamtök – þá hljótum við að spyrja í hvert sinn sem við- komandi tekur til máls: Er hún að skrökva að okkur aftur? Við getum ekki búið við slíkt í lýð- ræðisríki. Við verðum að ætlast til þess að stjórnmálamenn segi satt. Og við getum heldur ekki búið við það í réttarríki að ráðherra ræði ítrekað við undirmann sinn, lögreglustjórann í Reykja- vík um rannsókn sem beinist að ráðherranum og hennar fólki. Sá lögreglustjóri sagði af sér – og er eini maðurinn sem enn hefur sagt af sér eftir að lekamálið kom upp. Hanna Birna skipaði nýjan lögreglustjóra sem stýrir þá rannsókn á þeim ráðherra sem viðkomandi á starf sitt að þakka, og hringir væntanlega af og til, svona bara rétt að spjalla – óformlega. Davíð og hans menn hafa slegið skjaldborg um Hönnu Birnu, sem kann að skýra þá hörmulegu ráðgjöf sem hún virðist hafa fengið í öllu málinu en formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, kom fram með óvenju hulduhrútslega yfir- lýsingu um að ráðherrar nytu trausts á meðan þeir nytu trausts og væru ráðherrar meðan þeir væru ráðherrar – hafi ég skilið hann rétt, sem ég gerði sennilega ekki. Ráð- leysi virðist ríkja en við bíðum þess að vita hvað umboðsmað- ur alþingis og ríkissaksóknari gera. Allt verður þetta mál von- andi til þess að reglur um hæfi ráðherra til setu og afskipta verði gerðar skýrari. Lekamálið snýst um okkur: að kerfið virki. Lekamálið snýst um okkur Hanna Birna leyfði málinu að vaxa og vaxa án þess að bregðast við– og enn þráast hún við að grípa til aðgerða, sem sýnir að hún virðist enn ekki átta sig á alvöru málsins þó að afleiðingar þess fyrir hana séu hægt og rólega að renna upp fyrir henni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.