Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.08.2014, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 11.08.2014, Qupperneq 18
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir MATARBLOGG- ARINN Helena Gunnarsdóttir heldur úti matar- blogginu Eldhúsperl- ur þar sem má finna allar hennar uppá- halds uppskriftir. MYNDIR/DANÍEL Helena Gunnarsdóttir hefur haft áhuga á matargerð síðan hún man eftir sér. „Þegar ég var smástelpa stóð ég uppi á stól í eldhúsinu hjá mömmu og fylgdist með því sem var verið að gera og fékk oft að vera með puttana í matargerð- inni og prófa. Í dag finnst mér flestallt í eldhúsinu skemmtilegt. Svona annað en uppvaskið,“ segir hún brosandi. Helenu finnst eiginlega ómögulegt að svara því hver uppáhaldsmaturinn hennar er þar sem hún er alltaf að prófa eitthvað nýtt í eldhúsinu. „Það sem verður oftast fyrir valinu þegar mig langar í eitt- hvað sparilegt og gott er grillaður lambahryggur hjá mömmu og pabba. Það er eitthvað ólýsanlega gott við hann sem ég næ aldrei að gera jafn vel og þau.“ Henni finnst gaman að búa til góðan morgun- mat eða brunch og býður fólki gjarnan í svoleiðis matarboð. „Núna finnst mér langskemmtilegast að búa til súpur, ofnrétti og annan rólegan mat sem þarfnast ekki mikillar nákvæmni. Matur sem nánast eldar sig sjálfur er alveg málið þessa dagana.“ Hægt er að fylgjast með Helenu á blogginu henn- ar, eldhusperlur.com. Nutella-brúnka 125 g smjör, brætt og aðeins kælt 1 ½ dl púðursykur 1 krukka Nutella (400 g) 1 msk. hreint kakó 2 tsk. vanilluextrakt 2 egg 1 ½ dl hveiti ½ tsk. sjávarsalt 3 msk. hakkaðar heslihnetur Aðferð: Hrærið saman bræddu smjöri, púðursykri, nutella, kakó, vanillu og eggjum þar til alveg slétt. Hrærið hveitinu og saltinu lauslega saman við þannig að það rétt kemur saman við deigið. Hellið í form og stráið hökkuðum heslihnetum yfir. Bakið við 170°C með blæstri í 17-20 mínútur. Látið kólna í að minnsta kosti klukkustund og skerið þá í bita. Gaman er að bera kökurnar fram á spjóti með jarðarberjum í lautarferðinni. Vefjur með kjúklinga- og piparostasalati 4 heilhveitivefjur Lambhagasalat 2 eldaðar kjúklingabringur ½ rauð paprika ½ græn paprika 20 vínber um það bil ½ piparostur 1 ½ dl grísk jógúrt 3 msk. majónes 1 tsk. karrý 1 msk. sætt mangó-chutney Aðferð: Skerið kjúklinginn, paprikurnar, vínberin og piparostinn í litla bita. Hrærið jógúrt, majónesi, karrý og mangó-chutney saman og blandið saman við allt saman. Leggið salat á hverja vefju og svo um fjórar vænar matskeiðar af kjúklingasalatinu ofan á og vefjið upp. Eggja- og beikonbollar 6 egg 12 sneiðar beikon 6 tsk. sýrður rjómi Svartur pipar Góð handfylli rifinn ostur Saxaður graslaukur Aðferð: Hitið ofninn í 200 gráður. Þekið sex möff- insform með beikonsneiðunum, ein fer hringinn og önnur í botninn. Brjótið egg í formin og setjið eina teskeið af sýrðum rjóma þar ofan á. Kryddið með svörtum pipar og stráið smá rifnum osti yfir. Bakið í 10-12 mínútur og stráið söxuðum graslauk yfir áður en þið berið fram. ■ liljabjork@365.is VEFJUR OG BRÚNKUR Í NESTISKÖRFUNA LAUTARFERÐ Matarbloggarinn Helena Gunnarsdóttir segir ótrúlegt hvað hægt sé að búa til á stuttum tíma ef réttu hráefnin eru til staðar. Hún gefur hér uppskrift að þremur dásamlegum réttum sem eru tilvaldir í nestiskörfuna. Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Verið velkomin í heimsókn! Opið virka daga kl.10-18 30% Í ÖLLUM STÆRÐUM SÓFAR Dallas AFSLÁTTUR af öllum sófum / sófasettum *Í VÖLDUM ÁKLÆÐUM Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Basel Verð áður 284.900 kr. frá 199.430 kr.Verð áður 181.00 kr. frá 127.330 kr. Tungusófar 2+tunga Hornsófar 2H2 Sófasett 3+1+1 frá 180.530kr. verð áður 257.900 frá 233.730kr. verð áður 333.900 frá 260.330kr. verð áður 371.900 Verðdæmi: Torino Hornsófar 2H2 Sófasett 3+1+1 frá 240.730kr. verð áður 343.900 frá 265.230kr. verð áður 378.900 Lyon Verð áður 373.900 kr. frá 261.730 kr. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Save the Children á Íslandi GIRNILEGT NESTI Helena gefur uppskriftir að Nutella-brownie, kjúklingavefjum og eggja- og beikonbollum. EGGJA- OG BEIKONBOLLAR Þessa gómsætu bolla má snæða úti í guðsgrænni náttúrunni sem og inni við á rigningardögum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.