Fréttablaðið - 11.08.2014, Page 50

Fréttablaðið - 11.08.2014, Page 50
11. ágúst 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 26 ÚTSALA 25-60% afsláttur Mörkin: 0-1 Steven Lennon (33.), 1-1 Jonathan Glenn (44.). ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 6 - Jökull I. Elísabetarson 6, *Brynjar Gauti Guðjónsson 7, Matt Garner 6, Jón Ingason 6 - Andri Ólafsson 6, Gunnar Þor- steinsson 7, Ian David Jeffs 7 - Víðir Þorvarðarson 5, Jonathan Glenn 6, Þórarinn Ingi Valdimarsson 6 (85., Bjarni Gunnarsson -). FH (4-3-3): Róbert Örn Óskarsson 6 - Jón Ragnar Jónsson 5 (74., Ingimundur Níels Óskarsson -), Pétur Viðarsson 5, Sean Michael Reynolds 6, Jonathan Hendrickx 6 - Hólmar Örn Rúnarsson 6, Emil Pálsson 5 (63., Sam Hewson 6), Steven Lennon 7 - Ólafur Páll Snorrason 7, Atli Viðar Björnsson 5, Atli Guðnason 6. Skot (á mark): 10-13 (3-6) Horn: 2-5 Varin skot: Abel 3 - Róbert Örn 2 1-1 Hásteinsvöllur Áhorf: 403 Garðar Ö. Hinriksson(7) Mörkin: 1-0 Albert Brynjar Ingason (27.), 1-1 Pape Mamadou Faye (60.). FYLKIR (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 6 - Stefán Ragnar Guðlaugsson 5, Agnar Bragi Magnússon 7, Ásgeir Eyþórsson 6, Tómas Þor- steinsson 6 - Oddur Ingi Guðmunsson 7, Finnur Ólafsson 6 (57. Ragnar Bragi Sveinsson 6), Andrés Már Jóhannsson 5 (31. Daði Ólafsson 6) - Ásgeir Örn Arnþórsson 6, Kjartan Ágúst Breiðdal 5 (81. Gunnar Örn Jónsson -), Albert Brynjar Ingason 7. VÍKINGUR (4-3-3): *Ingvar Þór Kale 7 - Kjartan Dige Baldursson 5, Igor Taskovic 6, Alan Lowing 6, Ívar Örn Jónsson 6 - Kristinn Jóhannes Magnússon 6, Arnþór Ingi Kristinsson 5 (73. Henry Monaghan -), Aron Elís Þrándarson 5 - Dofri Snorrason 3 (53. Michael Maynard Abnett 6), Pape Mamadou Faye 6, Ventseslav Ivanov 3 (79. Viktor Jónsson -). Skot (á mark): 10-11 (5-5) Horn: 4-3 Varin skot: Bjarni Þórður 4 - Ingvar 3 1-1 Fylkisvöllur Áhorf: 1.197 Dagfinn Forná (7) SPORT BOJAN KRKIĆ Fór frá Barcelona ➜ Gekk til liðs við Stoke JEFFERSON MONTERO Fór frá Morelia ➜ Gekk til liðs við Swansea SIEM DE JONG Fór frá Ajax ➜ Gekk til liðs við Newcastle GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON gekk fyrr í sumar til liðs við Swansea City á ný eftir tveggja ára dvöl hjá Tottenham. Gylfi lék sem láns- maður með Swansea seinni hluta tímabilsins 2011-12 og skoraði þá sjö mörk í átján deildarleikjum. Stuðningsmenn Swansea binda miklar vonir við Gylfa sem ætti að fá fleiri tækifæri inni á miðjunni hjá velska liðinu, en hjá Tottenham þar sem hann var oft notaður á vinstri kantinum. Gylfi er útsjónarsamur, með frábærar spyrnur og getur bæði skorað og skapað mörk. Fréttablaðið mun á næstu dögum birta spá sína fyrir ensku úrvalsdeildina í fótbolta og nú er komið að liðum sem láta sig dreyma um Evrópusæti. Það var allt í kaldakoli hjá Newcastle eftir áramót á síðasta tímabili, en liðið tapaði sjö af síðustu átta deildarleikjum sínum. Alan Pardew situr í heitu sæti og hann gæti fengið sparkið byrji Newcastle illa. Swansea endaði í 12. sæti í fyrra eftir erfiða leiktíð. Garry Monk er tekinn við Swansea til frambúðar og hann hefur styrkt sóknarleikinn með því að fá Gylfa Þór Sigurðs- son, Jefferson Montero og Bafétimbi Gomis til velska liðsins. Mark Hughes gerði góða hluti með Stoke í fyrra og hann mun halda áfram að þróa leik liðsins. Stoke gæti gert atlögu að Evrópusæti, en til þess þarf liðið að ná í fleiri stig á útivelli en á síðustu leiktíð. Þrjú lið sem láta sig dreyma um Evrópusæti ENSKA ÚRVALS- DEILDIN HEFST EFTIR 5 DAGA SPÁ FRÉTTABLAÐSINS Englandsmeistari ??? 2. ??? 3. ??? 4. ??? 5. ??? 6. Á morgun 7. Á morgun 8. Stoke 9. Swansea 10. Newcastle 11.Southampton 12. Aston Villa 13. C. Palace 14. Sunderland 15. West Ham 16. Hull 17. QPR Þessi lið falla 18. WBA 19. Leicester 20. Burnley Stjörnuleikmaðurinn Finna má meira um ensku úrvals- deildina á Vísi visir.is NÝJU ANDLITIN GOLF „Það er bara alveg geggjuð stemning í hópnum núna,“ sagði sigurrreif Guðrún Brá Björgvins- dóttir, kylfingur úr GK, við Frétta- blaðið eftir sigur Keiliskvenna í 1. deild sveitakeppninnar í golfi á Hlíðavelli í gær. GK vann GR í úrslitum með 3.5 vinningum gegn 1.5. „Við vissum að úrslitaleikurinn yrði erfiður. Þetta var jafnt, en við vorum yfir í byrjun og náðum að halda út,“ sagði Guðrún Brá sem spilaði síðasta leikinn í tvímenn- ingi á móti hinni þrautreyndu Ragnhildi Sigurðardóttur. „Við vorum síðastar og stað- an okkur í hag, en ég vildi vera örugg með sigur ef eitthvað skyldi klikka. Maður reyndi að fylgjast með hvað var að gerast í honum leikjunum. Við skildum jafnar, en sigurinn var okkar sem skiptir mestu máli. Sigur er það eina sem skiptir máli,“ sagði Guðrún Brá. Gott að hefna ófaranna GK lék til úrslita gegn GKG í sveitakeppninni í fyrra og héldu Keiliskonur sig hafa unnið þegar Þórdís Geirsdóttir vann Særósu Óskarsdóttur í bráðabana. Þórdís gerðist aftur á móti sek um að spyrja samherja sinn ráða sem er bannað og því tapaði GK holunni og einvíginu. „Já, algjörlega. Það var gott að vinna eftir að tapa þessu í fyrra. Við mættum í þetta mót til að vinna það,“ sagði Guðrún Brá, en Keiliskonur voru áminntar af GSÍ fyrir íþróttamannslega framkomu. Það er nú að baki og titilinn kom- inn til GK. Til að fullkomna hefnd- ina vann GK 5-0 sigur á GKG í undanúrslitum í ár. „Keilir er bara besti klúbbur- inn,“ sagði Guðrún Brá þegar hún var spurð út í sigur karlasveitar- innar. „Við vorum með virkilega sterk lið bæði í karla- og kvenna- flokki þannig við áttum góðan séns á að vinna.“ Axel og Gísli ósigrandi Strákarnir í GK unnu GKG, 3-2, í spennandi úrslitaviðureign. GKG- menn unnu fjórmenninginn en GK vann svo þrjár af fjórum við- ureignum í tvímenningi. Birgir Leifur Hafþórsson var sá eini hjá GKG sem vann leik í tvímenningi. „Þetta var alveg ótrúlega gaman frá degi eitt. Við vorum með ungan og skemmtilegan hóp og það gekk vel hjá öllum,“ sagði Axel Bóasson úr GK við Fréttablaðið eftir sig- urinn í gær, en 1. deild karla var spiluð á Hólmsvelli í Leiru þar sem aðstæðru voru nokkuð erfiðar. „Það var mikill vindur, sér- staklega á þriðja hring sem gerði mönnum erfitt fyrir en völlurinn var fullkominn. „Röffið“ var flott og flatirnar frábærar.“ Axel og ungstirnið Gísli Svein- bergsson gerðu sér lítið fyrir og unnu alla fimm leiki sína á Leir- unni. „Það er mjög sterkt að vera ósigraður í sveitakeppninni,“ sagði Axel glaður í bragði, en hann hefur mjög gaman að sveitakeppninni. „Það er mikil alvara í þessu, en samt svo ógeðslega gaman. Þarna ertu að spila allt öðruvísi golf og það með klúbbfélögum þínum. Þetta er ekki algengnt held ég og ég er ánægður að þetta er á Íslandi,“ sagði Axel Bóasson. tomas@365.is „Keilir er bara langbestur“ Karla- og kvennasveitir Golfk lúbbsins Keilis unnu 1. deild í sveitakeppninni. Annað árið í röð hjá körlunum en uppreisn æru hjá konunum eft ir ófarir í fyrra. Axel Bóasson og Gísli Sveinbergsson unnu alla leiki sína. 5-0 Axel Bóasson og Gísli Sveinbergsson unnu alla sína leiki. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SÆTT Guðrún Brá og GK-konur hefndu ófaranna í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KÖRFUBOLTI Íslenska karlalands- liðið í körfubolta vann frábæran þrettán stiga sigur á Bretlandi, 83-70, í fyrsta leik liðsins í undan- keppni EM 2015 í Laugardalshöll- inni í gærkvöldi. Íslenska liðið byrjaði frábærlega og komst í 20-4, en Bretarnir söx- uðu jafnt og þétt á forskotið og var staðan jöfn í hálfleik, 44-44. Þegar Bretarnir komust svo sjö stigum yfir í byrjun fjórða leik- hluta skiptu íslensku strákarnir um gír og voru nokkrum mínútum síðar komnir með sjö stiga forystu sjálfir. Hún varð mest 19 stig. Það voru margir búnir að afskrifa íslenska liðið eftir að ljóst var að Jón Arnór Stefánsson yrði ekki með, en íslenska liðið fékk framlag úr öllum áttum og barátt- an var til fyrirmyndar í leiknum. Haukur Helgi Pálsson var gjör- samlega magnaður í vörn og sókn; skoraði 24 stig, tók níu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Þá var KR-ingurinn Martin Her- mannsson óstöðvandi í seinni hálf- leik en þessi 19 ára piltur skoraði 22 stig. Fyrirliðinn Hlynur Bær- ingsson var svo eins og stríðsmað- ur, en hann skilaði tröllatvennu með 14 stigum og 15 fráköstum. Ísland er nú í dauðafæri að komast á EM 2015, en annar sigur á Bretum ytra fer langt með að tryggja farseðilinn í lokakeppni í fyrsta sinn. Bosnía er þó næsti mótherji en þar verður við ramm- an reip að draga. Ítarlega umfjöllun um leikinn og viðtöl má lesa á Vísi. - tom Frábær sigur á Bretum Íslenska karlalandsliðið í körfubolta í góðri stöðu. FYRIRLIÐINN Hlynur Bæringsson skilaði tröllatvennu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.