Fréttablaðið - 22.09.2014, Síða 1
FRÉTTIR
FASTEIGNIR.IS22. SEPTEMBER 201438. TBL.
Fasteignasalan Höfuðborg hefur til sölu fallegt tvílyft 307,9 fm einbýli með aukaíbúð við Hlíðarveg 2 í Kópavogi. Opið hús verður í dag klukkan 19.
Komið er inn á efri hæð í forstofu með náttúrusteini á gólfi og fata-skáp. Þar er gestasalerni. Stofan er L-laga stofa og borð-stofa með útgangi út á svalir í vest-ur. Úr stofu er stigi niður á neðri hæð. Eldhús er með ljósri innrétt-ingu með góðri vinnuaðstöðu.Þrjú svefnherbergi eru á hæð-inni. Hægt að gera fimm svefn-herbergi en eitt herbergið er nýtt sem fataherbergi með góðum fata-skápum.
Baðherbergi er með nuddbað-kari, sturtuklefa, innréttingu, handklæðaofni og glugga. Flísar á gólfi og á veggjum. Þvottahús er inn af eldhúsi með gluggÁ
Íbúðin á neðri hæð er um 85 fm og 3ja herbergja með stofu, tveimur svefnherbergjum og fata-skáp í öðru. Eldhús er með fal-legri hvítri innréttingu og borð-krók. Inn af eldhúsi er þvottaher-bergi og geymsla. Baðherbergi er með sturtu. Gólfefni eru að mestuparket og flí
Á neðri hæð er líka kyndiklefi sem nýtist sem ágætis geymslu-rými. Lóðin er stór, frágengin með mörgum bílastæðum. Þar eru góðar verandir með skjólveggjum og heitum potti. Húsið hefur verið klætt að hluta, nýtt gler aðog f
Opið hús að Hlíðarvegi 2
Garðurinn er fallega frágenginn með veröndum og heitum potti.
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum!
100% þjónusta = árangur*
Landmark leiðir þig heim!
Sími 512 4900 landmark.is
Benedikt
Ólafsson
sölufulltrúi
Sími 661 7788
Magnús
Einarsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 897 8266
Sigurður
Samúelsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 896 2312
Sveinn
Eyland
Löggiltur
fasteignasali
Sími 690 0820
Íris Hall
Löggiltur
fasteignasali
Þórarinn
Thorarensen
Sölustjóri
Sími 770 0309
Kristberg
Snjólfsson
Sölufulltrúi
Sími 892 1931
Eggert
Maríuson
Sölufulltrúi
Sími 690 1472
Guðrún Diljá
Lúðvíksdóttir
skjalagerð
Opið hús í dag frá kl 17:30 til 18:00
Opið hús í dag frá kl 18:30 til 19:00
Þórsgata 22A
Efstasund 93
79,3 fm 3ja herb. einbýlishús á þremur hæðum.Miklir möguleikar, hús með
sérgarði á frábærum stað. Verð: 39.8 milj. Uppl. veitir Heiðar s: 693 3356
145,3 fm 5-herb. hæð með þremur svefnherb. Rúmgóður bílskúr, hæð mikið
endurnýjuð. Verð: 39 milj. Uppl. veitir Heiðar s: 693 3356
OPIÐ
HÚS
OPIÐ
HÚS
GLERBÍLL
Breski hönnuðurinn Dominic Wilcox sýndi sérstæð-an hugmyndabíl á hönnunarhátíðinni í London á dögunum. Bíllinn er úr steindu gleri og sjálf-stýrður. Inni í bílnum er rúm þar sem farþegi getur sofið.
Iro a-maskarnir hafa sannað sig sem gæðamaskar án parabena. Þeir eru hannaðir fyrir nútímakonur og -k rla sem oft eru önnum kafin en er umhugað um heilsu sína og vellíðan og vilja dekra við sig heima fyrir. „Mér finnst mask-
arnir frá IROHA vera æðislegir og á ég yfirleitt alltaf til eintök heima til að nota eftir til dæmis langa vinnuviku,“ segir Ingibjörg Sveinbjör sdóttir. „Það besta við maskana er hvað þeir eru auð-
veldir og þægilegir í notkun. Ég fagna fjölbreytileikanum sem fylgir þessum vörum, þar sem úrvalið er mjög gott. Með möskunum er auðveldlega hægt að breyta hversdagslegu kvöldi í algjört lúxusheimadekur, allt frá því að setja maska á andlitið yfir í að nota handa- og fótamaska. Þetta er bæði þægilegt og fljótlegt heimad k “
GEISLANDI
Á FIMMTÁN MÍNÚTUMHALLDÓR JÓNSSON EHF. KYNNIR IROHA-maskarnir eru tilvaldir í þægilegt heimadekur sem nærir húðina og gerir hana ferska. Þeir eru án parabena. BÍLSKÚRAR
&GEYMSLUR
MÁNUDAGUR 22. S
EPTEMBER 2014
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Mánudagur
14
3 SÉRBLÖÐ
Fasteignir | Bílskúrar & geymslur |
Fólk
Sími: 512 5000
22. SEPTEMBER 2014
222. tölublað 14. árgangur
Atriði á nýju safni
Fyrsta safnið í heiminum sem er
helgað mannréttindum valdi íslenska
fyrirtækið Gagarín til að setja upp
gagnvirk sýningaratriði. 2
Fáar tilkynningar Tilkynningar um
atvinnusjúkdóma eru mun færri en
búast mætti við. 6
Brenglað sykurþol Ný rannsókn
bendir til þess að neysla gervisykurs
hafi áhrif á sykuróþol. 8
Valdi dreift í Afganistan Sigurveg-
ari forsetakosninganna í Afganistan
hefur undirritað samkomulag um
þjóðstjórn. 10
SKOÐUN Guðmundur Andri
skrifar um „vælubílinn“ og þrjá
menn sem harma hlut sinn. 15
MENNING Fjórföld sviðs-
höfundasmiðja í kvik-
myndabænum Flateyri. 20
LÍFIÐ Gulli úr Mezzoforte
gefur út afar persónulega
plötu. 23
SPORT Manchester United
mátti þola sögulegt tap
fyrir nýliðum Leicester. 24
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
Flux
flúormunnskol
Heilbrigðar tennur
VILJA HREINNA LOFT Þrátt fyrir heldur leiðinlegt veður fylktu um þrjú hundruð umhverfisverndarsinnar liði í miðborg
Reykjavíkur og kröfðust þess að gripið yrði til aðgerða til að hefta útblástur gróðurhúsalofttegunda. Sjá síðu 10. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BARNAVERNDARMÁL Foreldrar leik-
skólabarns á Kirkjubæjarklaustri
hafa leitað til yfirvalda eftir að
leikskólastjóri var sakaður um að
hafa bundið barnið niður við stól
með trefli þegar það átti bágt með
að sitja kyrrt og vildi ekki borða
mat. Um er að ræða Heilsuleik-
skólann Kærabæ á Kirkjubæjar-
klaustri.
Málið komst upp þegar annað
barn á leikskólanum greindi for-
eldrum sínum frá því. Þeir upp-
lýstu foreldra barnsins sem um
ræðir um atvikið. Í kjölfarið gengu
þeir á leikskólastjórann vegna
atviksins sem neitaði að nokkuð
slíkt hefði átt sér stað. Fréttablað-
ið ræddi í gærkvöldi við einstak-
ling sem varð vitni að atvikinu og
staðfesti hann lýsingu barnsins á
því. Sá einstaklingur hafði sam-
band við bæjaryfirvöld á Kirkju-
bæjarklaustri til að fá upplýsingar
um hvernig hann ætti að snúa sér í
málinu. Í kjölfarið ræddi hann við
félagsmálayfirvöld og lýsti atvik-
inu sem um ræðir.
Að sögn foreldra barnsins er
málið komið í ferli hjá sveitarfé-
laginu og hafa þeir hitt félagsráð-
gjafa einu sinni vegna þess. Hvert
framhald málsins verður er óljóst
en foreldrarnir eiga von á að hitta
félagsráðgjafann aftur í þessari
viku.
Leikskólastjórinn er enn að
störfum við skólann. Í samtali við
Fréttablaðið neitar hún að hafa
bundið barnið niður og furðar sig
á ásökunum um slíkt.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, þekkir ekki
til málsins en segir það að reyra
niður barn gangi gegn ákvæðum
barnaverndarlaga.
„Það er alveg ljóst að þetta er
afar vond uppeldisaðferð. Þetta er
refsing og það er kveðið á um það
í lögum að allar refsingar, hvort
sem þær eru líkamlegar eða and-
legar, eru refsiverðar. Það er ekki
að tilefnislausu sem það er sett inn
í lögin, allar svona aðferðir eru til
þess fallnar að skaða barnið sál-
rænt og þetta eru uppeldisaðferðir
sem eru fráleitar,“ segir hann.
Bragi segir svona aðferðir hafa
tíðkast hér á árum áður en hann
hefði haldið að þetta myndi ekki
sjást í dag.
„Af og til koma upp svona tilvik
þar sem starfsfólkið virðist vera
ráðþrota í sínum störfum. Það
getur verið að börnin sem í hlut
eiga séu stjórnlaus og mjög erf-
itt að höndla þau en þetta er ekki
aðferðin til að glíma við uppeldi
barna. Það eru allt aðrar aðferð-
ir sem eru viðurkenndar og bera
árangur þannig að svona starfsað-
ferðir eru óásættanlegar,“ segir
Bragi. fanney@frettabladid.is
Leikskólastjórinn sagður hafa
bundið barn í refsingarskyni
Leikskólastjóri á Kirkjubæjarklaustri er sagður hafa bundið barn við stól vegna óþekktar. Leikskólastjórinn
neitar ásökununum alfarið. Forstjóri Barnaverndarstofu segir slíkar uppeldisaðferðir vera fráleitar.
Svona
aðferðir eru
til þess
fallnar að
skaða barnið
sálrænt.
Bragi Guðbrandsson,
forstjóri Barnaverndarstofu.
HEILBRIGÐISMÁL Í dag eru 295 ein-
staklingar á hvern lækni en þeim
fjölgar hratt næstu árin sam-
kvæmt tölum frá Læknafélagi
Íslands.
Miðað við nýja spá um fjölda
lækna næstu tíu árin, að 303
læknar fari á eftirlaun, 48 útskrif-
ist frá Háskóla Íslands á ári og og
mismunurinn á brottfluttum og
aðfluttum læknum verði 38, þá
verða 390 einstaklingar á hvern
lækni.
„Við höfum áhyggjur af þessu
vegna þess að við teljum að þarna
sé framtíð heilbrigðiskerfisins
undir,“ segir Þorbjörn Jónsson,
formaður Læknafélagsins. Hann
vonast til að ríkisvaldið komi til
móts við lækna í kjarasamningum,
það sé líklegast til að draga lækna
til landsins. - sjá síðu 4 / jme
66 læknar flytja burt árlega:
Læknaflótti er
áhyggjuefniBolungarvík 8° SSA 7Akureyri 10° SA 6
Egilsstaðir 13° SSA 5
Kirkjubæjarkl. 10° SA 4
Reykjavík 11° SA 7
Rigning eða skúrir víða á landinu,síst
NA-til, en léttir heldur til seint í kvöld.
Yfirleitt S- og SA-átt, 5-10 m/s. Hiti á
bilinu 8-13°C, hlýjast austanlands. 4
LÖGREGLUMÁL Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, forsætisráðherra
og sitjandi dómsmálaráðherra,
segist taka ásakanir Jóns Óttars
Ólafssonar, fyrrverandi starfs-
manns sérstaks saksóknara, um
ólöglegar símhleranir embættis-
ins alvarlega, en hann beri þó fullt
traust til þess.
„Menn verða auðvitað þegar
svona ásakanir koma upp að taka
þær alvarlega þó ekki væri nema
vegna þess að það er mjög mikil-
vægt að þessar stofnanir, þessi
embætti njóti óskoraðs trausts,“
segir Sigmundur við fréttastofu.
Sigmundur hyggst fela viðeig-
andi nefndum að fara yfir hvort
embættið hafi farið að lögum og
reglum við framkvæmd
símhlerana og athuga
hvað sé hæft í áðurnefnd-
um ásökunum.
„Hvað varðar hler-
anirnar sérstaklega þá
þekkjum við dæmi
um að þar hafi
hlutirnir ekki
alltaf gengið
fyrir sig eins
og æskilegt
væri og þá er
spurningin:
er það reglu-
verkinu að
kenna eða
því að menn
hafi ekki
fylgt því sem skyldi.
Er kannski ástæða
til að árétta hlutina
enn betur í reglu-
verkinu og það er
það sem verður þá
unnið núna í fram-
haldinu,“ segir Sig-
mundur.
sjá síðu 8 / hh, fbj
Sitjandi dómsmálaráðherra vill láta rannsaka framkvæmdir símhlerana:
Lætur skoða sérstakan saksóknara
Menn verða auðvitað
þegar svona ásakanir
koma upp að taka þær
alvarlega.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
forsætisráðherra.