Fréttablaðið - 22.09.2014, Side 2
22. september 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
MENNING Íslenska fyrirtækið Gag-
arín var fengið til að setja upp þrjú
gagnvirk sýningaratriði á mann-
réttindasafni í Winnipeg í Kan-
ada sem opnað var nú um helgina.
Safnið, The Canadian Museum for
Human Rights, er fyrsta safnið í
heiminum sem eingöngu er helgað
mannréttindum.
„Þar er búið
að skapa ein-
stakan stað sem
fólk mun koma
á og læra og fá
innblástur til að
vinna að mann-
réttindamál-
um um ókomna
framtíð,“ segir
Ásta Olga Magn-
úsdóttir, verkefnisstjóri hjá Gag-
arín sem sérhæfir sig í hönnun á
gagnvirkum lausnum fyrir söfn og
sýningar.
Fyrirtækið sendi tillögur í
útboð vegna sýningaratriðanna og
hefur unnið að verkefninu undan-
farin þrjú ár. „Það var mikill heið-
ur að hafa verið valin og ótrúlega
gaman að taka þátt í svona stóru
verkefni. Þetta hefur verið langt
ferli og margir ólíkir aðilar þurftu
að koma að verkefninu. Þessar
þrjár sýningarlausnir sem við
erum með eru unnar í samstarfi
við safnið í tengslum við þemu
sem það er með. Við erum meðal
annars með gagnvirkar sögur þar
sem fjallað er um fólk sem hefur
unnið að mannréttindamálum.
Annað atriði er mjög falleg lif-
andi myndlíking um stjórnar-
skrá Kanada sem setur alveg tón-
inn fyrir eitt af ellefu galleríum
safnsins og þriðja atriðið tengist
mannréttindayfirlýsingu Samein-
uðu þjóðanna en þar erum við að
vinna með hreyfiskynjun.“
Ásta segir safnið eiga að vera í
miklum tengslum við það sem er
að gerast á líðandi stundu. „Þetta
verður safn sem verður í samtali
við samfélagið. Það setur Winni-
peg á kortið sem mannréttindaborg
og það verður staður þar sem fólk
kemur aftur og aftur.
Gagarín hefur lagt mikla vinnu í
að kynna starfsemi og lausnir víða
erlendis og meðal verkefna þess
núna er hönnun á gagnvirkum kynn-
ingum um alla þjóðgarða Noregs
sem settar verða upp í 15 upplýs-
ingamiðstöðvum fyrir ferðamenn.
Jafnframt tók fyrirtækið að sér í
samstarfi við sænsku arkitektastof-
una Codesign að hanna gagnvirkar
sýningarlausnir fyrir nýja olíusýn-
ingu í Vísinda- og tæknisafninu í
Ósló sem opnuð var á þessu ári.
ibs@frettabladid.is
Með sýningaratriði á
mannréttindasafni
Fyrsta safnið í heiminum sem eingöngu er helgað mannréttindum valdi íslenska
fyrirtækið Gagarín til að setja upp gagnvirk sýningaratriði. Vinnan hefur staðið
yfir þrjú ár í samstarfi við safnið, segir Ásta Magnúsdóttir, verkefnisstjóri.
MANNRÉTTINDASAFNIÐ „Safnið verður í samtali við samfélagið,“ segir Ásta Olga
Magnúsdóttir. MYND/THE CANADIAN MUSEUM FOR HUMAN RIGHTS
SÝNINGARATRIÐI Skjáskot af einu af
sýningaratriðum Gagaríns.
ÁSTA OLGA
MAGNÚSDÓTTIR
ALBANÍA Frans páfi fordæmdi öfgamenn um heim allan í messu sinni
í Tírana, höfuðborg Albaníu í gær. Sagði hann þá „snúa út úr“ trúar-
brögðum til þess að réttlæta ofbeldi sitt, en talið er að orðum hans
hafi verið beint að herskáum meðlimum Íslamska ríkisins.
Tugþúsundir Albana hlýddu á erindi trúarleiðtogans en hann lofaði
einnig friðsæla sambúð ólíkra trúarhópa í landinu. Meirihluti íbúa
Albaníu er íslamstrúar en þar býr einnig talsverður fjöldi kristinna
manna. -bá
Tugþúsundir manna hlýddu á messu páfans í Albaníu í gær:
Frans páfi fordæmir öfgamenn
HEIMSÓKN FRANS FAGNAÐ Að sögn páfans vildi hann heimsækja Albaníu vegna
þess hve mikið landið hefur þjáðst. Enver Hoxha, fyrrverandi einræðisherra lands-
ins, bannaði öll trúarbrögð í stjórnartíð sinni. NORDICPHOTOS/AFP
Höfum við setið á þessum
upplýsingum allt of lengi,
Teitur?
„Já. Ég stend við þessi orð.“
Nýjar rannsóknir sýna að því lengur sem þú
situr, því verri verður heilsan. Teitur Guð-
mundsson læknir hvetur fólk til að standa upp.
ELDGOS Gas frá eldgosinu í Holu-
hrauni mun í dag leggja til norðaust-
urs frá gosstöðvunum, samkvæmt
spá Veðurstofu Íslands. Miðað er
við að svæðið þar sem gasmengun-
ar gætir mögulega sé frá Þistilfirði
í norðri til Héraðs í suðri. Hægt er
að fylgjast með styrk gasmengunar
í lofti á vefsíðunni loftgaedi.is.
Gas hefur streymt látlaust upp
úr eldgígunum um helgina og hafa
vísindamenn á vettvangi orðið
varir við dauða fugla á svæðinu
vegna þess. Á fimmta tímanum í
gær mældist styrkur brennisteins-
díoxíðs (SO2) rúmlega 700 míkró-
grömmm á rúmmetra, en við-
kvæmir geta fundið fyrir áhrifum
mengunarinnar þegar styrkurinn
mælist yfir 600 míkrógrömm á
rúmmetra.
Samkvæmt vísindamannaráði
almannavarna eru engin merki um
að eldgosið sé í rénun en hraunbreið-
an úr gosinu er nú rúmlega 37 fer-
kílómetrar að stærð. Ekkert hefur
dregið úr framleiðslu hrauns og
sömuleiðis heldur sig öskju Bárðar-
bungu áfram á svipuðum hraða og
undanfarna daga.
Þá mældust í gær um 85 skjálftar
á gossvæðinu, þar af fjórir yfir fjög-
ur stig að styrkleika. Þeir stærstu
mældust 4,8 stig, rétt fyrir klukk-
an eitt um nótt, og 5,5 stig rétt fyrir
klukkan ellefu um morgun.
- bá
Ekkert bendir til að eldgosið í Holuhrauni sé í rénun og hafa fuglar fundist dauðir vegna gaseitrunar:
Búist við að gasið leggi til norðausturs í dag
GOSIÐ VIÐ HOLUHRAUN Í dag eru
líkur á gasmengun á Norðausturlandi
vegna gossins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NÁTTÚRA Okjökull, í samnefndu
fjalli í Borgarfirði, telst ekki
lengur vera jökull. Okið er þar
með fyrsti nafnkunni jökull
landsins til að missa þessa nafn-
bót.
Þetta sagði Oddur Sigurðsson
jöklafræðingur í kvöldfréttum
Ríkissjónvarpsins í gær.
Hann fór í könnunarferð á Okið
fyrir nokkrum dögum en get-
gátur hafa lengið verið uppi um
að þess litli en vel þekkti „jökull“
uppfylli ekki lengur þau skilyrði
sem þarf til að halda nafnbót-
inni. Að sögn Odds þurfa jöklar
að vera nógu þykkir til að hníga
undan eigin fargi og nær Okjök-
ull því ekki. - bá
Fyrstur til að missa heitið:
Okið telst ekki
lengur jökull
GÓÐGERÐARMÁL Ellefu styrkir
voru afhendir úr Starfsmenntunar-
sjóði ungra kvenna, að heildarupp-
hæð rúmlega 1,2 milljónir króna.
Tilgangur sjóðsins hefur frá
upphafi verið að hvetja og styðja
við bakið á konum, sem ekki eiga
kost á námslánum, til þess að
afla sér aukinnar menntunar. Á
sautján starfsárum hefur sjóður-
inn úthlutað 130 styrkjum að fjár-
hæð samtals 14,7 milljónir króna.
Starfandi er fjáröflunarnefnd
Starfsmenntunarsjóðsins. Einnig
gefa aðildarfélög BKR til sjóðs-
ins en mestu munar um velvild
og styrki fyrirtækja til sjóðsins,
m.a. frá Sorpu og Góða hirðinum.
- fb
Ellefu styrkir afhentir:
1,2 milljónir til
ungra kvenna
LÍBÝA Fjörutíu flóttamanna er
saknað eftir að fleki sökk fimmtíu
kílómetra frá austurströnd Líbýu
í gær.
Þetta segir ítalskur landhelgis-
gæslumaður í samtali við Reut-
ers. Ítölsk hafnaryfirvöld sendu
báta til móts við flekana og var 55
flóttamönnum bjargað um borð,
en talið er að um 95 hafi verið á
fleyinu. Hvorki tangur né tetur
hefur fundist af þeim sem sakn-
að er.
Alls hafa því rúmlega þrjú þús-
und flóttamenn látist það sem af er
ári við að sigla yfir Miðjarðarhafið
í átt að Ítalíu. Flestir þeirra koma
frá stríðshrjáðum svæðum í Sýr-
landi, Líbýu og Erítreu á austur-
strönd Afríku. Mörgum hefur þó
tekist siglingin og talið er að um
130 þúsund flóttamenn hafi náð
ströndum Ítalíu í ár, borið saman
við 60 þúsund allt árið í fyrra sam-
kvæmt tölum frá Flóttamannstofn-
un Sameinuðu þjóðanna.
Vargöldin sem nú ríkir í Líbýu
hefur leitt til þess að nær ómögu-
legt er að halda utan um fjölda
þeirra sem flúið hafa landið á síð-
ustu misserum. Talið er að menn
sem sérhæfa sig í flutningum
flóttamanna frá landinu, rukki
150 þúsund krónur fyrir ferðina
að ströndum Ítalíu. - sój
Fleki með tæplega hundrað manns um borð sökk við austurströnd Líbýu:
Fjörutíu flóttamanna saknað
FLÓTTAMÖNN-
UM BJARGAÐ
Ítalski sjóher-
inn að björg-
unarstörfum fyrr
á árinu. Talið er að
um 130 þúsund
flóttamenn hafi
náð ströndum
Ítalíu sjóleiðis í ár.
NORDICPHOTOS/AFP
fl ótta-
menn
hafa látist það sem af er ári
við að reyna að sigla til Ítalíu.
3.000