Fréttablaðið - 22.09.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.09.2014, Blaðsíða 8
22. september 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 HEILSA Ný rannsókn bendir til þessa að neysla gervisykur hafi áhrif á sykurþol. Prósfessor við Háskóla Íslands segir niðursöð- urnar afar athyglisverðar. Hitaeiningalaus sætuefni eru ein algengustu aukaefnin sem notuð eru í matvælaframleiðslu í heim- inum í dag. Þau hafa hingað til verið talin skaðlaus þrátt fyrir gagnrýnisraddir sem sífellt verða háværari. Í liðinni viku birti Nature, alþjóðlegt tímarit um vísindi, niðurstöð- ur úr rannsókn um áhrif gervisyk- urs á brenglað sykurþol eða for- stig sykursýki í bæði mönnum og músum. Rannsókn- in var gerð á sætuefn- unum sakkaríni, súkralósa og aspartami. Mýs, sem innbyrtu reglulega gervisykur, fengu brenglað sykur- þol og var ástæðuna fyrir því að finna í breyttri þarmaflóru mús- anna. Tilraunin var sem fyrr segir einnig gerð á mönnum og leiddi áþekka niðurstöðu í ljós og í mús- unum en fjórir einstaklingar af þessum sjö fengu sykurbrenglun. „Rannsókn þessi er mjög athygl- isverð. Niðurstöður um hugsan- leg áhrif gervisykurs eru sann- færandi og eru í takt við margar nýlegar rannsóknir um mikilvægi bakteríuflóru garnanna í margvís- legum sjúkdómum,“ segir Magn- ús Karl Magnússon, prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands. „Þó svo að þessi vísinda- rannsókn hafi beint sjón- um að áhrifum gervi- sykurs bæði í músum og mönnum er rétt að bíða eftir nánari rannsóknum á mönn- um áður en við getum fullyrt um hugsan- leg neikvæð áhrif. En engu að síður mjög áhugavert og mikilvægt framlag til að auka skilning okkar á áhrifum þessara efnasambanda á mannslíkamann,“ segir Magnús Karl. Þeir sem vilja kynna sér rannsóknina til hlítar geta lesið hana á vefsíðunni nat- ure.com - fhg Ný rannsókn á sætuefnum birtist í Nature: Brenglað sykurþol vegna gervisykurs ÁHUGAVERÐ RANNSÓKN Magnús Karl Magnússon segir rannsóknina mjög áhuga- verða en rétt sé að bíða eftir nánari rannsóknum á mönnum áður en fullyrt verði um hugsanleg neikvæð áhrif. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og sitjandi dómsmálaráðherra, seg- ist taka ásakanir á hendur sérstök- um saksóknara alvarlega, en beri þó fullt traust til embættisins. Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi starfsmaður sérstaks saksóknara, fullyrti í viðtali við Fréttablaðið að margoft hefði verið hlustað á samtöl verjanda og sakborninga hjá embættinu. Það er ólöglegt. „Menn [verða] auðvitað þegar svona ásakanir koma upp að taka þær alvarlega þó ekki væri nema vegna þess að það er mjög mikil- vægt að þessar stofnanir, þessi emb- ætti njóti óskoraðs trausts,“ segir Sigmundur í samtali við fréttastofu. Sigmundur hyggst benda stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd á þess- ar ásakanir og leggja það í þeirra hendur hvort ástæða sé til að rann- saka það nánar. „Ég geri ráð fyrir að senda þeim [réttarfarsnefnd] formlegt erindi og hef í raun verið að leggja drög að því, þar sem nefndinni er falið í samræmi við hlutverk hennar að fara yfir það regluverk sem gildir um símhler- anir og um leið að skoða hvernig því regluverki hefur verið beitt og hvort þurfi að gera á því einhverjar breytingar, hvort þetta sé að virka sem skyldi.“ Sigmundur segir það áhyggjuefni ef svona embætti njóta ekki trausts. „Það er auðvitað áhyggjuefni ef embætti sem fer með svona mikið vald og mikilvægt hlutverk nýtur ekki trausts og ef atburðir verða til þess að draga úr því trausti og þess vegna er það í þágu embættis- ins ekki síður en annarra að þetta sé allt saman skoðað vel.“ Ríkissaksóknari fékk fyrst vitn- eskju um óeðlilega framkvæmd símhlerana hjá sérstökum saksókn- ara árið 2012 en aðhafðist ekkert. Aðspurður hvort það sé eðlilegt segir Sigmundur að bæði ríkis- saksóknari og sérstakur saksókn- ari hafi hafnað þessum ásökun- um. „Þær eru þó þess eðlis að það kallar á að þetta verði skoðað,“ segir Sigmundur og bætir við að þarna sé um að ræða mjög mikil- vægt „grundvallarprinsipp“ sem sé þrískipting valdsins, sjálfstæði ákæruvalds og dómstóla. „Þetta er hin sígilda spurning, hver á að gæta varðanna?“ Sigmundur segir að skoða þurfi málaflokkinn í heild sinni. „Hvað varðar hleranirnar sérstaklega þá þekkjum við dæmi um að þar hafi hlutirnir ekki alltaf gengið fyrir sig alveg eins og æskilegt væri og þá er spurningin: er það regluverkinu að kenna eða því að menn hafi ekki fylgt því sem skyldi. Er kannski ástæða til að árétta hlutina enn betur í regluverkinu og það er það sem verður þá unnið núna í fram- haldinu.“ fanney@frettabladid.is / hjortur@stod2.is „Hver á að gæta varðanna?“ Dómsmálaráðherra tekur ásakanir um ólöglegar hleranir á hendur sérstökum saksóknara alvarlega. Hann hyggst benda stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á málið sem svo meti hvort tilefni sé til frekari rannsóknar. SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI Dómsmálaráðherra segir að embætti sem fari með mikið vald og mikilvægt hlutverk verði að njóta trausts. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON Það er auðvitað áhyggjuefni ef embætti sem fer með svona mikið vald og mikilvægt hlut- verk nýtur ekki trausts. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. BRETLAND Alex Salmond, fráfar- andi fyrsti ráðherra Skotlands, sakar forystumenn meginflokka Bretlands um að blekkja kjós- endur með síðbúnum loforðum skömmu fyrir kosningar. Kjósendur í Skotlandi höfn- uðu sjálfstæði í þjóðaratkvæða- greiðslu á fimmtudag. 55 prósent Skota sögðu nei en 45 prósent voru á öndverðum meiði og sögðu já í atkvæðagreiðslunni. Salmond segir að kynna hafi átt tillögu um að auka völd Skota fyrir breska þinginu strax að loknum kosningum á föstudag. Það mun dragast á langinn þar sem forystumenn meginflokk- anna hafa ekki náð saman um hvernig eigi að meðhöndla málið. - jjk Breskir leiðtogar gagnrýndir: Salmond segir Skota blekkta SEGIR KJÓSENDUR BLEKKTA Alex Salmond mun brátt láta af störfum sem fyrsti ráðherra Skota. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.