Fréttablaðið - 22.09.2014, Blaðsíða 10
22. september 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða hjá útibúum Olís um land allt.
KABÚL, AP Ashraf Ghani Ahmadzai
og Abdúlla Abdúlla, frambjóðend-
urnir tveir í nýafstöðnum forseta-
kosningum í Afganistan, undirrit-
uðu í gær samkomulag um myndun
þjóðstjórnar í landinu. Ahmadzai
verður næsti forseti landsins en
Abdúlla hlýtur nokkurs konar for-
sætisráðherraembætti.
Andstæðar fylkingar hafa tekist
hart á um forsetaembættið síðustu
mánuði, en kosningarnar hófust í
apríl. Ekki er víst að þeim deilum
sé með öllu lokið enn en kjörstjórn
gaf ekki upp lokatölur úr kosning-
unum eftir að hafa lýst Ahmadzai
sigurvegara. Fulltrúi bandarískra
stjórnvalda, sem reynt hafa að
miðla málum milli Ahmadzai og
Abdúlla, segir að tölurnar hafi ekki
verið gerðar opinberar strax af ótta
við óeirðir almennings.
Frambjóðendurnir tveir skrifuðu
undir samkomulagið í viðurvist frá-
farandi forseta landsins, Hamids
Karsaí, sem hefur gegnt embætt-
inu frá því að ríkisstjórn talíbana
var steypt af stóli árið 2001.
„Ég er mjög glaður yfir því að
báðir bræður mínir hafa samþykkt
grunninn fyrir nýja ríkisstjórn
Afganistans, sem er landinu fyrir
bestu,“ sagði Karsaí eftir undirrit-
un samkomulagsins.
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, var einnig sigur-
reifur í kjölfar athafnarinnar en
hann fékk frambjóðendurna til að
samþykkja að deila völdum í heim-
sókn sinni til Afganistans í júlí. Í
tilkynningu frá Hvíta húsinu segir
að samkomulagið um þjóðstjórn-
ina sé mikilvægt tækifæri til þess
að koma á pólítískum stöðugleika
í landinu.
bjarkia@frettabladid.is
Valdinu deilt
í Afganistan
Ashraf Ghani Ahmadzai er sigurvegari forsetakosn-
inga í Afganistan. Hann hefur undirritað samkomu-
lag um þjóðstjórn ásamt mótframbjóðanda sínum.
SKIPTA MILLI SÍN VALDINU Ahmadzai, til hægri, var í gær lýstur nýr forseti Afgan-
istans en lokatölur úr kosningunum hafa ekki verið gerðar opinberar. NORDICPHOTOS/AFP
Ég er mjög glaður yfir
því að báðir bræður mínir
hafa samþykkt grunninn
fyrir nýja ríkisstjórn Afgan-
istans.
Hamid Karsaí, fráfarandi forseti
Afganistans.
FÉLAGSMÁL Hjartadagshlaupið,
sem haldið er í tilefni alþjóðlega
hjartadagsins, verður haldið í átt-
unda sinn næstkomandi sunnudag.
Ræst verður frá Kópavogsvelli
klukkan tíu og er þátttaka ókeypis.
Hjartadagurinn sjálfur er svo
á mánudaginn næsta en það er
Alþjóðahjartasambandið sem
hvetur aðildarfélög sín um allan
heim til að halda upp á hjartadag-
inn. Þema hjartadagsins í ár er
samfélagið og umhverfi einstak-
lingsins
- bá
Hlaupið í áttunda sinn í tilefni alþjóðlega hjartadagsins:
Hjartadagshlaup næsta sunnudag
KEPPENDUR RÆSTIR Í FYRRA Hlaupa-
leiðin liggur um Kársnesið í Kópavogi.
MYND/HJARTAVERND
UMHVERFISMÁL „Það gekk rosalega
vel og það var rosa góð mæting þrátt
fyrir veður,“ segir Hildur Knútsdótt-
ir rithöfundur, ein þeirra sem héldu
utan um Loftslagsgöngu Reykjavík-
ur sem haldin var í gær en í kringum
300 manns fylktu liði.
Gengið var frá Drekasvæðinu svo-
kallaða niður á Austurvöll. Þar var
haldinn kröfufundur og þess kraf-
ist að gripið yrði til raunverulegra
aðgerða til að hefta útblástur gróð-
urhúsalofttegunda.
Gangan er hluti af alþjóðlegri
hreyfingu, Peoples Climate March,
en um helgina voru boðaðir yfir
2.700 viðburðir í 160 löndum. Tilefn-
ið er fundur sem Ban Ki-Moon, aðal-
ritari SÞ, hefur boðað til í New York
í vikunni. Þar á að liðka um fyrir
alþjóðasamkomulagi um minnkaða
losun gróðurhúsalofttegunda. Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra sækir fundinn.
Þetta er annar kröfufundurinn af
þessu tagi sem haldinn hefur verið
á landinu en seinast voru mótmæli
haldin þegar síðasta sérleyfið til olíu-
leitar á Drekasvæðinu var veitt en 97
prósent loftslagsvísindamanna eru
sammála um að loftslagsbreytingar
séu mjög líklega af mannavöldum.
Fjölmörg samtök komu að skipu-
lagningu göngunnar svo sem Vef-
ritið Grugg, Náttúruverndarsamtök
Íslands, Landvernd og Breytendur –
Changemaker Iceland. - þij
Umverfisverndarsinnar fylktu liði og kröfðust þess að gripið yrði til aðgerða til að hefta útblástur gróðurhúsalofttegunda:
Góð mæting í kröfugöngu þrátt fyrir slæmt veður
FJÖLMENNI Í kringum 300 manns tóku þátt í göngunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fjöldi þátttak-
enda í loft s-
lagsgöngunni í gær.
300