Fréttablaðið - 22.09.2014, Qupperneq 14
22. september 2014 MÁNUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTARITSTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Ég brást skjótt við þegar ég varð þess var
á öndverðum sólmánuði, að kvikmynd mín,
Ófeigur gengur aftur, væri komin á You-
Tube. Ég sendi fyrirtækinu kvörtun í tölvu-
pósti, sagði skýrt og skorinort að réttur eig-
andi myndarinnar væri mótfallinn þessari
birtingu. Þessu var vel tekið, og 2. júlí fékk
ég tilkynningu um að myndin hefði verið
fjarlægð af vefnum.
Ekki hafði ég hugsað mér að gera meira
í málinu, þar til ég fékk, í ágúst að áliðnum
slætti, annað bréf frá YouTube. Þar sagði
að sá sem upphaflega hefði sett myndina á
vefinn skildi bara ekki af hverju hún væri
þar ekki áfram, hún hlyti að hafa verið tekin
þaðan fyrir einhvern misskilning. Í næstu
málsgrein var mér uppálagt að fara í mál
við manninn, væntanlega til að fá úr því
skorið hvor okkar ætti réttinn á myndinni!
Ég á því ekki annarra kosta völ en að lög-
sækja einhvern ungan mann í Njarðvíkun-
um, sem ég þekki ekkert til. Enn síður veit
ég hvað veldur þessum mikla áhuga hans á
að sýna á opinberum vettvangi kvikmynd
sem hann á ekkert í. Ég veit bara að hann
varði ekki tveimur árum ævi sinnar í að
gera þessa kvikmynd, hann veðsetti ekki
húsið sitt fyrir tíu milljónir hennar vegna
og hann tók hvorki við lofi né lasti þegar
myndin náði loksins upp á silfurtjaldið.
Svona stendur þetta með YouTube. Í oná-
lag hefur myndin verið sett á ólöglegar vef-
síður þar sem henni hefur verið dreift af
mikilli rausn ókeypis. Það byrjaði strax
vikuna eftir að hún kom út á geisladisk-
um (DVD). Á sama tíma var hægt að leigja
myndina hjá bæði Skjánum og Vodafone
fyrir nokkra hundraðkalla, en samt sáu
nokkur þúsund manns sér hag í að hlaða
henni niður ólöglega.
Nú eru við völd stjórnmálaöfl sem
almennt gera eignarréttinum hátt undir
höfði. Á því er þessi eina undantekning: það
má stela kvikmyndum og tónlist. Er nú ekki
kominn tími til að gera eitthvað í þessu? Öll
viljum við frelsi til sem flestra hluta, en
hingað til höfum við ekki samþykkt frelsi
til lögbrota.
Fjölmargir listamenn hafa kvartað undan
stuldi á höfundarverkum sínum, og má
þar nefna Ladda og Baltasar Kormák, að
ónefndum fjölda tónlistarmanna. Samtök
listamanna þurfa að stíga fram til að verja
réttindi síns fólks á þessu sviði. Veitufyrir-
tækin geta með einföldum hætti komið í veg
fyrir þessar gripdeildir. Það má hins vegar
ekki heyra á það minnst að sú kvöð sé lögð
þeim á herðar. Í staðinn koma athugasemd-
ir um tjáningarfrelsi eða netfrelsi eða alls
konar frelsi. Í mínum eyrum hljómar það
eins og ákall um frelsi til að taka frá mér
það sem ég á.
Frelsi til að taka eigur annarra
Morgunverðarfundir
Heilbrigðismál á Íslandi
- áskoranir og lærdómar
Dagfinn Tulinius Hallseth, einn helsti sérfræðingur PwC
á sviði heilbrigðismála í heiminum ræðir um áskoranir í
heilbrigðismálum og hvaða lærdóm Ísland getur dregið af
alþjóðlegri þróun.
Allir áhugasamir eru velkomnir. Fundirnir fara fram á
ensku.
Akureyri - Hótel KEA
24. september milli 8:30 - 9:30
Reykjavík - Skógarhlíð 12
25. september milli 8:30 - 9:30
Nánari upplýsingar og skráning á vef PwC :
pwc.is/90
90
1924-2014
M
eðan hinn almenni Íslendingur bíður þess að heyra
fréttir, af gangi kjaraviðræðna og hvað taki við
þegar skammtímasamningarnir á vinnumarkaði
renna sitt skeið, innan ekki langs tíma, upphefst
enn og aftur derringur milli þeirra sem mestu ráða
um framgang málsins. Forysta Alþýðusambandsins hefur slitið
samstarfi, samráði og bara hverju sem er sem varðar næstu og
nauðsynlegustu skref. Mikið er það merkilegt að þetta eða annað
ámóta skuli endurtekið aftur og aftur.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra hefur virkjað Facebook
til að leggja sitt inn í ósættið og
segir þar forystu ASÍ hlaupa
eftir frösum sem falli af vörum
forystu Samfylkingarinnar. Og
Bjarni gerir þar það sama og
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra hefur gert, það
er að ætla forseta Alþýðusam-
bandsins að stjórnast af komandi forystukosningum í Alþýðusam-
bandinu. Meðan stóru strákarnir eru á þessu stigi í málinu getum
við hin, sem eigum svo mikið undir að vel takist til hjá þeim sem
hafa valist til forystu hér og þar, ekki vænst mikils.
Mörgum eru ofarlega í minni orð Sigmundar Davíðs, Bjarna,
Gylfa Arnbjörnssonar og svo Þorsteins Víglundssonar í þættinum
Sprengisandi, að framundan séu átök á vinnumarkaði og ekki
verði sjálfgefið að takist að verja þann árangur sem þó hefur
tekist að ná. Þjóðin á svo mikið undir að ekki verði holskefla með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum í landi verðtryggingarinnar.
Meðan forysta Alþýðusambandsins skellir hurðum og forysta
landsstjórnarinnar ullar á móti gerist trúlegast fátt af viti. Það
er með ólíkindum hvernig menn geta látið. Gagnrýni Alþýðu-
sambandsins á tekjuáætlun ríkisins og á fjárlagafrumvarpið er
gagnrýni sem verður að taka alvarlega. Staða Alþýðusambandsins
er, eða allavega á að vera, sú að orð þess eiga að skipta máli, vera
tekin alvarlega. Til að svo verði þarf tvennt til, að lágmarki. Að
ASÍ hagi orðum sínum af ábyrgð og að ríkisstjórn, á hverjum
tíma, sé skipuð fólki sem tekur gagnrýni en firrist ekki við og
hamist á forystumanninum. En ekki efninu.
ASÍ þykir halla á þá lakar settu gagnvart hinum. Í þeirra huga
er verk að vinna til að snúa af þeirri stefnu sem boðuð er í fjár-
lagafrumvarpinu og tekjufrumvarpinu. Og þá kemur að því hvaða
leið er best að fara til að freista þess að ná fram, að þeirra mati,
sem mestum og bestum árangri. Fara í fýlu? Eða freista þess með
öðrum hætti að hafa áhrif á það sem verður? Þar sem allir, sem
til þekkja og að koma, gera ráð fyrir hörðum átökum um kaup og
kjör, bæði milli deilenda á vinnumarkaði og ríkisvaldsins, hlýtur
fyrsta krafa okkar hinna að vera sú, að strákarnir hætti þessu
rugli og taki að vinna að framgangi málsins.
Ekki er annað að sjá en að fjármálaráðherra hafi lagt fram fjár-
lagafrumvarp og tekjuáætlun ríkisins til umræðu og endurgerðar.
Málið er honum ekki fastara í hendi en svo að nánast hálfur
þingmeirihluti ríkisstjórnarinnar hefur fyrirvara um þetta allt
saman. Kannski færi best á því fyrir Alþýðusambandið að bæta
sér í þann hóp, berjast fyrir sínu og freista þess að fá sitt fram.
Framundan er átakavetur um kaup og kjör fólks:
Derringur í
ráðamönnum
Sigurjón Magnús
Egilsson
sme@frettabladid.is
MENNING
Ágúst
Guðmundsson
leikstjóri
Eftirárökstuðningur
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra kom kollega sínum, Sigurði
Inga Jóhannssyni sjávarútvegs-
ráðherra og ákvörðun hans um
að flytja Fiskistofu til
Akureyrar, til varnar í
pistli á vefsíðunni Feyki
um helgina. Gunnar segir
ákvörðunina góða og það
hafi sýnt sig að flutningur
opinberra stofnana og
starfa út á land skili miklu
fyrir það samfélag sem
tekur við stofnuninni
sem dafni vel. Þá nefnir
hann nokkur dæmi
um stofnanir sem
hafa verið fluttar
með góðum árangri.
Það er gott mál að talsmenn
ríkisstjórnarinnar taki þetta mál til
umræðu, þar sem hún var engin
áður en ákvörðunin um flutninginn
var tekin. Þannig má í raun segja að
rökstuðningurinn, sem mögulega
er ágætur, komi nokkrum
mánuðum of seint.
Beint í manninn
Síðar í pistlinum
veður Gunnar Bragi í
stjórnsýslufræðing
sem hefur
tjáð sig
um
mál-
ið.
Hann kallar viðkomandi dyggan
stuðningsmann Samfylkingarinnar
og segir að þar sem hún hafi setið í
ábyrgðarstöðum fyrir Samfylkinguna,
og vísar í að hún hafi setið í umbóta-
nefnd flokksins, sé hún óheppileg
sem álitsgjafi til að gefa faglegt álit
á „pólitískum andstæðingi sínum“.
Stjórnsýslufræðingurinn, Sigur-
björg Sigurgeirsdóttir, er lektor
í fagi sínu við Háskóla Íslands.
Gamalkunna tuggan „að fara í
manninn en ekki boltann“ á vel
við hér, en Gunnar Bragi
nefnir ekki einu orði
gagnrýni Sigurbjargar um
þau umtalsverðu gjöld
sem farið er út í þegar
stofnunin er flutt.
fanney@frettabladid.is