Fréttablaðið - 22.09.2014, Qupperneq 18
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
MIKIL NEYÐ
„Þeir sem óska
eftir mat eru aðal-
lega fólk á örorku-
bótum, einstæð-
ingar og einstæð-
ir foreldrar með
börn. Það virðist
vera rosalega mikil
neyð í samfélaginu
og margt fólk sem
virðist engan veg-
inn ná endum
saman. Þörfin fyrir
svona hóp er því
greinilega mikil.“
Nýlega setti hópur kvenna á fót Facebook-síðuna Matargjafir sem hefur það markmið að
gefa illa stöddu fólki og fjöl-
skyldum mat. Upphafið
má rekja til annars hóps á
Facebook sem heitir Gefins,
allt gefins! þar sem einstak-
lingar gefa allt milli himins
og jarðar. Einn daginn setti Jó-
hanna Bjarndís Arapinowicz inn
auglýsingu þar sem hún vildi gefa
ársgamalt kjöt úr frystikistunni.
Kjötið rauk út og í kjölfarið hófu
fleiri að gefa mat. „Aðsókn í mat var
svo mikil að það vaknaði hugmynd
að sérstakri síðu sem væri aðgengi-
legri fyrir bæði þiggjendur og
gefendur matar,“ segir Jóhanna.
Síðan sjálf var stofnuð í júlílok og
fleiri bættust við skipulagningu
hópsins. Í dag eru fjórar konur
sem stýra honum; áðurnefnd
Jóhanna, Lilja Guðmunds-
dóttir, Jóhanna Sigurðardóttir
og Árdís Pétursdóttir. Allar eiga þær
sameiginlegt að sögn Lilju að vilja skila
einhverju til samfélagsins. „Með því að
gefa tíma okkar og vinnu í þetta mikil-
væga verkefni hjálpum við vonandi
eitthvað til. Auk okkar hafa tvær
yndislegar konur, Lilja Torfa-
dóttir og Kristín Snorradóttir,
sett af stað peningasöfnun
á Facebook, en peninginn
nýta þær til að kaupa mat í
samráði við okkur sem við
deilum út.“
Hver sem er getur sótt um
aðild að hópnum og þar er
bæði hægt gefa mat eða óska
eftir honum. „Einstaklingar
gefa þarna mat milliliðalaust.
Við tökum líka við mat og
deilum út, því eðlilega vilja
ekki allir koma fram undir
nafni enda skammast sín
margir fyrir fátækt. Engin
vandamál hafa þó komið
upp hjá okkur enda leggjum
við mikla áherslu á trúnað
við þá sem til okkar leita.“
Að sögn Lilju og Jóhönnu hafa við-
brögðin verið mun sterkari en þær áttu
von á. „Í dag eru tæplega 2.900
manns skráðir í hópinn,
bæði gefendur og þiggj-
endur. Þeir sem óska eftir
mat eru aðallega fólk á
örorkubótum, einstæðingar
og einstæðir foreldrar með
börn. Það virðist vera rosa-
lega mikil neyð í samfélaginu
og margt fólk sem virðist engan
veginn ná endum saman. Þörfin
fyrir svona hóp er því greinilega
mikil.“
Hópurinn hefur frá ágústmán-
uði deilt mat til um 60 manns og
fjölskyldna og þá eru bara taldir
þeir sem hafa sent inn beiðni
til stjórnenda síðunnar. „Bara í
september höfum við látið tíu
fjölskyldur hafa matarpoka.
Við höfum hins vegar enga
tölu á þeim sem hafa fengið
mat í gegnum vegg síðunnar
og aðrir sjá um að gefa.“
Matarpokinn inniheldur mismunandi
matvæli, allt eftir því hvað fólk og fyrir-
tæki hafa gefið. „Við reynum alltaf að
hafa smjör, ost, brauð og mjólk
ásamt einhverjum kvöldmat
á borð við hakk, kjötfars og
pylsur. Við sækjum mikið eft-
ir þurrvöru sem fólk getur
matreitt úr enda geymist
hún lengi. Fyrirtæki og
verslanir hafa líka styrkt
okkur, til dæmis Fiska.is
sem gaf okkur fisk, Fiski-
kónginn sem gaf mörgum
síld og Sjávarhöllin gaf
okkur fisk. Við viljum endi-
lega hvetja önnur fyrirtæki
til að taka þessar verslanir
og fyrirtæki til fyrirmyndar
og gera það sama. Einnig
erum við að leita eftir fyrir-
tækjum til að styrkja okkur
til dæmis mánaðarlega með
mat til að deila út. Öll fram-
lög eru vel þegin.“
■ starri@365.is
DREIFA MATVÆLUM
TIL BÁGSTADDRA
HJÁLPA TIL Hópurinn Matargjafir var stofnaður á Facebook í sumar. Markmið
hans er að gefa einstaklingum og fjölskyldum mat og þörfin virðist mikil.
GERA GÓÐVERK
Þrír af fjórum meðlimum
hópsins Matargjafir.
Frá vinstri: Jóhanna
Bjarndís Arapinowicz,
Lilja Guðmundsdóttir og
Jóhanna Sigurðardóttir.
Á myndina vantar Árdísi
Pétursdóttur.
MYND/PJETUR
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
NÝTT – NÝTT
8 rétta
hlaðborð í
hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.390.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga.
ekki um helgar.
Veggfodur.is
r s ur i ir
egi d
i ri. . . og u. .
Save the Children á Íslandi
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is