Fréttablaðið - 22.09.2014, Qupperneq 46
22. september 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 22
BAKÞANKAR
Hauks Viðars
Alfreðssonar
WALK AMONG TOMBSTONES 5:45, 8, 10:20
MAZE RUNNER 8, 10:20
PÓSTURINN PÁLL 2D 5:45
THE NOVEMBER MAN 10
PARÍS NORÐURSINS 5:50
LUCY 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
FRAMLEIÐENDURNIR STEVEN SPIELBERG
OG OPRAH WINFREY BJÓÐA ÞÉR UPP Á
SANNKALLAÐA VEISLU
ARIZONA REPUBLIC NEW YORK OBSERVER
FRÁBÆR TÓNLIST, MÖGNUÐ SAGA
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
SOUND ON SIGHT EYE FOR FILM
A WALK . . . THE TOMBSTONES KL. 5.30 - 8 - 10.30
THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8 - 10.30
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15
VONARSTRÆTI KL. 5.20 - 8 - 10.40
KL.5.30 - 8 - 10.30
THE MAZE RUNNER LÚXUS KL.5.30 - 8 - 10.30
THE NOVEMBER MAN KL. 8 - 10.25
PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL2D KL. 3.30 - 5.45
Ó ÁP STURINN P LL ÍSL. TAL3D KL. 3.30
PARÍS NORÐURSINS KL. 3.30 - 5.45 - 8
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8 - 10.20
EXPENDABLES KL. 10.10
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2DKL. 3.30
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
MYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
GULLNA HLIÐIÐ KOMIÐ SUÐUR
Uppfærsla Leikfélags Akureyrar á Gullna hliðinu eft ir Davíð Stefánsson var frumsýnd á stóra sviði Borgarleik-
hússins á föstudaginn. Sýningin var fyrst sýnd á Akureyri í ár við góðar viðtökur en leikstjóri hennar er Egill
Heiðar Anton Pálsson. Á frumsýningunni var líf og fj ör og mættu margir góðir gestir til að sjá þetta sígilda verk.
ALLIR MÆTTIR Egill Jóhannesson, Halla Jóhannesdóttir, hjónin Margrét Vilhjálmsdóttir og Egill Heiðar
Anton Pálsson ásamt Mikael Þey Egilssyni og Ísu Lilju Egillsdóttur.
HIN FJÖGUR FRÆKNU Elín Guðmundsdóttir, Þuríður Runólfsdóttir, Kolbrún
Gunnars dóttir og Skafti Ólafsson.
FLOTT Í TAUINU Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Guðmundur Steingrímsson og Alexía
Björg Jóhannesdóttir.
Í STUÐI Halldóra Geirharðsdóttir og Steiney Skúladóttir
skemmtu sér konunglega.
SMEKKLEG Þorsteinn Kári Guðmundsson, Steinunn Helgadóttir og Gunnhildur
Helgadóttir.
GAMAN SAMAN Theódór Júlíusson, Sigurður Þór Óskarsson, Rúnar Freyr Gíslason,
Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Oddur Júlíusson.
Kanadíski söngvarinn Leonard
Cohen hefur heitið því að byrja
aftur að reykja í tilefni af 80 ára
afmæli sínu á þriðjudaginn.
„Í alvöru talað, veit einhver
hvar maður getur keypt tyrkneska
eða gríska sígarettu?“ spurði
Cohen á fjölmiðlafundi í New York
í vikunni. „Ég hlakka til fyrsta
smóksins. Ég hef verið að hugsa
um hann í 30 ár. Þetta er einn af
fáum hlutum sem ég hef náð að
hugsa um á rökrænan hátt.“
Söngvaskáldið vinsæla mun
einnig fagna afmælinu sínu með
útgáfu á nýju plötunni sinni,
Popular Problems. - þij
Vill byrja aft ur
að reykja
30 ÁR LIÐIN Cohen með sígó árið 1980.
ÉG elska plötur. Hvort sem það er Glass
Houses með Billy Joel eða Once Upon the
Cross með Deicide þá finnst mér hljómplat-
an hið fullkomna listform. Átta til tólf lög,
þrjátíu til sextíu mínútur, upphaf, miðja og
endir.
ÉG elska að velta fyrir mér uppröðun laga
á hljómplötu. Fyrsta lagið er gríðarlega
mikilvægt. Seinasta lagið einnig. Þetta eru
lögin sem binda plötuna saman. Fyrsta lagið
er agnið. Seinasta lagið er það sem ræður
úrslitum um það hvort þú hlustar aftur á
plötuna eða ekki.
ÉG elska að hlusta á plötur í fartölvuhá-
tölurum, í símanum mínum, á Spoti-
fy, á geisladiskum, í lélegum
bílgræjum og á vínylplötum.
Ég nenni ekki að snobba fyrir
afspilunarbúnaði. Vínyll er frá-
bær og eigulegur. En iTunes
er líka frábært. Stundum
hlusta ég meira að segja á
heilar plötur á YouTube. Ég
vil innihaldið, fyrst og fremst.
ÉG elska tónlistarfólk sem
gefur ennþá út plötur. Dauða hljómplötunn-
ar hefur verið spáð í mörg ár og það má vel
vera að platan sé nú þegar dauð í augum
margra. Tónlistarfólk sem gefur skít í plötur
og gefur bara út stök lög hefur eflaust heil-
mikið til síns máls. Af hverju að kaupa fjög-
ur góð lög og sex miðlungsgóð á 2.500 kall í
stað þess að kaupa bara góðu lögin fjögur og
vínarbrauð fyrir mismuninn? Ég skil reynd-
ar hugsunina á bak við það að kaupa heildar-
pakkann.
ÉG elska nefnilega líka uppfyllingarefnið.
Lögin sem lyfta bestu lögunum upp á enn
hærra plan. Prófaðu að hlusta á safnplötu
með hljómsveit sem á ógrynni af frábærum
lögum. Stundum verður það hreinlega of
mikið. Svona eins og að smyrja Nutella ofan
á Lindubuff (ég hef ekki gert það, ég lofa).
Ég þarf tíma til að ná áttum eftir lag eins og
Black ened með Metallica. Þá er fínt að dotta
yfir einhverju miðjumoði í smástund.
ÉG hata þá staðreynd að einhvern daginn
muni tónlistarfólk mögulega hætta að gefa
út plötur. En þangað til það gerist ætla ég
að nota tímann og reyna að hlusta á sem
flestar.
Ástarjátning