Fréttablaðið - 22.09.2014, Síða 48

Fréttablaðið - 22.09.2014, Síða 48
22. september 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 24 visir.is Meira um leiki gærkvöldsins SPORT ÚRSLITASTUND MÁNUDAGINN SEPTEMBER KL. STYÐJUM OKKAR LIÐ OG MÆTUM Á VÖLLINN! Stjarnan – Afturelding, Samsungvelli Breiðablik – ÍA, Kópavogsvelli Fylkir – Þór/KA, Fylkisvelli Valur – ÍBV, Vodafonevelli FH – Selfoss, Kaplakrikavelli UMFERÐ PEPSI-DEILDAR KVENNA ÚRSLIT ENSKA ÚRVALSDEILDIN QPR - STOKE 2-2 0-1 Mame Biram Diouf (11.), 1-1 Steven Caulker (42.), 1-2 Peter Crouch (51.), 2-2 Niko Kranjcar (88.). ASTON VILLA - ARSENAL 0-3 0-1 Mesut Özil (32.), 0-2 Danny Welbeck (34.), 0-3 Aly Cissokho, sjálfsmark (36.). BURNLEY - SUNDERLAND 0-0 NEWCASTLE - HULL 2-2 0-1 Nikica Jelavic (48.), 0-2 Mohamed Diame (68.), 1-2 Papiss Cisse (73.), 2-2 Papiss Cisse (87.). SWANSEA - SOUTHAMPTON 0-1 0-1 Victor Wanyama (80.). WEST HAM - LIVERPOOL 3-1 1-0 Winston Reid (2.), 2-0 Diafra Sakho (7.), 2-1 Raheem Sterling (26.), 3-1 Morgan Amalfitano (88.) LEICESTER - MANCHESTER UNITED 5-3 0-1 Robin van Persie (13.), 0-2 Angel Di Maria (16.), 1-2 Leonardo Ulloa (17.), 1-3 Ander Herrera (57.), 2-3 David Nugent, víti (62.), 3-3 Esteban Cambiasso (64.), 4-3 Jamie Vardy (79.), 5-3 Leonardo Ulloa, víti (83.). TOTTENHAM - WEST BROM 0-1 0-1 James Morrison (74.). EVERTON - CRYSTAL PALACE 2-3 1-0 Romelu Lukaku (9.), 1-1 Mile Jedinak, víti (30.), 1-2 Fraizer Campbell (54.), 1-3 Yannick Bolasie (69.), 2-3 Leighton Baines (83.). MANCHESTER CITY - CHELSEA 1-1 0-1 André Schürrle (71.), 1-1 Frank Lampard (85.). STAÐAN Chelsea 5 4 1 0 16-7 13 Southampton 5 3 1 1 9-3 10 Aston Villa 5 3 1 1 4-4 10 Arsenal 5 2 3 0 10-6 9 Swansea City 5 3 0 2 8-6 9 Manc. City 5 2 2 1 8-5 8 Leicester 5 2 2 1 9-8 8 West Ham 5 2 1 2 9-8 7 Tottenham 5 2 1 2 7-6 7 Hull City 5 1 3 1 7-7 6 Liverpool 5 2 0 3 7-8 6 Man. United 5 1 2 2 9-8 5 Stoke City 5 1 2 2 4-5 5 Everton 5 1 2 2 11-13 5 Crystal Palace 5 1 2 2 8-10 5 West Brom 5 1 2 2 3-7 5 Sunderland 5 0 4 1 5-6 4 QPR 5 1 1 3 3-11 4 Burnley 5 0 3 2 1-4 3 Newcastle 5 0 3 2 5-11 3 ÚRSLIT OLÍSDEILD KARLA HAUKAR - ÍBV 24-23 (12-15) Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk 6, Árni Steinn Steinþórsson 6, Heimir Óli Heimisson 4, Tjörvi Þorgeirsson 3, Leonharð Geir Hauksson 1, Jón Þorbjörn Jóhannsson 1, Þröstur Þráinsson 1, Egill Eiríksson 1, Einar Pétur Pétursson 1. Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 7, Sig- þór Árni Heimisson 6, Ingimundur Ingimundarson 3, Andri Snær Stefánsson 2, Þrándur Gíslason 2, Heiðar Aðalsteinsson 2, Elías Már Halldórsson 1. VALUR - AFTURELDING 18-23 (10-11) Mörk Vals (skot): Finnur Ingi Stefánsson 4 (5/1), Ómar Ingi Magnússon 3/1 (3/1), Vignir Stefánsson 3 (6), Guðmundur Hólmar Helgason 3 (7), Elvar Friðriksson 2 (6), Kári Kristján Kristjánsson 1 (1), Orri Freyr Gíslason 1 (2), Geir Guðmundsson 1 (7), Atli Már Báruson (1). Varin skot: Hlynur Morthens 20 (42/2, 48%), Stephen Nielsen (1/1, 0%). Mörk Aftureldingar (skot): Árni Bragi Eyjólfsson 4 (5), Pétur Júníusson 4 (5), Jóhann Jóhannsson 4/3 (7/3), Örn Ingi Bjarkason 4 (8), Elvar Ás- geirsson 4 (9), Kristinn Bjarkason 1 (1), Gunnar Þórsson 1 (2), Jóhann Gunnar Einarsson 1 (5). Varin skot: Davíð Svansson 17/1 (35/2, 49%). OLÍSDEILD KVENNA VALUR - KA/ÞÓR 18-14 (8-6) Valur: Kristín Guðmundsdóttir 7, Bryndís Wöhler 2, Sigurlaug Rúnarsdóttir 2, Jónina Líf Ólafsdóttir 2, Marija Mugosa 2, Kristín Bu 1, Vigdís Birna Þor- steinsdóttir 1 og Ragnhildur Hjartardóttir 1. KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 7, Birta Fönn Sveinsdóttir 3, Katrín Vilhjálmsdóttir 2, Paula Chirila 1 og Arna Kristín Einarsdóttir 1. ÍR - ÍBV 24-35 (13-24) ÍR: Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 5, Sigrún Emma Björnsdóttir 4, Brynhildur Bergmann Kjartans- dóttir 3, Hildur María Leifsdóttir 3, Sólveig Lára Kjartansdóttir 3, Petra Waage 1, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 1, Karen Tinna Demiah 1, Margrét Valdimarsdóttir 1 og Helena Jónsdóttir 1. ÍBV: Díana Dögg Magnúsdóttir 7, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 6, Vera Lopez 6, Ester Óskarsdóttir 6, Telma Amado 4, Arna Þyrí Ólafsdóttir 2, Sandra Dís Sigurðardóttir 2, Elín Anna Baldursdóttir 1 og Sandra Gísladóttir 1. FRAM - SELFOSS 33-21 (18-10) Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 10, Marthe Sördal 7, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 3, Ragnheiður Júlíusdóttir 3, Hulda Dagsdóttir 3, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Steinunn Björnsdóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir 1, María Karlsdóttir 1 og Elva Þóra Arnardóttir 1. Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 14, Carmen Palamariu 4, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir 2 og Elena Birgisdóttir 1. STJARNAN - FYLKIR 26-18 (11-5) FÓTBOLTI Næstsíðasta umferð tímabilsins í Pepsi-deild kvenna fer fram í dag en Íslandsmeistarar Stjörnunnar geta tryggt sér titilinn annað árið í röð með því að ná í stig gegn Aftureldingu á heimavelli. Liðið er með sex stiga forystu á Breiðablik og verður einnig meistari ef Blikum mistekst að leggja botnlið ÍA að velli, óháð úrslitum síns leiks. Stjarnan vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 2011 en tímabilið í fyrra fór í sögubækurnar því Garðbæingar fóru í gegnum tímabilið án þess að tapa stigi. Stjörnustúlkur töpuðu svo fyrsta leiknum sínum í ár, gegn Breiðabliki, en hafa síðan ekki tapað leik. Liðið varð bikarmeistari í síðasta mánuði eftir sigur á Selfossi í úrslitaleik. Stjarnan, sem vann einnig deildabikarinn í vor, hefur aldrei unnið stóru titlana tvo á sama árinu. Allir leikir dagsins hefjast klukkan 17.15. - esá Stjarnan getur tryggt sér titilinn í kvöld FORMÚLA 1 Lewis Hamilton bar sigur úr býtum í kappakstrinum í Singapúr í gær en liðsfélagi hans hjá Merc- edes, Nico Rosberg, hætti keppni. Þar með tók Hamilton fram úr Þjóð- verjanum Rosberg í stigakeppni ökuþóra þegar fimm keppnir eru eftir af tímabilinu og 150 stig í pottinum. Hamilton er með 241 stig en Rosberg 238. Sebastian Vettel á Red Bull náði forystunni um tíma eftir síðasta viðgerðarhléið en Hamilton var fljótur að komast aftur fram úr og tryggja sér sinn sjöunda sigur á tímabilinu. Vettel varð annar eftir baráttu við Daniel Ricciardo, liðs- félaga sinn, og Ferrari-manninn Fernando Alonso. Vandræði Rosbergs byrjuðu áður en keppnin hófst og þurfti hann að ræsa af þjónustusvæðinu. Hann hætti á 13. hring eftir að kúplingin virkaði ekki. Reynt var að skipta um stýri en það lagaði ekki vandann. „Stýrið virkaði ekki og þar með ekki bíllinn. Við þurfum að komast til botns í þessu því þetta er ekki í fyrsta sinn sem við erum að glíma við bilanir. Við þurfum að gera bílinn 100 prósent áreiðanlegan,“ sagði Rosberg. - esá Hamilton tók forystu í stigakeppninni SIGURREIFUR Hamilton á verðlauna- pallinum í Singapúr. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI 5-3 sigur Leicester á stór- liði Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær reyndist sögulegur. United hafði aldrei áður fengið á sig svo mörg mörk í leik gegn nýliða í ensku úrvalsdeild- inni og þetta er í fyrsta sinn sem liðið tapar leik eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir. En hetja leiksins var hinn 27 ára Jamie Vardy sem fyrir aðeins þremur árum var að spila í utandeildinni í Englandi. Vardy skoraði eitt mark, lagði upp tvö og fékk bæði vítin sem Leicester skoraði úr í leiknum í gær. Hann hrelldi hinn unga Tyler Blackett, leikmann United, nán- ast linnulaust þar til að sá síðar- nefndi braut á Vardy þegar hann var sloppinn einn í gegn og fékk rautt spjald fyrir. Vardy var að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði í ensku úrvals- deildinni og skoraði einnig sitt fyrsta mark. Hann var valinn maður leiksins og skyldi engan undra. „Þetta hefur ekki verið auðvelt ferðalag hjá mér,“ sagði Vardy hógvær í viðtölum eftir leikinn. Hann var sextán ára gamall þegar honum var neitað um nýjan samn- ing hjá uppeldisfélaginu Sheffield Wednesday og við tók fimm ára dvöl í utandeildunum með liðunum Stocksbridge Park Steels, Halifax Town og Fleetwood Town. Leicester greiddi eina milljón punda fyrir kappann í maímánuði árið 2012 en þá hafði hann slegið í gegn hjá Fleetwood Town. Það var met fyrir leikmann í utandeild- inni en óhætt er að segja að það hafi gengið illa í fyrstu. Svo illa að hann íhugaði að leggja skóna á hilluna. „Já, ég gafst næstum því upp,“ sagði hann í viðtali við BBC í mars síðastliðnum. „En stjórinn [Nigel Pearson] sannfærði mig. Þeir sögðu hvað eftir annað að þeir hefðu trú á mér og héldu tryggð við mig. Ég er ánægður með að geta endurgoldið traust hans nú.“ Vardy skoraði sextán mörk í 37 leikjum með Leicester í fyrra og virðist allt eins líklegur til að halda uppteknum hætti í úrvals- deildinni í vetur. Leicester hefur komið liða mest á óvart í upphafi tímabilsins og er með átta stig að loknum fimm umferðum. Það er sérstaklega áhugaverður árangur í ljósi þess að liðið hefur mætt United, Arsen- al, Chelsea, Everton og Stoke á útivelli, þar sem Leicester hafði betur. Eina tapið til þessa kom gegn Chelsea á Stamford Bridge. „Þetta er auðvitað magnaður sigur,“ sagði Pearson eftir leikinn í gær. „Það hefur ekki verið auðvelt að koma liðinu upp en nú erum við hér og erum við toppinn. Nú snýst allt um að halda okkur hér.“ Umfjöllun um alla leiki helgar- innar má finna á íþróttavef Vísis, sem og samantektarmyndbönd úr öllum leikjum. Chelsea tap- aði sínum fyrstu stigum á tíma- bilinu, gerði jafntefli við meist- arana í Manchester City, 1-1, þar sem gamla Chelsea-hetjan Frank Lampard skoraði jöfnunarmark City eftir að hafa komið inn á sem varamaður. eirikur@frettabladid.is Utandeildarhetjan sá um stjörnur Van Gaal Jamie Vardy átti þátt í öllum fi mm mörkum Leicester í mögnuðum 5-3 sigri liðsins á stjörnum prýddu liði Manchester United. Lærisveinar Louis Van Gaal komust í 3-1 forystu í leiknum en nýliðarnir frá Leicester gáfust aldrei upp. LYGILEG SAGA Jamie Vardy átti ótrúlegan leik gegn Manchester United í gær þar sem nýliðarnir í Leicester höfðu betur, 5-3. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.