Akureyri - 09.01.2014, Blaðsíða 2
2 9. janúar 2014
Tjái mig ekki um þessa
sorpblaðamennsku
„Ég vil ekkert tjá mig um sorp-
blaðamennsku 365 miðla Jóns Ás-
geirs,“ sagði Leifur Hallgrímsson,
framkvæmdastjóri Mýflugs þegar
Akureyri vikublað bar
undir hann upplýsingar og
ávirðingar um að vinnulag
og öryggis hafi ekki verið
gætt sem skyldi.
Mikael Tryggvason,
bróðir sjúkraflutninga-
manns sem fórst í flugslysi
í ágúst þegar sjúkraflutn-
ingavél Mýflugs brotlenti á
kappakstursbraut Bílaklúbbs Akur-
eyrar, hefur sagt í fjölmiðlum 365 að
gera þurfi opinbera lögreglurannsókn
á rekstri Mýflugs í kjölfar slyss þar
sem tveir létust við Hlíðarfjallsveg um
verslunarmannahelgina. Mikael teljur
að misræmi sé milli framburðar vitna
og ýmiss konar rannsóknargagna og
þess sem gefið hefur verið út í bráða-
birgðaskýrslu Rannsóknarnefndar
samsönguslysa. Hann hefur sagt að
rannsóknin til þessa kunni að vera
lítils virði ef ekki eigi að leiða sann-
leikann í ljós. M.a. er tekist á um
merkingu þess að flugvél missi hæð
eins og segir að gerst hafi í frumskýr-
slu eftirlitsaðila. Af myndum af dæma
flaug flugstjórinn of lágt með hörmu-
legum afleiðingum.
Strax sama daga og
slysið varð, þar sem tve-
ir menn létust, flugstjóri
og sjúkraflutningamaður,
bróðir Mikaels Tryggva-
sonar, gáfu vitni sig fram
og töldu í samtölum við Ak-
ureyri vikublað að varúðar-
rregur hefðu verið brotnar
þennan dag. Vegna þess hve málið
er viðkvæmt hafa ýmsir fjölmiðlar
farið varlega í birtingu upplýsinga
en nú þegar aðstandendur hinna
látnu hafa stigið fram og læknir sem
flaug mörg flug með Mýflugi hefur
gagnrýnt glannaskap í fluginu inn-
an fyrirtækisins hafa kviknað nýjar
spurningar. Mörg vitni hafa nefnt
hetjuskap starfsfólks fyrirtækisins
þegar um líf sjúklinga hefur verið
að tefla en kastljósið beinist nú að
háttum flugmanna þess á gáska-
fullum stundum. Akureyri vikublað
hefur áður spurt framkvæmdastjóra
Mýflugs hvort rannsóknarniðurstaða,
þ.e. hvort meint gáleysi flugstjórans
kunni að hafa áhrif á trygginga- eða
bótamál. Hann vildi ekki láta hafa
neitt eftir sér opinberlega um það.
Þekkt er samkvæmt sérfræðingi
sem blaðið ræddi við að mórall og
vinnusiðferði innan flugfélaga sé
tekið til sérstakrar skoðunar að
loknum harmleik eins og þeim er
varð um verslunarmannahelgina á
Akureyri. Leifur Hallgrímsson seg-
ir að menn hafi verið harmi slegnir
eftir atburðinn og í raun eitt stórt
spurningarmerki. Flugstjórinn sem
flaug vélinni hafi verið einn sá besti
sem félagið hafi haft í vinnu.
Ómar Ragnarsson, einn reyndasti
flugmaður Íslendinga segir eftir að
hafa horft á myndbandið af slysinu:
„Rannsókn er ekki lokið. Það er aðal-
atriðið. Þó sést að vélin hallar minnst
70 gráður, hvernig sem á því stendur.
Í þeirri stöðu getur hún ekki haldið
hæð nema á 250 mílna hraða (400
km) sem er alger hámarksflughraði
vélarinnar.“ a
LEIFUR
HALLGRÍMSSON
Stjórnsýsluleg óhæfa?
„Rekstrarumsvif Sambands íslenskra
sveitarfélaga eru stjórnsýsluleg
óhæfa og millistjórnendaþensla í
sveitarfélögum og innan grunnskól-
anna leiðir ekki til bættrar kennslu
og aukinnar þjónustu við börn og
foreldra.“
Þetta skrifar Benedikt Sigurðar-
son í aðsendri grein í blaðinu í dag
en þar bendir hann á að fjármunir
sveitarfélaga fari í allt annað en þeir
eigi að fara. Fyrir það gjaldi íslensk
skólabörn.
„Alltof margir kennarar eru því
miður í hálfgerðri gíslingu sinna
eigin stéttarfélaga – undirlagðir af
innihaldsrýrri kröfu um að hver og
einn skuli fremur vera sérfræðing-
ur í háskólakennslugreinum,“ segir
Benedikt ennfremur.
Benedikt er sérfræðingur í skóla-
stjórnun og stjórnsýslu – með meist-
arapróf frá University of British Col-
umbia í Vancouver í Kanada. Hann
var m.a. skólastjóri í Barnaskóla
Akureyrar (Brekkuskóla) 1985-1998
og ritar grein sína til að bregðast við
dalandi árangri íslenskra skólabarna
skv. Alþjóðlegri PISA-könnun.
Benedikt reifar nokkrar leiðir
til bóta t.d. með því að styðja for-
eldra í uppeldishlutverkum sínum
og með því að krefja skólastjóra og
kennara um að leiðbeina foreldrum
og kalla þá til samábyrgðar og til
liðs við börnin og árangur þeirra
og hamingju. „Við megum ekki láta
„lukkuriddara og besservissera“ –
villa okkur sýn eina ferðina enn – í
þeim vafasama tilgangi að maka sinn
eigin krók á kostnað heildarinnar.“
Sjá bls. 12
Segir fulla þörf á
lögreglurannsókn
Faðir drengs sem fórst í flug-
slysi í Skerjafirði um verslunar-
mannahelgi árið 2000 gagnrýnir
niðurstöður eins og þær birtast í
frumskýrslu Rannsóknarnefndar
flugslysa vegna flugslyssins við
Hlíðarfjallsveg. Faðirinn, Friðrik
Þór Guðmundsson blaðamaður,
lagðist í kjölfar slyssins í miklar
sjálfstæðar rannsóknir og fann
sitthvað athugavert í vinnulagi
rannsakenda þess flugslyss. Hann
hefur rýnt í flugslysið sem varð
um síðustu helgi til samanburðar.
„Samkvæmt myndböndunum
af sjúkraflugvélinni kom hún
í mikilli beygju og á ofsahraða
yfir akstursbrautina – og er ekki
að “missa hæð” í venjulegum
skilningi slíkra orða. Mig langar
ekki að ætla Rannsóknarnefnd
samgönguslysa þá iðju, að af-
flytja staðreyndir, en í ljósi þess
ósamræmis sem er á milli bráða-
birgðaskýrslu RNS og þess sem
myndböndin sýna og sjónarvottar
segja – að ekki sé talað um vitnis-
burð flugmannsins sem lifði – þá
er full þörf á ítarlegri rannsókn
af hálfu lögreglunnar, rannsókn
sem hefur ekki þær takmarkan-
ir og þrýsting sem RNS kann að
búa við,“ segir Friðrik Þór í viðtali
við Akureyri vikublað. „Slík saka-
málarannsókn virðist mér raunar
óumflýjanleg og ekki háð því hvort
aðstandendur eða aðrir óski eftir
opinberri rannsókn. Allt hrópar á
ítarlega lögreglurannsókn.“
Skiptar skoðanir hafa verið
innan samfélagsins um birtingu
365 af myndum af flugslysinu við
Hlíðarfjallsveg. Hafa margir bent
á að seint yrði sýnt myndband af
bílslysi í fréttum þar sem fólk léti
lífið. Friðrik Þór kennir blaða-
mennsku við Háskóla Íslands og
hann telur það góða blaðamennsku
að hafa birt myndirnar. „Ég fellst á
rökin fyrir myndbandabirtingunni
af flugslysinu samhliða fréttaút-
tektinni. Forvarnar-. aðhalds- og
upplýsingagildið er óumdeilanlegt
að mínu mati. Mig varðar og miklu
persónulega að viðkomandi fjöl-
skyldur voru upplýstar fyrirfram
um myndbandabirtinguna. Þetta
eru erfið myndskeið, en þau þjóna
mikilvægum tilgangi.“
Þótt bæði flugslysið í fyrra
og slysið árið 2000 hafi gerst um
verslunarmannahelgi, segir Frið-
rik Þór að sitthvað sé ólíkt með
þeim. „Þetta flugslys er á margan
hátt ærið ólíkt Skerjafjarðarflug-
slysinu. Að því frátöldu auðvitað
að flugvél fórst og fólk dó eða
slasaðist. En það sem auðvitað er
sammerkt er að rannsókn slysa
af þessu tagi, hvort sem það er
af hálfu RNS eða lögreglunnar,
verður að vera traust og trúverð-
ug og niðurstöður réttmætar og
áreiðanlegar. Öðruvísi drögum við
ekki réttar niðurstöður og lærdóm
af því sem átti sér stað. Nýjustu
upplýsingar í þessu máli benda
eindregið til þess að lögreglan
verði að komast að algerlega sjálf-
stæðum niðurstöðum og leita ráða
og álits sérfræðinga sem óháðir
eru RNS.“ a
UNDRAST
VERKFÆLNI
Sigurjón Þórðarson, fulltrúi í
minnihluta sveitarstjórnar, gerir
athugasemdir við að byggðaráðs-
fundur í sveitarfélaginu Skagafirði
sem hafði verið auglýstur sl. fimmtu-
dag, 2. janúar sl. féll niður.
„Það mat formanns byggðaráðs
að fá mál séu þess verðug að fá um-
fjöllun byggðaráðs um þessar mund-
ir kemur á óvart,“ segir Sigurjón.
„Það virðist sem ekki
einni krónu sé úthlutað til
Heil brigðis stofnunarinnar á
Sauðárkróki í fjárlagafrumvarpinu.
Einnig er rétt að þrýsta á um skipan
sýslumanns á Sauðárkróki. Í öðru lagi
er óskað eftir því að byggðaráð taki
til umfjöllunar fjöldauppsagnir FISK
sem hafa verið mjög í umræðunni.“
ví
si
r.
is