Akureyri


Akureyri - 13.02.2014, Side 1

Akureyri - 13.02.2014, Side 1
6. tölublað 4. árgangur 13. febrúar 2014 VI KU BL AÐ Frystigámar / Sala og leiga / 20 og 40 ft. Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Bjóðum sérlausnir, sniðnar að þörfum viðskiptavina. Hafðu samband! Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100 stolpi@stolpiehf.is | www.stolpiehf.is ATHYGLI EHF.-01-13 Hádegistilboð Ostborgari, franskar og gos á 1000 kr. frá 11:30-14:00 alla virka daga. Fjöldskyldutilboð: 4 ostborgarar, stór skammtur af frönskum, 2 l. gos og 2 kokteilsósur á 3.790 kr. 3 ostborgarar, miðstærð af frönskum og gos á aðeins 2900 kr. Kraftbílar ehf. // Draupnisgötu 6 // 603 Akureyri // Sími 464 0000 // kraftbilar@kraftbilar.is www.kraftbilar.is Hjólastillingar á bílum af öllum stærðum og gerðum Framrúðuskipti Allar almennar bíla og vélaviðgerðir Vetrarskoðun Tekist á um störf og námsleyfi Gunnar Gíslason, sigurvegari sjálfstæð- ismanna í prófkjöri á Akureyri, átti fund með bæjarstjóra í fyrradag um stöðu Gunnars sem fræðslustjóra. Gunnar sagði ekki starfi sínu lausu á fundinum. Tekist er á um hvort heppilegt teljist að Gunn- ar gegni fræðslustjórastöðu sinni áfram eftir prófkjörið um síðustu helgi og hvort Gunnari beri að endurgreiða námsleyfi sem hann fékk nýverið í þágu fræðslumála á Akureyri. Bæjarlögmaður hefur unnið álit þar sem hann kemst að þeirri niður- stöðu að starf bæjarfulltrúa ígildi ekki áframhaldandi starfi hjá bænum. Í ljósi þeirrar niðurstöðu má álykta að Gunnar gæti þurft að greiða hluta námsleyfis síns til baka ef hann hyggst skipta á fræðslu- stjórastöðunni og bæjarfulltrúastólnum. Ný staða gæti þó komið upp ef Gunnar verður bæjarstjóri að loknum kosningum. Gunnar fékk námsleyfi sem fræðslu- stjóri Akureyrarbæjar í 9 mánuði frá hausti 2012 til vors 2013. Í 6. grein sam- þykktar Akureyrarbæjar um námsleyfi segir: „Styrkur til námsleyfis umfram 3 mánuði er bundinn skilyrði um áfram- haldandi starf hjá bænum eftir að leyfi lýk- ur sem nemur þreföldum leyfistímanum.“ Gunnar segir að ef það komi í ljós að hann verði talinn hafa hætt störf- um hjá bænum við það að vera kosinn bæjarfulltrúi, þá beri sér augljóslega að greiða til baka þann hluta námsleyfisins sem hann sé ekki búinn að vinna af sér. Gunnar fékk námsleyfi sem nemur mörg- um milljónum króna af almannafé til að vinna að meistaraverkefni í stjórnun menntastofnana. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjar- stjóri á Akureyri, segist ekki hafa brugð- ist sérstaklega við þeim vilja Gunnars að halda starfi sínu áfram sem fræðslustjóri fram að kosningum. Tvær hliðar a.m.k. séu á þessu máli. Staða Gunnars verður rædd á bæjarráðsfundi í dag. a ÞESSI UNGI LISTAMAÐUR rýnir hér í verk á samsýningu nemenda úr leikskólanum Álfaborg á Svalbarðsströnd. Sýningin var opnuð á Safnasafninu í tilefni af Degi leikskólans í síðustu viku. Sýningin er hluti af söfnun fyrir fórnarlömb fellibyls sem gekk yfir Filipseyjar fyrir jól. Völundur

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.