Akureyri


Akureyri - 13.02.2014, Blaðsíða 18

Akureyri - 13.02.2014, Blaðsíða 18
18 6. tölublað 4. árgangur 13. febrúar 2014 AÐSEND GREIN KRISTÍN AÐALSTEINSDÓTTIR Ástandið, hermennirnir og gula rósin Haustið 1997 var ég á leið til Bristol til ársdvalar en var ekki búin að finna mér húsnæði. Hér voru þá staddir hjá mér gestir, Mary og Gordon Hal- ford sem búa nærri Bristol. Ég hafði á orði að þau mættu láta mig vita ef þau heyrðu eða vissu um húsnæði miðsvæðis í Bristol. Viku síðar hringdi Gordon og sagði að þau hefðu heyrt af lausri íbúð sem ég gæti fengið og ég myndi sennilega ekki trúa því, en eigandinn, Geoffrey Brazier talaði ís- lensku. Ég hringdi út og viti menn, það stóð heima. Við töluðum saman á íslensku. Nokkru síðar var ég búin að koma mér fyrir í íbúð Jean og Geoffrey við Clifton Wood Road í Bristol. Í ljós kom að Geoffrey hafði verið breskur hermaður á Íslandi á árunum 1942- 1944 og dvaldi aðallega á Akureyri og í Borgarnesi. Hann var sendur til Íslands og var ætlað að vera túlkur því hann talaði norsku, hafði verið í Noregi sem unglingur með foreldr- um sínum. Ekki dugði norskan hér á landi og var hann því sendur til Ólafsfjarðar í eins konar einangrun í tvo mánuði til að læra málið. Við töluðum oftast saman á íslensku árið mitt í húsinu hans, tæpum 50 árum eftir dvöl hans hér á landi. Geoffrey heillaðist af Íslandi og sagðist hafa byrjað að mála myndir sem varð svo til þess að eftir að stríðinu lauk, stundaði hann myndlistarnám í London og lifði síðan alla tíð af mynd- listinni. Þau hjónin voru af- skaplega elskuleg og ég átti margar góðar stundir með þeim. Í byrjun des- ember þetta ár, þegar við vorum orðið vel kunnug, spurði ég Geoffrey hvort hann hefði ekki átt kærustu á Íslandi. Hann gaf ekki mikið út á það og en svo var það skömmu fyrir jól, þegar ég sat við eldhúsborðið með honum, að hann kom með gamlan slitinn skókassa og vildi sýna mér myndir sem hann átti frá Íslandsdvölinni. Þar var margt skemmtilegt að sjá, t.d. margar vetr- armyndir frá Akureyri. Hann sýndi mér líka myndir af þremur stúlkum og hermönnum í lautarferð, mynd af þessum stúlkum fyrir framan kaupfélagshúsið í Borgarnesi og síðan stærri mynd af einni stúlkn- anna. Mér var nokkuð ljóst að þessi stúlka hafði verið honum kærari en hinar. Mér datt í hug að spyrja hvort hann vildi ekki að ég hringdi í þær til að bera þeim kveðju hans eða fyndi út hvort þær væru á lífi. Þá sagði Goeffrey á ensku: „I would be very pleased.“ Milli jóla og nýárs ætlaði ég að fara að hringja en hugsaði með mér hvað ég væri eiginlega búin að koma mér í og leist alls ekki á blikuna. Ég hafði mig þó í að hringja í konuna sem var frænka þeirrar sem ég taldi hafa verið Geoffrey kærust. Ég kynnti mig og sagði henni að ég ætti að flytja henni kveðju frá Geoffrey Brazier. Hún varð vægast sagt mjög glöð og sagði að hann hefði verið svo mikill herramaður (þ.e. ekki hermað- ur). Við spjölluðum dágóða stund og ég bað hana að láta frænku sína vita að ég myndi hringja í hana eftir tvo daga. Það gerði ég og þá höfðu þær komið sér saman um að hitta mig þegar ég færi aftur út því þær vildu senda honum pakka. Skömmu eftir áramót þegar ég var komin til Reykjavíkur og á leið vestur í bæ til að hitta konurnar, kom ég við blómabúð og keypti fimm verulega stórar og fallegar gular rósir. Ég man meira að segja ekki eftir að hafa nokkurn tíma, hvorki fyrr né síðar keypt gular rósir og alls ekki svona stórar. Mér var tekið með kostum og kynjum og ég færði Ástu (dulnefni) að sjálfsögðu rósirnar. Hún hafði dekkað borð og allt mjög var mjög elskulegt. Við spjölluðum lengi. Þegar ég var að fara spurði ég hana hvort hún ætti ekki mál- verk eftir Geoffrey. Hún sagði að svo væri og fór með mig inn í annað herbergi. Þar hékk ein stór mynd á vegg. Á myndinni var máluð ein stór GUL rós. Ég fór hlaðin gjöfum, myndum og með bréf til Bristol og færði Geoffrey. Daginn eftir skrapp ég niður og hitti hann. Hann var mjög ánægður með sendinguna, ekki síst að Ásta hafði sent honum nýja mynd af sér. Hann sýndi mér myndina og sagði: „Er hún ekki falleg, hún hefur ekkert breyst.“ Þau Geoffrey héldu bréfasambandi þar til Geoffrey lést árið 2005. a FXNytro M-TX árg. 2014 Verð nú frá 2.690.000 VERÐLÆKKUN! Vegna styrkingar krónunnar býður Arctic Trucks nú hina áreiðanlegu og eyðslugrönnu FXNytro M-TX sleða með 100 þúsund króna afslætti! www.yamaha.is Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 Á ÍSLANDI Untitled-1 1 12.2.2014 13:43:56 ID: I0083 NAME Geoffrey Denis BRAZIER SEX M BIRTH 13 SEP 1919 in Shrewsbury, Shropshire DEATH JAN 2005 in York, Yorkshire OCCUPATION Cabinet Maker RESIDENCE 1999 Crickhowell FATHER Alfred Walter Cyril Brazier b: ABT JUN 1895 in Atcham, Shrewsbury RESIDENCE ABT 1936 Spent childhood in Norway MOTHER May Henning b: ABT SEP 1899 in Hammersmith, Ful- ham, London MARRIAGE Jean Gwendolen McCann b: 15 NOV 1921 in South Bank, Birkenhead, Cheshire MARRIED 23 SEP 1952 in St Stephens, Prenton, Cheshire CHILDREN Andrew Donald BRAZIER b: 17 NOV 1953 in Bristol, Avon Andrew Donald BRAZIER Hugh Douglas BRAZIER Fiona Ruth BRAZIER Janet Hilary BRAZIER KRISTÍN AÐAL- STEINSDÓTTIR TIL SÖLU Gisthúsið Fosshóll í Þingeyjarsveit. Frábært tækifæri í ferðaþjónustu. Selt sem ehf. Verð 140.000.000

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.