Akureyri - 13.02.2014, Page 2
2 6. tölublað 4. árgangur 13. febrúar 2014
—Cheyenne's leading office supply store for over 50 years—
is proud to announce the acquisition of
A. Datum Corporation,
featuring the following:
FABRIKAM, INC.
Loksins á Íslandi RAIKO ÍSBRJÓTURINN
Frístundahús ehf Sólbakka 27 310 Borgarnes
www.fristundahus.is
fristundahus@gmail.com
Frístundahús ehf
Um 60% útgjalda í menn-
ingunni fara í húsaleigu
Áform bæjaryfirvalda á Akureyri um
sölu Deiglunnar sæta harðri gagn-
rýni listamanna. Í grein sem Guðrún
Harpa Örvarsdóttir birtir í blaðinu í
dag fyrir hönd Myndlistarfélagsins
á Akureyri er fyrirhuguð sala for-
dæmd. Aðalheiður Eysteinsdóttir
skúlptúrlistamaðursegist vona að
Akureyrarstofa láti ekki tímabundna
erfiðleika í rekstri bæjarins forgera
20 ára uppbyggingarstarfi.
„Íbúar Akureyrar eru ekki öðru-
vísi en annað fólk, þeir vilja blóm-
lega menningu. Sem ein af þeim
sem staðið hafa vaktina í Listagil-
inu frá upphafi menningarstarfsemi
þar, veit ég að bæjarbúar eru afar
þakklátir fyrir listir og menningu.
Ekki þarf annað en að skoða aðsókn
á menningarviðburði í Listagilinu í
samanburði við aðra sýningarstaði í
landinu til að sjá það. Ég held að ráð
væri að endurskoða þessar söluhug-
myndir,“ segir Aðalheiður Eysteins-
dóttir í færslu um málið.
Vegna formlegra mótmæla
stjórnar Myndlistarfélagsins á
Akureyri segir Þórgnýr Dýrfjörð,
framkvæmdastjóri Akureyrarstofu,
að ályktun félagsins verði tekin til
umræðu í stjórn Akureyrarstofu í
dag, fimmtudag. Þá komi væntanlega
í ljós hvort afstaða stjórnarinnar til
sölunnar hafi breyst. Ákvörðunin
um sölu á Deiglunni og gestavinnu-
stofunni hafi verið tekin í tengslum
við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið
2014. Á öllum stigum hafi komið
fram að hún væri umdeild og mik-
ilvæg rök bæði með og á móti henni.
„Rökin með henni snúast um að draga
frekar úr fasteignakostnaði í mála-
flokknum en framlögum til menn-
ingarstarfseminnar sjálfrar. Um 60%
útgjalda bæjarins til menningarmála
fara nú í húsaleigu. Þessi ákvörðun
var síðast til umræðu fyrir skömmu
þegar Halla Björk Reynisdóttir for-
maður stjórnar Akureyrarstofu flutti
stöðuskýrslu stjórnarinnar í bæjar-
stjórn þann 4. febrúar. Þá kom fram
í máli hennar að ekki væri útilok-
að að hennar hálfu breyta þessari
ákvörðun ef fram kæmi hugmynd
sem hefði sambærileg fjárhagsleg
áhrif.
Blaðið spurði Þórgný hver hans
skoðun persónulega væri í málinu
Hann sagði það almennt ekki
samræmast hlutverki embættis-
manna að berjast með eða á móti
ákvörðunum sem teknar væru af við-
komandi nefndum og staðfestar af
bæjarstjórn. Frá þeim bæjardyrum
séð skiptir mín persónulega skoðun
ekki máli en ég get þó sagt að ég
vona að húsnæðið sem um ræðir
verði áfram notað undir menningar-
starfsemi af einhverjum toga. Ég get
líka sagt að það hefur komið fram
í umræðum um málið að nýting á
gestavinnustofunni er mjög góð og
mikilvægt sé að koma á fót samb-
ærilegu húsnæði fari svo að íbúðin
seljist.“ a
Nokkuð yfir við-
miðunarmörkum
Inga Þöll Þórgnýsdóttir, bæjarlög-
maður Akureyrar, segir vegna hins
svokallaða rennibrautarmáls að þegar
komin var fram kæra frá aðila sem
bauð í verkið Rennibraut-uppgöngu-
hús í Sundlaug Akureyrar, hafi komið
í ljós við könnun máls að fram hafði
farið verðkönnun af hálfu Fasteigna
Akureyrar sem formlega séð er ekki
útboð. „Heimilt er að viðhafa verð-
könnun ef innkaup eða þjónusta er
undir þeim verðviðmiðunarmörkum
sem lög um opinber innkaup kveða
á um. Þau tilboð sem bárust reynd-
ust hins vegar nokkuð yfir þeim við-
miðunurmörkum,“ segir Inga Þöll.
Þegar stöðvunarkrafa kom frá
kærunefnd útboðsmála var lagt til
við stjórn Fasteigna að draga ferlið
til baka enda var ekki búið að ganga
til samninga. Á fundi stjórnar Fast-
eigna 24. janúar 2014 var bókað:
,,Í ljósi úrskurðar kærunefndar-
innar um stöðvunarkröfu ákveður
stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar
að draga útboðsboðsferlið til baka
enda hefur ekki verið gengið til
samninga”. a
GOLFARAR SJÁ UM FÓTBOLTA-
VELLINA
Golfklúbbur Akureyrar, Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar
hafa undirritað samstarfssamning sín á milli þess efnis að Golfklúbbur
Akureyrar taki að sér allt viðhald á knattspyrnuvöllum félaganna. Þrjú af
stærstu íþróttafélögum Akureyrar sameina þar með krafta sína og vinna
saman að bættum gæðum á völlum félaganna. Undirskriftin fór fram í
Hamri félagsheimil Þórs og tók Völundur Jónsson, ljósmyndari hjá Akureyri
vikublaði, myndina við það tækifæri.
Nýr rektor tekur við HA
„Ég ætla ekki að sækja um endur-
nýjun á umboði sem rektor. Ég tel
rétt að hægja á mér í vinnuálaginu,“
segir Stefán B. Sigurðsson, rektor
Háskóla Íslands, í samtali við Ak-
ureyri vikublað.
Hann kynnti ákvörðun sína í
bréfi til samstarfsfólks sl. mánudag
en samkvæmt lögum er ráðið í starf
rektors til fimm ára í senn. Þann 1.
júlí í sumar rennur ráðningartími
hans út og hefur staðan verið auglýst
eins og Akureyri vikublað greindi
fyrst fjölmiðla frá.
„Að vel íhuguðu máli hef ég tekið
þá ákvörðun að sækjast ekki eftir
endurnýjun stöðu minnar sem rektor,“
segir m.a. í bréfi rektors.
Í samtali við blaðið segir rektor
að hann verði rúmlega 66 ára gamall
þegar ráðningartíminn rennur út í
sumar. Hann muni þó starfa áfram
við skólann og sinna kennslu og
rannsóknum. a
Vísbendingar um nýja nýlendustefnu
Í ritrýndri grein sem doktor Ed-
ward Huijbens skrifaði í félagi við
annan fræðimann í Current Issues
in Tourism árið 2013 fer hann yfir
vandamál sem geta skapast þegar
taka þarf stjórnmálalegar ákvarð-
anir um fjárfestingu á jaðarsvæðum
sem glíma við efnahagslega stöðnun
og klofning meðal fólks.
„Þessi svæði þurfa að vera vakandi
fyrir því hvernig hnattvætt fjármagn
reynir að fóta sig í nýjum jarðvegi,“
segir dr. Edward.
Mikla athygli vakti og fór m.a.
á heimsvísu þegar Akureyri viku-
blað birti í síðustu viku viðtal við
Heyman Pascal, fyrrum yfirmann hjá
ÖSE, sem varaði við því að norður-
ljósarannsóknir Kínverja í Reykjadal
kynnu að vera yfirvarp. Pascal hvatti
Íslendinga til varúðar gegn valdi
Kína. Sambærilegar grunsemd-
ir hafa vaknað um áform Huang
Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum.
Fræðimennirnir Edward Huijbens
við Rannsóknamiðstöð ferðamála
við Háskólann á Akureyri og Dom-
inic Alessio við Richmond College
í London birtu grein sína um þau
mál í fræðiritinu Current Issues in
Tourism seint á síðasta ári.
Í grein Edwards og Alessio segir
að breytingar á norðurslóðum séu
sannarlega á áhugasviði Kínverja og
umdeild fjárfesting Nubo á Gríms-
stöðum á Fjöllum sé sannarlega angi
af því. Ekki geti það verið tilviljanir
að forsætisráðherra Kína heimsótti
Ísland í apríl 2012 og að nokkru síðar
kom ísbrjóturinn Snædrekinn hing-
að. Í upplifunarhagkerfi nútímans er
fjárfesting í ferðaþjónustu alveg jafn
álitleg eins og fjárfesting í námum
eða landi,“ segir Edward.
Í greininni segir að nýlendur fyrri
tíma séu kannski horfnar af sjón-
arsviðinu en séu til í dag undir nýjum
nöfnum og með nýjum skilgreining-
um um alla veröld. Þegar ósnortin
víðerni verði þekktari og verðmætari
og þau sé helst að finna á jaðarsvæð-
um í efnahaglegum og félagslegum
skilningi, sé leiðin greið til að setja
upp nýlendur hins hnattræna fjár-
festingaheims. Í tilviki Nubos í formi
ferðaþjónustu. a
EDWARD HUIJBENS Engin tilviljun að
Ísbrjóturinn sigldi hingað og lagðist við
höfn bæði á Akureyri og í Reykjavík í kjöl-
far heimsóknar forsætisráððherra Kína
hingað, segir í ritrýndri fræðigrein.
A
ku
re
yr
i V
ik
u
bl
að
/
V
öl
u
n
du
r