Akureyri - 13.02.2014, Blaðsíða 6
6 6. tölublað 4. árgangur 13. febrúar 2014
#ferkantað
Ferkantað kjöt í ferkantað brauð
Taktu mynd af ferköntuðum hlutum og póstaðu þeim
á Instagram merkt #ferkantað
Vikulega drögum við út ferkantaða ljósmyndara
og gefum þeim ferkantaða hamborgara.
#ferkantað #ferkantad
Bræður berjast – Björn hirðir
ekki um álit Aðalsteins
Aðalsteinn Árni Baldursson, for-
maður verkalýðsfélagsins Framsýnar,
hefur deilt hart á forystu ASÍ undan-
farið. Hann hefur m.a. brigslað Birni
Snæbjörnssyni um trúverðugleika
með því að spyrja
hvort Birni sé
treystandi til að
gæta hagsmuna
láglaunahópa
á sama tíma og
Björn hafi þeg-
ið launahækk-
un upp á 374%.
Björn Snæ-
björnsson er for-
maður Einingar-
Iðju á Akureyri
og einnig formaður Starfsgreina-
sambans Íslands.
„Sérstakur dagur, fundur með
svokölluðum félögum í verkalýðs-
hreyfingunni. Formaður SGS, Björn
Snæbjörnsson, telur ekki hægt að
starfa með formanni Framsýnar
og Vl. Akraness og safnar liði. Þeir
séu með of miklar kröfur fyrir
hönd verkafólks, heilar kr. 20.000
á mánuði,“ skrifaði Aðalsteinn Árni
á Facebook síðu
sína.
„Það þýðir
að laun verka-
fólks hækki
úr kr. 192.000
í kr. 212.000 á
mánuði. Þetta er
ófært segir vin-
ur litla manns-
ins frá Akur-
eyri, maðurinn
sem fékk 374%
launahækkun á
síðasta aðalfundi Stapa, lífeyrissjóðs.
Hann var með um kr. 42.000 á mánuði
og hefur nú 160.000 á mánuði. Eru
hans félagsmenn virkilega ánægðir
með þetta, maðurinn sem barðist
fyrir því að félagsmenn Einingar
samþykktu 2,8% launahækkun. Ef
svo er, skil ég ekki verkalýðsbaráttu
á Íslnadi, því miður,“ skrifaði Aðal-
steinn Árni.
SPURT UM TRÚVERÐUGLEIKA
Akureyri vikublað sendi Birni fyrir-
spurn vegna málsins og spurði hvort
trúverðugleiki hans stæði samur í
ljósi ummæla Aðalsteins og upplýs-
inga. Í svari frá Birni Snæbjörnssyni
segir að á ársfundi Stapa vorið 2013
hafi verið lagðar fram tvær tillögur
um stjórnarlaun, önnur frá þrem-
ur launþegafulltrúum í stjórninni
um að stjórnarlaun hækkuðu úr kr.
42.000 í kr. 60.000 á mánuði, og hafi
tillagan verið samþykkt fyrir fund-
inn af öllum formönnum félaganna,
þar á meðal formanni Framsýnar á
Húsavík, sem eigi aðild að sjóðnum
á Norður og Austurlandi. Þrír at-
vinnurekendur í stjórn Stapa hafi
komið með aðra tillögu um að hækka
stjórnarlaunin í 80.000 krónur.
„Ég, ásamt öðrum formönnum
stéttarfélaganna, lögðumst gegn
þeirri tillögu, en þar sem hún gekk
lengra var hún borin upp fyrst, (skv.
gildandi reglum). Hún var samþykkt
með rúmlega 50% atkvæða í leyni-
legri atkvæðagreiðslu. Þetta var ekki
í anda þess sem ég hafði hugsað,“
segir Björn.
„Þegar stjórnarkjöri var lokið
báðu félagar mínir í stjórninni mig
að taka að mér formennskuna þar
sem ég hafði mesta reynslu í stjórn-
arsetu í lífeyrissjóðnum.
Skv. reglum sjóðsins hefur for-
maður stjórnar tvöföld stjórnarlaun
og því er sú staða uppi nú. Stjórn-
arformennskan stendur yfir í eitt ár,
þannig að á ársfundinum í vor mun
ég verða aftur almennur stjórnar-
maður í eitt ár, en þá verður mínu
kjörtímabili lokið. Þess skal getið
að stjórnarmaður frá Einingu-Iðju
í lífeyrissjóðnum Stapa er kosinn á
aðalfundi félagsins annað hvert ár,“
segir Björn.
VILJI FÉLAGSMANNA RÁÐI
En hvað segir Björn Snæbjörnsson
við því að hann vilji ekki hækka
laun félagsmanna Einingar-Iðju um
20.000 krónur?
„Ég stóð að kröfugerð Starfs-
greinasambands Íslands, sem fulltrúi
Einingar-Iðju, og vann að sjálfsögðu
af fullum heilindum að þeirri kröfu-
gerð. Það kom hins vegar á daginn að
allt var fast í viðræðum á milli SGS
og SA og var þá reynt að finna ein-
hverjar leiðir til að ná saman samn-
ingi til skamms tíma. Niðurstaðan
varð sú, sem menn kusu svo um og
var felld hjá um 50% félagsmanna
ASÍ. Við, sem sitjum sem fulltrúar
Einingar-Iðju í samninganefndinni
hefðum að sjálfsögðu viljað fá 20.000
króna hækkun á taxtana, og meira
en það, en samningar geta aldrei
orðið bara ósk annars aðilans. Samn-
ingar eru samningar milli aðila
Fulltrúar Einingar-Iðju lögðu
samninginn hlutlaust fyrir sína félags-
menn með þeirri einu hvatningu að
þeir tækju þátt í atkvæðagreiðslunni.
Þegar samningurinn hjá okkur var
felldur, boðuðum við til tveggja funda,
annars með aðalsamninganefnd fé-
lagsins, sem 57 manns eiga sæti í, og
hins með trúnaðarmönnum í þeim
greinum sem féllu undir almenna
samninginn. Gerð var skoðanakönn-
um hjá þeim sem mættu um ástæður
þess að samningurinn var felldur. 60
manns tóku þátt í könnuninni. Gert
var ráð fyrir fleiri en einni ástæðu.
Niðurstaðan var:
87% töldu að launin hækkuðu
ekki nóg, 87% töluðu um að skatt-
leysismörkin hefðu ekki hækkað og
60% töldu að það hefði verið van-
traust á að verðlag og verðbólga
mundi lækka.“
EKKI VIÐKVÆMUR FYR-
IR ÁLITI AÐALSTEINS
Björn segir að í könnuninni hafi
einnig verið spurt hvort menn
treystu sömu aðilum til að fara aft-
ur og reyna að ná betri samningi og
hafi þá 96% sagt að samningamenn
hefðu fullt traust til þess. Einnig hafi
verið spurt hvort Eining-Iðja ætti að
reyna að semja í samfloti við aðra.
Flestir hafi sagt að Eining-Iðja ætti
að vera í samfloti með þeim er vildu
reyna á síðasta samning, í öðru sæti
að allir sem felldu innan ASÍ ættu að
vera saman og í þriðja sæti að lands-
byggðin í SGS ætti að vera saman.
„Ég tel að miðað við þessi svör
njótum við í viðræðunefnd Einingar-
Iðju trausts félagsmanna.
Hvað formönnum annarra félaga
eða félagsmönnum í öðrum stéttar-
félögum finnst um mig læt ég þá al-
farið um,“ segir Björn Snæbjörnsson.
Reykvískt fyrirtæki kaup-
ir 50% í Arctic Tours
Special Tours, sem staðsett er við
gömlu höfnina í Reykjavík og sér-
hæfir sig í sjóferðum fyrir ferðamenn,
hefur keypt helmingshlut í Arctic
Sea Tours á Dalvík. Freyr Antonsson
stofnaði Arctic Seatours árið 2009 en
hann mun áfram sjá um rekstur Arct-
ic Sea Tours og starfa þar sem fram-
kvæmdastjóri. Hvalaskoðunarferðir
eru uppistaðan í starfseminni.
„Við viljum bjóða fleiri ævin-
týraferðir á sjó í Eyjafirði og það
var okkar markmið að fá einhvern
í lið með okkur til að framkvæma
það,“ segir Freyr Antonsson fram-
kvæmdastjóri og einn af eigendum
Arctic Sea Tours
„Við erum þegar með nokkrar
ferðir á teikniborðinu á Eyjafirði,
allt frá Akureyri og út undir Grímsey.
Það er aukin umferð um Dalvík og
um Tröllaskagann þar sem leið fjölda
ferðamanna liggur ár hvert, og hefur
verið mikil og vaxandi uppbygging
í ferðaþjónustu á þessum slóðum
síðastliðin ár,“ segir Hjörtur Hin-
riksson, framkvæmdastjóri og einn
af eigendum Special Tours. a
TÍMAMÓT HJÁ DALVÍSKA félaginu Arctic Sea Tours.
AÐALSTEINN ÁRNI:
Hjólar í formann
Einingar-Iðju.
BJÖRN SNÆ-
BJÖRNSSON:
Fékk 374% launa-
hækkun, en ekki
mér að kenna, segir
hann.