Akureyri - 13.02.2014, Qupperneq 10
10 6. tölublað 4. árgangur 13. febrúar 2014
Umsjónarmaður fasteigna
Norðurorka hf. óskar eftir að ráða iðnmeistara sem sér um rekstur og
viðhald fasteigna félagsins og hefur umsjón með innkaupum á þjónustu
sérhæfðra aðila með útboðum eða samningum.
Við leggjum áherslu á öruggan og hagkvæman rekstur fasteigna
félagsins með fyrirbyggjandi viðhaldi og gerð viðhaldsáætlana. Starð
heyrir undir sviðsstjóra fjármála og þjónustusviðs.
Norðurorka hf. rekur rafveitu og fráveitu á Akureyri, hitaveitu og
vatnsveitu á Akureyri, Hrísey, Eyjafjarðarsveit og á Svalbarðsströnd.
Þá rekur Norðurorka hf. hitaveitu á Ólafsrði, Hörgársveit, Grenivík og í
Fnjóskadal. Fasteignir Norðurorku hf. eru því margar og þjóna
fjölbreyttum rekstri félagsins.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Dagleg umsjón og viðhald fasteigna.
• Áætlanagerð um viðhald og
endurbætur fasteigna.
• Gerð kostnaðaráætlana og
útboðsgagna.
• Samskipti við hönnuði og ráðgjafa.
• Önnur verkefni eftir ákvörðun
yrmanns.
Meginhlutverk Norðurorku hf. er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og
dreingu á heitu vatni og neysluvatni og rekstri dreikers raforku og fráveitu.
Norðurorka hf. starfar samkvæmt vottuðu gæðaker ISO 9001.
Umsjón með ráðningu hefur Guðrún Björg Harðardóttir (gbh@no.is)
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar nk.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starð á netfangið gbh@no.is.
Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteinum.
Norðurorka hf. – www.no.is – sími 460-1300
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Húsasmíðameistari eða sambærileg
meistararéttindi sem nýtast í star.
• Reynsla í áætlanagerð og gerð útboðsgagna
fyrir viðhaldsverkefni og endurbyggingar.
• Góð tölvukunnátta.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði
í vinnubrögðum.
VIRÐING – FAGMENNSKA – TRAUST
Barnahátíð um helgina
Barnamenningarhátíðin Börn fyrir
börn verður haldin í Hofi 16. febr-
úar nk. þar sem hæfileikarík börn á
öllum aldri taka þátt. Á meðal þeirra
sem fram koma eru nemendur í Tón-
listarskólanum á Akureyri, félagar
úr Leikfélagi Menntaskólans á Ak-
ureyri og Friðrik Ómar. Kynnir er
Lalli töframaður.
Tilgangur hátíðarinnar er á með-
al annars að skapa vettvang fyrir
börn sem hafa áhuga á að taka þátt í
menningarstarfi og styrkja gott mál-
efni í leiðinni en á hátíðinni er tekið
við frjálsum framlögum til styrkt-
ar barnadeildar FSA. Sparisjóður
Höfðhverfinga er samstarfsaðili há-
tíðarinnar en þetta er í þriðja sinn
sem að barnamenningarhátíðin Börn
fyrir börn er haldin í Hofi.
HÆFILEIKARÍK BÖRN LEIKA
LISTIR SÍNAR
Í haust var haldin hæfileika-
keppni í tengslum við Barnamenn-
ingarhátíðina þar sem börn á aldrin-
um 10-16 ára voru hvött til að senda
inn myndband þar sem að þau sýndu
hæfileika sína. Fjöldi barna af öllu
Norðurlandi sendu myndband í
keppnina og voru sex af þeim valin
til að koma fram í Hofi á barnamenn-
ingarhátíðinni.
Auk hátíðardagskrár í Hamra-
borg verður boðið upp á Barnastuð
í minni sal Hofs Hömrum þar sem
þau Hjalti Jónsson og Eva Reykjalín
virkja yngstu kynslóðina í söng og
dansi. Dagskráin þar hefst klukkan
ellefu og er enginn aðgangseyrir og
allir velkomnir. a
Ógnir blaðamanna á
átakasvæðum
Akureyringar og aðrir áhugamenn
norðlenskir um blaðamennsku á
heimsvísu fá tækifæri til að hlusta
á fyrirlestur og spyrja spurninga í
Háskólanum á Akureyri á morgun,
föstudag. Þá verða sýnd beint með
fjarfundarbúnaði í stofu 101, Mið-
borg Háskólans á Akureyri, klukkan
14-16 erindi flutt í HÍ, sem blaða-
mennirnir Fahad Shah frá Kasmír,
Jasmin Rexhepi frá Kosovo og
Mazen Maaroof frá Líbanon flytja.
Þeir munu fjalla um eigin reynslu
og áskoranir sem þeir og aðrir blaða-
menn á ófriðarsvæðum horfast í
augu við. Starf fréttafólks er hvergi
jafn hættulegt og á svæðum ófriðar,
átaka og veikra lýðræðislegra stoða.
Erlendu blaðamennirnir munu
ræða ástand mála í heimalandi
sínu og tengja það við hlutverk og
störf blaðamanna. Að viðburðinum
standa Blaðamannafélag Íslands,
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórn-
mála, Alþjóðamálastofnun, Meist-
aranám í blaða- og fréttamennsku,
Miðstöð Rannsóknarblaðamennsku,
Nýlistasafnið, DV, Reykjavík viku-
blað og Grapevine. a
FAHAD SHAH ER ritstjóri vefmiðilsins „The Kashmir Walla“ sem hefur meðal annars
verið lofaður af BBC og Al Jazeera fyrir þá krítísku umfjöllun sem þar birtist. Jón Bjarki
Bókunarsími tilboðsins er 426 5000
Aðeins 8.500 kr. fyrir tveggja manna herbergi!
Gistihús Keflavíkur · Keflavíkurflugvelli · Valhallarbraut 761 · 235 Reykjanesbæ
Sími 426 5000 · gistihus@internet.is · bbkeflavik.com
Láttu fara vel um þig nóttina fyrir eða eftir flug og gistu hjá okkur.
Þú geymir bílinn þinn hjá okkur, við keyrum þig upp á á flugvöll
og sækjum þig aftur þér að kostnaðarlausu.
Ertu á leiðinni til eða frá landinu?
Morgunverður er innifalinn
Þráðlaus nettenging
Rúmgóð herbergi með gervihnatta-
sjónvarpi og baði
Því ekki að byrja eða enda fríið í Bláa
Lóninu, aðeins um 15 mín. akstur frá
okkur, eða skoða Víkingasafnið, gamla
hervöllinn og Reykjanesið?
Við erum vel staðsett til að njóta alls
þess sem Reykjanesið hefur upp á að
bjóða. Tilvalið fyrir hvataferðir, fundi eða
rómantískar stundir.
Gott verð! Gildir til 1. maí 2014.