Akureyri - 19.06.2014, Side 1
23. tölublað 4. árgangur 19. júní 2014
VI
KU
BL
AÐ
BÍ L DS HÖF ÐA 1 2 - 110 RE YK JAVÍK - SÍMI: 577 1515 - WWW.SKORRI.IS
TUDOR RAFGEYMAR
Skeljungur hf - Oddeyrarskála – 600 Akureyri – Sími: 444 3160
MIKIÐ ÚRVAL - TRAUST OG GÓÐ ÞJÓNUSTA
TUDOR 35 ÁR Á ÍSLANDI
Velkomin til Húsavíkur!
4. Landsmót UMFÍ 50+
Þingeyjarsveit
NORÐURÞING
Skráning: umfi.is
Skráðu þig, þitt fyrirtæki eða hóp
til leiks á www.ganga.is
Húsavík 20.–22. júní 2014
Missa sjómenn Ríkisútvarpið?
Að óbreyttu missa íslenskir sjómenn,
Íslendingar víða erlendis og allnokkrir
íbúar á strjálbýlum svæðum aðgang að
gervihnattaútsendingum Ríkisútvarps-
ins í haust og þar með allan aðgang að
dagskrárefni. Í svörum Ríkisútvarpsins
vegna fyrirspurna Akureyri Vikublaðs
um málið kemur fram að í apríl árið
2007 hófust útsendingar á Sjónvarpinu,
Rás 1 og Rás 2 um gervihnött. Sam-
kvæmt fjarskiptaáætlun ríkisstjórnar-
innar 2005-2010 var ákveðið að dreifa
þessum útsendingum um gervihnött
til að dagskrá sjónvarps og hljóðvarps
RÚV næðu til sjófarenda og íbúa strjál-
býlli svæða. Fjarskiptasjóður samdi
við norska gervihnattafyrirtækið Tel-
enor um að annast dreifinguna um
gervihnöttinn Thor en þá sköpuðust
samhliða tækifæri fyrir Íslendinga
erlendis til að fylgjast með dagskrá
RÚV. Í lögum um Ríkisútvarpið og í
þjónustusamningi er gert ráð fyrir að
Ríkisútvarpið dreifi efni til alls lands-
ins og næstu miða en þar ekki gert sér-
staklega ráð fyrir dreifingu erlendis né
langt á haf út.
Samningur Fjarskiptasjóðs við Tel-
enor var upphaflega gerður til þriggja
ára og hefur í kjölfar þess verið fram-
lengdur þrisvar um eitt ár í senn. Í apríl
2013 var fullnýttur sá heildarsamnings-
tími sem útboðsskilmálar gerðu ráð
fyrir og hefur náðst að halda þjónust-
unni áfram á grundvelli viðaukasamn-
ings sem ríkið hefur gert við Telenor
tímabundið. „Ríkið hefur ekki enn
samið um áframhaldandi dreifingu og
því myndi þjónustan falla niður í sept-
ember að óbreyttu,“ segir í svörum Rík-
isútvarpsins.
Samkvæmt svörum Rúv hefur einnig
áhrif að opinber framlög hafi verið skor-
in mikið niður að undanförnu.“Við vitum
til þess að málið sé til skoðunar í ráðu-
neytunum og okkar von er að góð lausn
finnist,“ segir skrifstofustjóri Ríkisút-
varpsins, Margrét Magnúsdóttir. -BÞ
FÁTT SETUR STERKARI svip á sérstöðu Akureyrar á sautjánda júní en þegar nýstúdentar marsera í miðbænum að loknum útskriftarfagnaði.
Myndin er tekin um miðnætti í fyrrakvöld. Völundur