Akureyri - 19.06.2014, Qupperneq 2
2 23. tölublað 4. árgangur 19. júní 2014
ÓTRAUÐUR ÁFRAM
MEÐ OLÍU FRÁ COMMA
5
LÍ
TR
A
R
20
L
ÍT
RA
R
20
5
LÍ
TR
A
R
TransFlow SD 15W-40
TransFlow SD 15W-40
TransFlow ML 10W-30
TransFlow ML 10W-30
3.490 kr.
11.900 kr.
3.490 kr.
12.900 kr.
TransFlow SD 15W-40
109.900 kr. með vsk.
25% afsláttur*
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Sími: 535 9000
*TILBOÐ GILDIR MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
EX
PO
-
w
w
w
.e
xp
o.
is
Hraðamyndavél úr sögunni í heilt ár
Eitt af því sem þarf að skoða bet-
ur ef haldið verður áfram með
Bíladaga á Akureyri eru auknar
aðgerðir til að halda ökuhraða í
bænum niðri. Þetta er mat Daníels
Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns á
Akureyri. Færanleg myndavél sem
mælir ökuhraða hefur verið úr leik
í heilt ár eftir að brotist var inn í
bíl og myndavélin skemmd hjá
lögreglu á Akureyri í fyrrasumar.
Daníel segist hafa rætt við innan-
ríkisráðuneytið um að fá búnað í
stað vélarinnar ónýtu en það vanti
pening. Einnig hafi orðið þreifingar
milli lögreglu og einkaaðila um
búnað til bragarbótar. Ljóst sé að
eftir að vélin var skemmd sé minna
hraðaeftirlit en ella á Akureyri og í
nágrenni, það sé ekki gott.
Fjöldi fólks hafði að lokinni síð-
ustu helgi samband símleiðis eða
í gegnum netið við ritstjórn Akur-
eyrar vikublaðs og kvartaði undan
svefnleysi vegna hávaða. Íbúar, t.d.
við götur eins og Þingvallastræti,
segja það „brot á mannréttindum
íbúa“ að dæmi séu um að ung börn
hafi ekki sofið neitt tvær nætur í röt
vegna hávaða af völdum inngjafar
hjá ökumönnum bíla, spólandi og
vælandi. Daníel Guðjónsson segir
erfitt að banna svona hátíðir, menn
hafi lagt ýmislegt á sig til að bæta
umgjörðina, ekki síst með því að
færa viðburði burt úr bænum og
hafa sérstakt tjaldstæði fyrir bíla-
áhugamenn. „Eftir stendur hins
vegar að framkoma ökumanna í
bænum er ekki nógu góð en það eru
ekki endilega keppendur sjálfir sem
eru þar að verki.“
Engin alvarleg afbrot voru
framin um helgina á Akureyri.
Gróflega áætlað voru 24 kærð-
ir fyrir of hraðan akstur, sjö fyrir
spól, fjögur fíkniefnamál komu
upp, sex ölvunarakstrar og tveir
grunaðir um akstur undir áhrifum
fíkniefna. „Við lögðum áherslu á að
halda miðbæjarlífinu í skorðum og
vorum með sérsveit í því, það tókst.
Þetta er fyrst og fremst ónæði af
hraðakstri og inngjöfum sem fylgir
mikill hávaði, það er verkefni sem
þarf að taka á. En allt kostar pen-
inga. Til dæmis að fjölga hraða-
hindrunum og koma í veg fyrir að
hægt sé að skrensa í beygjum. Það
er til búnaður til þess, en kostar fé
að fá hann,“ segir Daníel, en lög-
regla fær enga aukafjárveitingu á
helgum sem þessum heldur verð-
ur að taka kostnað af hefðbundnu
rekstrarfé.
Bannað er að hafast nokkuð að
sem veldur ónæði eða raskar næt-
urró manna. Á virkum dögum skal
halda næturró frá kl. 24.00 til 07.00.
Um helgar og á helgidögum skal
halda næturró frá kl. 24.00 til kl.
08.00, segir í lögreglusamþykkt Ak-
ureyrar. -BÞ
Grisjað með
skógarhöggsvél
Hafin er grisjun með skógarhöggsvél
í skógarreit Skógræktarfélags Ey-
firðinga á Miðhálsstöðum í Öxnadal.
Þar er að verki Kristján Már Magn-
ússon skógverktaki með vélina
sem hann keypti til landsins í vet-
ur. Mikið er um kræklótt og marg-
stofna lerki- og furutré í skóginum
og gjarnan sverar hliðargreinar á
furunni sem vélin nær ekki að skera
af í einni atrennu. Líklegt er að fara
þurfi fyrir vélinni með keðjusög til
að ná upp góðum afköstum.
Þetta er, má segja, fyrsta meiri
háttar grisjunarverkefnið sem
Kristján tekur að sér með nýju vél-
inni. Hann reiknar með að vera á
Miðhálsstöðum næstu þrjár vikurn-
ar eða svo og líka í Kjarnaskógi en
síðan tekur við verkefni hjá Skóg-
rækt ríkisins í Vaglaskógi þar sem
nokkrir reitir verða grisjaðir.
Skógurinn á Miðhálsstöðum
þótti lengi vel ekki björgulegur og
trén þóttu stækka hægt. Snjó- og
vindálag ásamt þurru og grýttu
landi olli því að trén áttu erfitt upp-
dráttar enda sést það á þeim mörg-
um. Mikið er um margstofna og
kræklótt tré, bæði síberíulerki og
stafafuru. Síðustu tvo áratugi hefur
skógurinn hins vegar tekið vel við
sér og trén orðið beinvaxnari. Mik-
ið er líka um sjálfsáin tré, meðal
annars af áðurnefndum tegundum,
lerki og furu.
Ingólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyfirðinga, segir að nokkra daga
taki að koma sér upp réttu vinnu-
lagi svo afköstin verði viðunandi.
Reiknar hann með að starfsmenn
Skógræktarfélagsins muni fara
á undan vélinni og búa í haginn,
meðal annars með því að saga af
neðstu og sverustu greinarnar. Við-
arstaflinn verður sendur til Elkem á
Grundartanga.
Skógræktarfélag Eyfirð-
inga segir það hvalreka að fá
skógarhöggsvélina til grisjunar. a
Enginn myndi sætta sig við
tveggja ára bið eftir íþróttum
Dæmi eru um að börn á Akureyri
hafi þurft að bíða tvö ár eftir að
fá inni í Tónlistarskólanum á Ak-
ureyri. Kennari skólans segir stöð-
una gjörsamlega óviðunandi og ber
stöðuna saman við íþróttaáherslur.
Á annað hundrað börnum verður
synjað um skólavist í haust.
„Hvað gerist ef enginn nemandi
er tekinn inn í ákveðinni grein, t.d.
strengjadeild, í tvö ár eins og gerst
hefur? Það er álit margra að besti
árangurinn í tónlistarkennsu ná-
ist með því að þau byrji á réttum
aldri. Suzuki trúði því að öll börn
gætu lært á hljóðfæri og náð frá-
bærum árangri ef þau byrjuðu nógu
snemma. Þegar enginn nýr nemandi
er tekinn inn myndast gat svo erfitt
eða útilokað er að halda t.d. hljóm-
sveitarstarfsemi í réttum farvegi,“
segir Michael Jón Clarke, kennari
við Tónlistarskólann á Akureyri.
„Það er einnig eðlilegt að nemend-
ur úr nágrannabæjum sæki í aukn-
um mæli listræna starfsemi hingað
og lífsnauðsynlegt að hún verði til
staðar. Það hefur sífellt verið vegið
að starfsemi Tónlistarskólans með
niðurskurðarhníf á lofti í mörg ár,
jafnvel á “góðæristímabilinu”. Það er
eins og sumir ráðmenn líti á tónlist-
arkennslu sem einhvert tómstunda-
dútl frekar en alvöru nám,“ segir
Michael Jón Clarke.
Hann segir löngu tímabært að
þeir sem ráði á Akureyri kynni sér
söguna af alvöru og geri sér ljóst að
tónlist er jafn nauðsynleg börnunum
okkar og íþróttir. Tíma niðurskurðar
verði að linna. „Það sættir sig enginn
við að börn þeirra þurfi að bíða í tvö
ár eftir að komast í að æfa íþróttir,
það sama gildir um tónlist.“
Á ruv.is er haft eftir Hjörleifi
Erni Jónssyni, skólastjóra Tónlist-
arskólans, að 110 börn séu á biðlista
nú og lítil von til að þau komist að.
Beinn niðurskurður til skólans eftir
hrun nemi um 23 milljónum króna.
Í vetur þurfi enn að skera niður um
nær heilt stöðugildi. Afar leiðinlegt
sé að þurfa að synja svo mörgum
um skólavist.
Skýringin hefur ekki verið rakin
til hærri rekstrarkostnaðar Tónlist-
arskólans á Akureyri eftir flutn-
inginn í Hof en bæjarfulltrúar sem
blaðið ræddi við segja að það verði
skoðað. a
VINSTRA MEGIN ER Ingólfur Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri Skógræktar-
félags Eyfirðinga, og til hægri Kristján
Már Magnússon skógverktaki, sá sem á
og rekur vélina. Mynd PH