Akureyri


Akureyri - 19.06.2014, Síða 13

Akureyri - 19.06.2014, Síða 13
19. júní 2014 23. tölublað 4. árgangur 13 Flugdagurinn á Akureyri Árlegur Flugdagur Flugsafns Ís- lands verður haldinn á Akureyrar- flugvelli laugardaginn kl: 14:00 – 16:00. Svæðið verður opnað kl: 13:00. Að vanda verðu nóg af flug- vélum af öllum stærðum og gerðum og verður flestum þeirra flogið á sýningunni. Sýnd verða ýmiskon- ar flugatriði og listflug. Þyrla frá Landhelgisgæslunni kemur í heim- sókn og sýnir björgun og fleira. Margir af reyndustu listflugmönn- um landsins munu sýna listir sýn- ar á laugardaginn. Skralli trúður verður á svæðinu og vill örugglega fá að fljúga. Í tengslum við Flugdaginn verður opnuð sýning í Flugsafn- inu í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá stofnun flugfélagsins Loftleiða, sem síðan sameinaðist Icelandair. Einnig verður þess minnst að 50 ár eru liðin frá því að Canadair CL-44 flugvélar Loftleiða voru teknar í notkun og voru stærstu farþegarvélar í millilandaflugi á þeim tíma. Í tengslum við Flugdaginn verð- ur haldið Íslandsmeistaramót í listflugi og fer það fram á föstudags- kvöldinu 20. júní kl: 18:00. Þangað eru allir einnig velkomnir. a AÐSEND GREIN SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR Hver er réttur barns? Undanfarnar vikur hefur í fjölmiðl- um verið skrifað um ákveðið barna- verndarmál og sýnist sitt hverjum um hvers vegna slík mál eru gerð að fjölmiðlamáli. Mín skoðun er sú að þegar einstaklingur upplifir að kerfið hefur brotið á honum, er leið í fjölmiðla oft eina leiðin til þess að hrópa á hjálp, þess vegna varð þetta mál að fjölmiðlamáli, hvort sem fólki líkar betur eða verr. Átta ára gömul stelpa er tekin af heimili móður sinnar ásamt bróð- ur sínum á 15. ári og send í fóstur í annað bæjarfélag þar sem þau þekkja engan, einum mánuði áður en skólaári lýkur og þau eiga að fara í nýjan skóla, drengurinn ný- lega greindur með einhverfu. Börnin tvö eru tekin af heimili elskandi móður – móður með geðræn vandamál. Að mati hlutlauss aðila sem hafði rætt við börnin, prófess- ors í sálfræði, er samband móður- innar og barnanna náið og mat sér- fræðingsins að það ætti ekki að taka börnin frá henni, bæði börnin voru staðföst í að þau vildu hvergi annars stadar vera en heima hjá móður. Þau óttuðust að þurfa að flytja frá henni. Það var einnig mat geðlæknis sem hefur haft móðurina til meðferð- ar sl. ár vegna hennar sjúkdóms. Barnaverndarnefnd hefur valdið og dómskerfið tekur slaginn með þeim og álit hámenntaðs og virts fagfólks hefur ekkert að segja. AÐ STRJÚKA HEIM TIL MÖMMU Fyrir rúmlega mánuði féll dóm- ur um að börnin skyldu send í nýtt umhverfi. Þrem dögum síðar strauk drengurinn frá fósturheim- ilinu og heim til móður sinnar. Það þykir fréttnæmt þegar 14 ára börn strjúka að heima og auglýst er eftir þeim. Í þessu tilviki strauk 14 ára unglingurinn heim til móður sinnar svo maður veltir fyrir sér hvort hon- um líði ekki bara vel þar? Móðirin á ekki við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða og börn- unum stendur ekki ógn af henni. Í dómi héraðsdóms kemur fram að ekki sé um ofbeldi að ræða af hendi móðurinnar. Börnin hafa mætt illa í skólann og stundum verið illa und- ir búin, það er rétt. Auk þess sem að drengurinn er nýlega greindur með einhverfu, sem gæti ef vel er að gáð haft áhrif á mætingu hans í skóla. ÞVERBROTNAR REGLUR Drengurinn fór ekki aftur á fóstur- heimilið þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir barnaverndarnefndar, hann stóð með sjálfum sér, þverneit- aði að fara. Eftir mikinn þrýsting fékkst það í gegn að drengurinn færi til náinna ættingja, sem hefði e.t.v.átt að gerast áður en börn- in voru send til ókunnugra. Eft- ir stendur sú hugsun, hvers á níu ára systir hans að gjalda? Í 33.gr. barnaverndarlaga stendur: Leitast skal við að finna systkinum sam- eiginlegar lausnir í samræmi við þarfir þeirra og hagsmuni og í 67.gr. barnaverndarlaga stendur: Ávallt skal leitast við að finna systkinum sameiginlegt fósturheimili nema sérstakar ástæður hamli. Þetta hef- ur algjörlega verið þverbrotið. Aðskilnaður frá móður, föður, bestu vinkonu og öðrum ættingj- um og nú bróður er staðreynd. Hver stendur vörð um rétt barnsins í kerfinu okkar? ERUM VIÐ EKKI KOMIN LENGRA? Förum ca. 30 ár aftur í tímann þegar talið var best fyrir börn sem lögðust inn á sjúkrahús að foreldr- ar og ættingjar hefðu sem minnst samskipti við barnið á meðan sjúkrahúsdvöl stóð, það var talið barninu fyrir bestu. Nú vitum við betur, við vitum að mörg börn sem lentu í þeirri reynslu eiga ekki góð- ar minningar frá þeim tíma. Erum við virkilega ekki komin lengra í barnaverndarmálum en þetta? Ég velti fyrir mér, ef þessi um- rædda móðir hefði verið greind með MS sjúkdóm eða krabbamein en ekki geðsjúkdóm, hefði hún fengið annan stuðning og annað viðmót í kerfinu? Hvaða aðstoð hefði sú kona fengið í heilbrigðiskerfinu? Mig langar að biðja ykkur um að velta því fyrir ykkur og skoða afstöðu ykkar til geðrænna vandamála. Tillaga barnaverndar að sam- skiptum foreldranna og stelpunn- ar sl. mánuð eftir að hún var tekin var þannig að móðir mátti hringja í dóttur sína á laugardögum í heimasíma á fósturheimili kl. 10 og faðir mátti hringja kl. 10.30. Ekki var ætlast til þess að ömmur, afar, besta vinkona eða aðrir ættingj- ar hefðu samband. Þennan mánuð máttu foreldrar heimsækja dóttur sína einu sinni í fjórar klukkustund- ir, áskilið að ekki væri farið með barnið út fyrir bæinn. Einnig mátti dóttirin koma einu sinni í heimsókn á heimili móður og gista. Umgengni frá kl. 12 á laugardegi til kl. 18 á sunnudegi, það var nú um sl. helgi þegar stelpan átti afmæli og hitti svo á að faðirinn var á sjó. Áskilið var þó að lausn væri komin í mál drengsins! Átti stelpan að gjalda fyrir ef ekki væri komin lausn þar á? MÓÐIR BUGUÐ AF SORG Grein þessi er skrifuð af mér sem sem móður og vinkonu litlu fjöl- skyldunnar en ekki sem fagaðila og hún er skrifuð með fullu samþykki móðurinnar sem er algjörlega buguð af sorg. Höfundur er lektor við Háskólann á Akureyri AÐSENT Sigrún Sigurðardóttir Barnaverndarnefnd hefur valdið og dómskerfið tekur slaginn með þeim og álit hámenntaðs og virts fagfólks hefur ekkert að segja. EINBEITTING Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDEGI. Völundur

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.