Akureyri - 26.06.2014, Qupperneq 8
8 24. tölublað 4. árgangur 26. júní 2014
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem
sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í
blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu-
póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856.
LOF OG LAST VIKUNNAR
LAST fær Nætursalan á Akureyri, segir
matarmaður sem hafði samband við blaðið.
„Ég er vanur að kaupa mér franskar með
sunnudagssteikinni, hef hingað til keypt þær
í Nætursölunni. Í gær fékk ég nóg. Ekki nóg
með það að skammturinn kosti orðið 900, var
áður 700, heldur var skammturinn einungis
rúmlega hálfur poki. Svo þegar ég kom með
pokann til baka var ég vændur um að hafa
tekið úr honum heima. Í stuttu máli franskarn-
ar hafa hækkað um 200 kr. og skammturinn
minnkað um 30%,“ segir Akureyringurinn...
LAST fær starfsmaður sem sér um vega-
bréfin hjá Sýslumanni á Akureyri, segir maður
sem hringdi í blaðið. Hann telur starfsmann
sem þar vinnur fremur dónalega. „Ég kom
með dóttur mína og ætlaði að ná í vegabréf,
vissi ekki að báðir foreldrar þyrftu að mæta.
Ég komst aldrei að, starfsmaðurinn talaði
bara og talaði út í eitt og skammaðist, dóttir
mín sagðist hafa orðið hálfhrædd. Þessi
starfsmaður virtist ekki starfi sínu vaxinn,
mætti vægast sagt sýna betri þjónustulund
eða leita sér að nýju djobbi,“ segir hinn ósátti
viðskiptavinur...
LOF fær BYKO fyrir frábæra þjónustu.
Svo skrifar kona í bréfi til blaðsins. Hún býr
í Naustaherfi og stóð í húsbyggingum í vor.
„Ég var að sendast um bæinn með kerru og
kaupa hitt og þetta sem vantaði. Sérstaklega
vil ég LOFA starfsmenn í iðnaðarmanna-
hluta BYKO, þessar elskur er hver öðrum
betri. Þegar ég mætti með kerruna, fékk ég
frábæra þjónustu, allir með bros á vör og
almennilegheit. Boðið uppá kaffi og með því
og hlýju í hjarta í hvert skipti. Strákarnir eru
yndislegir allir sem einn og eiga hrós skilið,“
skrifar kona og splæsir broskalli líka... J.
LAST fær Naustaskóli sem réð ómenntað-
an stuðningsfulltrúa til skólans á dögunum
og gekk þar með framhjá hæfu fólki með
menntun. „Hvers vegna er maður að mennta
sig sem stuðningsfulltrúi ef ómenntað fólk
er ráðið í svona stöður.“ Stuðningsfulltrúar í
skólum styðja nemendur í kennslu sem þurfa
sérúrræði að sögn konu sem hringdi inn
lastið...
AKUREYRI VIKUBLAÐ 24. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2014
ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is.
AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193.
RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri.
UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING
14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND
Ákvörðun SVA gagnrýnd
„Það gengur ekki að eins mikilvæg-
ur hlutur og almannasamgöngur séu
háðar duttlungum, við í Samfylk-
ingumnni stöndum við að við ætlum
að stórbæta leiðarkerfið til að bæta
umhverfið og létta undir með bæjar-
búum,“ segir Logi Már Einarsson bæj-
arfulltrúi.
Sú ákvörðun SVA að fella út leið 2 í
sumar á Akureri allt fram aðð 31. ágúst
hefur vakið óánægju. Samkvæmt for-
stöðumanni SVA dettur leið 2 út, sem
m.a. fer með fólk til og frá miðbæjar-
ins, vegna þess að ekki gekk að ráða
afleysingafólk til SVA í sumar. Þetta
telur Logi Már ekki nægilega góð rök
en Samfylkingin lagði áherslu á stór-
auknar almannasamgöngungur og
betra leiðarkerfi á kjörtímabilinu.
„Ég mun ekki láta mitt eftir liggja og
mun spyrjast fyrir um þetta sérstaka
mál, hvers vegna leið 2 hættir í sum-
ar. Væntanlega lokar ekki sundlaugin
þótt ekki fáist sundlaugarvörður strax
þegar auglýst er eftir fólki. Með sama
hætti hef ég áhuga á að skoða þetta
mál,“ segir Logi. -BÞ
AÐSEND GREIN HJÖRLEIFUR HALLGRÍMS
Sóðalegur miðbær
Það er næsta furðulegt hvað er lítill
metnaður hjá bæjaryfirvöldum í að
halda miðbænum hreinum og snyrti-
legum sérstaklega núna þegar að mik-
ið er um ferðafólk, landann, sem sækir
annars okkar fallega bæ heim svo ekki
sé talað um alla farþegana af skemmti-
ferðaskipunum, sem eru næstum dag-
legur viðburður í sumar. Sérstaklega
ber mikið á sígarettustubbum og öðru
rusli og virðist gatan fyrir framan
Amaró húsið vera sérstakur ösku-
bakki fyrir reykingafólk og stubbarnir
eftir því. Auðvitað þurfa götusópar-
ar að byrja síðla nætur eða snemma
morguns að láta til sín taka og hafa
allt hreint og klárt áður en ferðafólkið
flykkist í bæinn.
Ein er sú kona, sem hefur verið
hvað ötulust við að fegra göngugötuna
og miðbæinn, og hefur mátt sjá af-
rakstur gjörða hennar t.d. um Bíladag-
ana og 17. júní þegar hún sást dag eftir
dag prílandi upp í stiga með aðstoðar-
konu við að festa marglit flögg á milli
ljósastaura, sem virkilega lífguðu upp
á göngugötuna og allt niður í Skipa-
götu. Þvílík elja, og þetta er kjarnakon-
an Vilborg kaupkona í Centro.
Þetta er alls ekki í fyrsta skiptið,
sem Vilborg lætur til sín taka í fegr-
un miðbæjarins. Kannski ætti bæjar-
stjórn Akureyrar að ráða Vilborgu til
að fegra miðbæinn því ekki veitir af.
Að lokum vil ég geta annarrar konu,
sem sér um að halda við fallegum
blómum í steinkerjunum í göngugöt-
unni, Guðrúnu, Dalvíkingi, blóma-
drottningu, en jú bæjarstjórnin splæsti
bara málningu á steinkerin. a
Vanhæfir
embættis-
menn?
Stóralvarleg hlýtur að teljast sú dómsniðurstaða Héraðsdóms Norðurlands eystra að Akureyrar-
bær hafi brotið á tveimur starfsmönnum Slökkvi-
liðs Akureyrar. Með dóminum er staðhæft að um
ólöglegar uppsagnir slökkviliðsmanna hafi a.m.k.
í tvígang verið að ræða. Akureyri vikublað fjall-
aði mikið um deilurnar innan liðsins og birti m.a.
fréttir þar sem slökkviliðsmenn héldu því fram að
ólöglegar uppsagnir og valdníðsla væri ein ástæða
þess að skipta yrði um slökkviliðsstjóra. Þeir sögðust
ekki þora að kom fram undir nafni á þeim tíma en
í blaðinu í dag stígur trúnaðarmaður slökkviliðsins
fram og segir skoðun sína umbúðalaust.
Það verður að teljast forvitnileg og fréttnæm
staðreynd að á sama tíma og Akureyri Vikublað
birtir fyrst fjölmiðla dómsniðurstöður héraðsdóms,
sem sannarlega kostar okkur útsvarsgreiðendur
ekki minna en sjö milljónir króna, hefur Frétta-
blaðið flutt fréttir um vanda á öldrunarheimilinu
Hlíð og staðhæfir að átta manns hafi hætt á sömu
deildinni vegna óánægju með yfirmann. Samt situr
sá yfirmaður áfram og nýtur trausts, æðsta yfir-
manns stofnunarinnar, að því er fram kemur í Frétta-
blaðinu. Sömu sögu var að segja á sínum tíma um
fyrrverandi slökkviliðsstjóra. Og nú er á Hlíð hafin
sálfræðimeðferð fyrir starfsmenn. Akureyri Viku-
blað flutti einnig fréttir af því að opinberu fé væri á
sínum tíma varið svo skipti mörgun milljónum í sál-
fræðiúttektir innan slökkviliðsins þegar deilur um
einelti og samskiptavanda stóðu hæst. Það breytti
ekki lokaniðurstöðunni, að yfirmaður þurfti að taka
pokann sinn. Stundum þarf að gera fleira en gott
þykir og grípa til aðgerða áður en Róm brennur. Þá
dugar ekki að spila bara á fiðlur. Þar sem er reykur
er jafnan eldur undir, eða stutt í að hann blossi upp.
Það vita slökkviliðsmenn vel. Kannski starfsmenn
Hlíðar viti það líka?
Það er orðið tímabært að spyrja þeirrar spurn-
ingar hvort embættismenn bæjarins séu ítrekað van-
hæfir að taka á erfiðum málum sem koma upp innan
stjórnkerfisins og varða starfsmannamál. Kannski
er orðið tímabært að koma á fót sérstakri skoðun
á því hvort ákvarðanafælni, röng ákvarðanataka,
meðvirkni með handhöfum valds eða vanhæfni
stjórnenda bæjarins kostar ekki bara vondan vinnu-
anda, jafnvel árum saman í vonlitlum pattstöðum,
heldur kosti vanhæfni opinberra stjórnenda okkur
útsvarsgreiðendur stórfé á hverju ári?
Með ritstjórnarkveðjum
Björn Þorláksson
AÐSENT
Hjörleifur Hallgríms
FÁTT ER EINS pottþétt og að sumarið er komið þegar starfsmenn Akureyrarbæjar eru farnir að planta stjúpum í akkorði. BÞ