Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1992, Síða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1992, Síða 8
Fimmtudaginn 25. júni 1992 - FRÉTTIR • Stella sendir bestu kveðjur til allra Eyjabúa, með von um að allir séu hressir að vanda. FRÉTTIR efst á listanum Kæri ritstjóri, Það næst besta sem ég veit, búandi, í útlandinu, er á mánudagsmorgn- um, þegar pósturinn kemurr með FRÉTTIR alla leið frá Eyjum - mínum heimabæ. Ég er heimavinnandi með 5 börn á aldrinum 2ja til 12 ára, hef mikinn áhuga á tímaritum og blöðum á þremur tungumálum og geri mikið að því að lesa - þegar ég annars fæ tíma til. FRÉTTIR eru efst á lista mínum fyrir góð tímarit. Allt er lesið, sjó og fiskifréttir, auglýsingar stórar og smáar, atvinnutilboð, húsasölur, Garrasögur, matseðill Tangans fyrir vikuna, dánartilkynningar, allar . íþróttagreinar (þó ég sé ekki nein sportsmanneskja sjálf) og með öll- um þessum góðu fréttum fylgja ávallt margar og góðar myndir af hinu(m) og þessu(m) og það finnst öllum gaman að sjá, ekki síst heim- afólki sem býr utanlands. Það er punkturinn yfir i-ið þegar við sjáum mynd af einhverjum sem við þekkj- um eða könnumst við, þekkjum þetta hús og þess háttar. Ég sendi fyrirfram þakkir og bið um bestu kveöju til allra Eyjabúa, með von um að allir séu hressir að vanda. Lifið hcil !! Með kveðju, Stclla G. Heimbúrgvr Danmörk Okeypis golfkennsla Golfklúbbur Vestmannaeyja mun á næstunni gangast fyrir ókeypis kennslu í golfi fyrir unglinga, 10-15 ára. Kennslan hefst annan þriöjudag, 7. júlí og verður síöan framvegis á þriðjudögum í sumarfrá kl. 13:00 -15:00. Leiðbeinandi verður Þorsteinn Hallgrímsson. Golfklúbbur Vestmannaeyja FRETTIR kynna 6. flokk Týs og Þórs. Núna er Shellmót Knattspyrnufélagsins Týs að hefjast í níunda sinn. Það er því vel við hæfi að FRÉTTIR standa fyrir kynningu á 6. flokkum Týs og Þórs í blaðinu í dag. í þessum flokkum er núna sem ávallt mikill fjöldi stráka sem æfir reglulega, samanlagt ca. 60 manns hjá félögunum tveimur. Mjög vel er gert við þessa stráka, og er óhætt að fullyrða að grunnþjálfun yngstu piltanna hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Flestir piltanna æfa tvisvar á dag, á morgnana með sínum flokki, en eftir hádegi mæta þeir í knattspymuskóla síns félags og hamast þar í ca. tvo tíma í viðbót. Þessar æfingar fara allar fram við ákjósanlegar aðstæður á grasvöllum félaganna, undir tryggri leiðsögn vanra manna. Það má því vera ljóst að þessir peyjar hafa alla möguleika á því að þroska sig sem fótboltamenn og nota þá hæfileika sem þeim eru gefnir, í botn. Týr og Þór virðast að þessu sinni vera tiltölulega svipuð að getu. í Vestmannaeyjamótinu hafa verið leiknir tveir leikir og hafa úrslit orðið: A-lið Týr - Þór : 5 - 7 Týr - Þór : 4 - 3 B-lið Týr - Þór : 0 - 3 Týr - Þór: 4 - 0 Eins og sést af þessum tölum ríkir mikið jafnræði með liðunum, og bæði virðast þokkalega sterk. Það gæti því verið skemmtilegt að fylgjast með þessum tveimur liðum, bera þau saman, og jafnvel reyna að gera sér í hugarlund hver árangurinn yrði ef liðin léku undir merkjum ÍBV. • 6. ilokKur Þórs ALLIR sem nota Ijósritunarvélar þurfa á Ijós- ritunarpappír að halda. Við eigum úrvalsljósritunar- pappír, í 8 litum 6. flokkur Týs

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.