Skessuhorn


Skessuhorn - 10.09.2008, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 10.09.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER Síð ast lið inn mið viku dag tók hálf­ fertug ur Borg firð ing ur, Bern hard Þór Bern hards son, við starfi sjóðs­ stjóra í Spari sjóði Mýra sýslu. Gísli Kjart ans son fyr ir renn ari hans hafði þá fyr ir stjórn ar fund sagt af sér og hyggst nú setj ast í helg an stein. Ekki er of sög um sagt að vind ar hafi blás ið býsna sterkt um sjóð inn á um liðn um mán uð um. Fram an af ár inu og fram til 1. á gúst reru stjórn og starfs menn sjóðs ins líf róð ur til bjarg ar hon um í ó breyttri mynd hvað eign ar hald snert ir, en um mitt árið var ljóst að kalla þyrfti til fjár­ festa sem með kaup um á stofn­ fé næðu að styrkja eig ið fé sjóðs­ ins þannig að hann ætti sér fleiri líf­ daga auð ið. Þá sögu þekkja les end­ ur Skessu horns; Kaup þing á samt Straum borg, fyr ir tæki Jóns Helga í Byko komu inn með stofn fjár lof­ orð nú í á gúst fyr ir tvo millj arða króna og hef ur ný stjórn tek ið við. Borg ar byggð á enn 20% eign ar hlut í fyr ir tæk inu. Þeg ar Gísli á kvað að stíga frá var það sam dóma álit nýrr­ ar stjórn ar að Bern hard Þór yrði ráð inn í starf ið. Skessu horn tók hús á nýja spari­ sjóðs stjór an um á öðr um starfs degi hans og for vitn að ist um upp runa hans, fyrri störf og hagi. Á fram sami grunn rekst ur Bern hard seg ir það verða á skor­ un að taka við stjórn un sjóðs ins mið að við at burði lið inna vikna og stöðu SPM í dag. „Út frá efna hags­ á stand inu í land inu og að stæð um á fjár mála mörk uð um al mennt verð­ ur þetta erfitt verk efni en jafn framt mik il á skor un eft ir darrað ar dans lið inna mán aða í mál efn um spari­ sjóðs ins. Vissu lega er það á skor­ un að fá tæki færi til að byggja upp traust á nýj an leik gagn vart þess ari 95 ára fjár mála stofn un sem hér aðs­ bú ar vilja fyr ir alla muni að verði til á fram,“ seg ir Bern hard. Hann seg ist binda mikl ar von ir við nýja stjórn sjóðs ins und ir for ystu Ró­ berts B. Agn ars son ar. „Stjórn in hef­ ur nú fund að tvisvar og er byrj uð að leggja lín urn ar fyr ir kom andi ár. Þessi stjórn er skip uð topp mönn um sem ég hef mikl ar vænt ing ar til en verk efn ið sem við stönd um frammi fyr ir er að koma spari sjóðn um í það horf að hann sé vel rek inn og skili arði,“ seg ir Bern hard. Að spurð ur seg ist hann ekki hafa heyrt neitt ann að en að nú ver andi eig end ur vilji reka sjóð inn á fram á svip að an hátt og ver ið hef ur. „Nýir eig end ur og ný stjórn leggja hins veg ar mikla á herslu á að sjóð ur inn hag ræði rekstr in um eins og frekast er unnt til að tryggja fram tíð hans sem heil brigðs fjár mála fyr ir tæk­ is í hér aði,“ seg ir Bern hard. Ýms­ ir hafa haft uppi efa semd ir um að það sé vilji Kaup þings með an aðr ir benda á að ekki séu að ó breyttu for­ send ur fyr ir öðru en að leyfa spari­ sjóðn um að fá ann að tæki færi til að sanna til veru rétt sinn. Ó lík legt sé að svo gömlu og traustu vöru merki verði kastað fyr ir róða. Und ir þetta sjón ar mið hafa ýms ir framá menn í hér að inu tek ið eft ir að ljóst var að Bern hard Þór yrði ráð inn til starfans. Telja þeir að sú stað reynd að heima mað ur og starfs mað ur SPM hafi ver ið ráð inn auki lík urn­ ar á að Kaup þing og aðr ir stofn fjár­ eig end ur vilji freista þess að spari­ sjóð ur verði á fram rek inn í Borg ar­ nesi. Ef á ætl an ir væru uppi um ann­ að hefði ut an að kom andi að ili ver ið ráð inn í starf spari sjóðs stjóra. Rík banka leynd Að spurð ur seg ir Bern hard að bein og ó bein fjár fest ing í Ex­ ista hafi ver ið langstærsti á hrifa­ vald ur þess hvern ig eig ið fé SPM brann upp á skömm um tíma. Ice­ bank lán in voru mun minni á hrifa­ þátt ur en skiptu engu að síð ur tölu­ verðu máli. „Mað ur heyr ir orðróm og jafn vel rætn ar kjafta sög ur um að að il ar tengd ir SPM hafi átt stóra hluti í Ice bank og feng ið „ó eðli­ lega“ fyr ir greiðslu í SPM til kaupa á því. Það hafi jafn vel átt stærst an þátt í því hvern ig eig ið fé sjóðs ins brann upp. Fyr ir því er eng inn fót­ ur. Banka leynd úti lok ar hins veg ar að þetta sé hægt að ræða og hreinsa mál ið út af borð inu. Í ljósi þess má segja að sé af fara sæl ast, úr því sem kom ið er, að snúa sér að fram tíð­ inni og stefnu mót un spari sjóðs­ ins næstu árin. Auð vit að væri best fyr ir mig að segja frá þessu öllu og leggja spil in á borð ið enda ekk ert að fela ann að en of á hættu samt út­ lán, en ég get það ekki og það verð­ ur að virða rétt þess ara að ila sem og ann arra við skipta vina SPM,“ seg ir Bern hard. Öfl ug ur bak hjarl hef ur allt að segja En hverju breyt ir í raun að koma fjár mála fyr ir tæk is á borð við Kaup­ þing að eign ar haldi í SPM? „Að­ koma Kaup þings er þeg ar far in að nýt ast okk ur mjög vel á ýms an hátt. Ég get nefnt að spari sjóð ur inn var í raun kom inn í ó við un andi láns­ fjár krísu því að gengi að fjár magni var mjög tak mark að. Þannig hef ur Kaup þing bakk að okk ur upp í fjár­ mögn un á fram hald andi starf semi. Þá njót um við nú að gangs að sér­ fræði að stoð hjá bank an um til dæm­ is í sam skipt um við er lenda lána­ drottna, að stoð við á hættu stýr ingu sem erfitt er að byggja upp í lít­ illi fjár mála stofn un og einnig að­ stoð í erf ið um út lána mál um sem framund an eru. Allt þetta eru veiga­ mik il at riði sem sann færa mig um að það var nauð syn legt að fá traust­ an og öfl ug an bak hjarl að sjóðn­ um,“ seg ir Bern hard. Hann bend ir á að á kveð inn vendi punkt ur sé að verða í um­ hverfi fjár mála stofn ana hér á landi. „Lág marks stærð fjár mála stofn ana á eft ir að breyt ast. Það má benda á að Fjár mála eft ir lit ið hef ur und an far­ ið tvö fald ast að um fangi sem þýð ir í raun að tvö falt meiri vinna er fyr­ ir banka og spari sjóði að svara er­ ind um og sinna upp lýs inga gjöf sem Fjár mála eft ir lit ið krefst. Þannig verð ur í fram tíð inni von laust fyr­ ir smæstu ein ing ar banka og spari­ sjóða að upp fylla þær skyld ur án þess að þurfa með ein um eða öðr­ um hætti að leita sér að stoð ar eða sam ein ast öðr um. Að því leyti var þessi að koma Kaup þings bæði nauð syn leg mið að við hvern ig mál­ in höfðu þró ast í SPM und an far ið og á eft ir að styrkja okk ur í fram­ tíð inni.“ Bern hard und ir strik ar að fram til þessa hafa Kaup þings menn reynst fyrri eig end um og starfs mönn um SPM vel í því erf iða ferli sem lið ið er. „Kaup þing hef ur nálg ast þetta mál af skyn semi og á á byrg an hátt sem nýr meiri hluta eig andi. Sam­ skipti við starfs menn þess hafa ein­ kennst af heil ind um og trausti og ég hef enga á stæðu til að ætla að svo verði ekki á fram.“ Stöðv um óarð bæra starf semi En er ekki ó hjá kvæmi legt að ein­ hverj ar breyt ing ar verði á starf semi SPM á næst unni? „Nú er ver ið að fara yfir rekst ur Spari sjóðs Mýra­ sýslu, hag ræða þar sem hægt er og breyta á hersl um ef þær hafa ver ið rang ar. Við erum að fara yfir helstu kostn að ar liði og ef ein hvers stað ar er ver ið að brenna pen ing um, ef svo má segja, verð ur því hætt. Við erum að end ur skoða rekst ur eins dótt ur­ fé lags okk ar í Reykja vík og þá ligg­ ur fyr ir að ný legu úti búi á Akra nesi verð ur lok að. Þar kepp ir spari sjóð­ ur inn við rót gró in úti bú frá öll um ís lensku bönk un um og hef ur það ekki náð nauð syn legri fót festu til að rétt læta á fram hald andi rekst ur. Við mun um á fram bjóða við skipta­ vini okk ar á Akra nesi vel komna í við skipti þó svo að sjálf stæðu úti búi verði lok að. Hér í Borg ar nesi á ég ekki von á að verði mikl ar breyt ing­ ar á grunn starf semi sjóðs ins. Við höf um traust og gott starfs fólk sem margt hef ur ver ið hér í ára tugi sem mun leggj ast á ár arn ar með okk ur í upp bygg ingu starf sem inn ar,“ seg­ ir Bern hard. Afi kom frá Hollandi En vend um nú kvæði okk ar í kross og leggj um störf in við fjár­ mála stofn un ina til hlið ar og for­ vitn umst ei lít ið um hagi Bern­ hards Þórs, upp runa og fer il. „Ég er fædd ur og al inn upp í Reyk holts dal þar sem for eldr ar mín ir, Bern hard Jó hann es son og Hug rún Hauks­ dótt ur ráku garð yrkju býl ið Sól­ byrgi til langs tíma. Afi minn hét Jó hann es Jóns son og var Hol lend­ ing ur. Hann flutti hing að til lands fyr ir stríð 1938 og var fyrst á Suð­ ur landi. Hann fór síð an aft ur út og gegndi her skyldu fyr ir þjóð sína, en hol lenska kon ungs fjöl skyld an hélt til í Bret landi þar sem land ið var hernumið af Þjóð verj um. Eft ir stríð kom hann aft ur til Ís lands og fór fljót lega að starfa á garð yrkju býl inu Lauga landi og nældi sér í Þur íði ömmu mína, sem þá var ráðs kona í Mun að ar nesi í Staf holtstung um. Þau fóru síð an að starfa hjá Skrúð hf. sem var hluta fé lag um garð yrkju á Klepp járns reykj um. Þau stofn uðu ný býl ið Dal bæ og byggðu þar garð­ yrkju stöð. Afi var mennt að ur garð­ yrkju fræð ing ur í Hollandi og hafði áður en hing að kom reynt ým is legt fyr ir sér, starf að við ó líka hluti, siglt um heims ins höf og var víð les inn. Hann var mjög merki leg ur karl fyr­ ir ýms ar sak ir. Syn ir afa voru Jón og Bern hard en Þur íð ur amma mín átti fyr ir son inn Ómar. For eldr ar mín­ ir kynnt ust þeg ar þau voru við nám á hér aðs skól an um á Núpi í Dýra­ firði og keyptu garð yrkju stöð ina Sól byrgi sem var eitt þriggja býla frá Skrúði hf. Ég er elst ur þriggja sona þeirra. Eft ir upp vöxt inn fór ég líkt og al­ gengt var með bænda syni þá og fet­ aði braut for eldr anna; fór í Garð­ yrkju skól ann. Þó svo lífs starf ið hafi ekki orð ið við garð yrkju þá hef ég mjög gam an af rækt un, á lít ið gróð­ ur hús í garð in um okk ar hér í Borg­ ar nesi og rækta svo lít ið af mat­ jurtum. Er til dæm is með belgja­ baun ir eins og afi rækt aði á sín­ um tíma og á af leggjara af vín við­ arplöntu sem hann flutti með sér frá Hollandi eft ir stríð.“ Með ýms an bak grunn Eft ir að Bern hard lauk garð­ yrkju námi starf aði hann við eitt og ann að. „Ég vann ýmis verka manna­ störf, var til dæm is á dekkja verk­ stæði um tíma og í Plast prenti þar sem ég var með al ann ars upp vask ari fyr ir prent ar ana þó starf ið héti að vísu að stoð ar mað ur í prent sal. Þó að það hafi aldrei ver ið inni í mynd­ inni hjá mér að fara í há skóla nám þá fór það nú svo að fyr ir til vilj­ un kynnt ist ég skól an um á Bif röst og fór þang að til náms árið 1997. Ég ræddi með al ann ars við sveit­ unga minn sem hafði ver ið í skól­ an um, sá skóla blað út skrift ar nema á Bif röst og heill að ist af ýmsu sem þar kom fram. Ég lauk prófi úr við­ skipta deild skól ans og fór eft ir það að vinna hjá Bún að ar bank an um um tíma áður en ég fór í fram halds nám til Ed in borg ar. Eft ir náms dvöl er­ lend is réð ist ég til kennslu og varð lekt or við Há skól ann á Bif röst og síð ar deild ar for seti við skipta deild ar um tíma. Eft ir það var ég um tíma fjár mála ráð gjafi hjá ParX í Reykja­ vík og vann verk efni fyr ir að ila eins og Lands virkj un, Lands net og sveit ar fé lög á höf uð borg ar svæð inu, en kom til starfa í Spari sjóð Mýra­ sýslu í Borg ar nesi fyr ir rúmu ári síð an.“ Fátt meira hressandi en göng ur Bern hard er gift ur Jón ínu Lauf­ eyju Jó hanns dótt ur frá Stein um í Staf holtstung um. Sam an eiga þau þrjú börn sem nú eru níu, sjö og tveggja ára. „Við höfð um lít­ ið þekkst í upp vexti okk ar, enda úr sitt hvoru skóla hverf inu, þó ekki sé nú langt á milli æsku heim ila okk ar svona í beinni loft línu. Við Jón ína kynnt umst á balli í Hreða vatns skála eins og al gengt var með ó tal mörg pör með an sum ar böll in voru og hétu. Við rækt um bæði tengsl in við sveit ina og för um þang að reglu lega til tengda for eldra minna og er það okk ur mjög dýr mætt. Lík lega verð­ ur mað ur alltaf svo lít ill sveita dreng­ ur í sér. Við eig um nokk ur hross og um næstu helgi ætla ég sam kvæmt venju að fara í göng ur og rétt ir með Tungna mönn um enda hef ég afar gam an af því. Fátt er skemmti­ legra og meira hressandi fyr ir sál og lík ama en að upp lifa nátt úr una og störf in til sveita í fjár ragi á haustin,“ seg ir Bern hard Þór Bern hards son að lok um. mm Úr garð yrkju, prent un og af dekkja verk stæði í við skipta fræði og nú SPM: Bern hard Þór tek ur við starfi spari sjóðs stjóra „Út frá efna hags á stand inu í land inu og að stæð um á fjár mála mörk uð um al mennt verð ur þetta erfitt verk efni en jafn framt mik il á skor un eft ir darrað ar dans lið inna mán aða í mál efn um spari sjóðs ins,“ seg ir nýr spari sjóðs stjóri, Bern hard Þór Bern- hards son. Hjón in Bern hard Þór og Jón ína Lauf ey með börn um sín um á hest baki á hlað inu á Stein um í Staf holtstung um.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.