Skessuhorn - 26.11.2008, Side 28
Íslenskar barna- og
unglingabækur
DRAUGAHÖNDIN
Bjarni Bjarnason
Myndskr.: Kjartan H.
Grétarsson
Mamma var búin að biðja
Kolbein um að passa sig á
sjóðandi heitu fótabaðsvatn-
inu. En hann var í sjóræn-
ingjaleik og það virtist svo
upplagt að láta skipið sigla á
alvöru vatni í balanum. Og
úbbs . . . hann gleymdi sér.
Óhlýðnaðist mömmu sinni.
Það hafði hann aldrei ætlað
sér að gera.
Á ferð sinni um bæinn
leitar Kolbeinn að svari við
þeirri spurningu hvers vegna
maður gerir stundum hluti
sem stríða gegn betri vit-
und. Og síðan hefur eitthvað
óskaplega dularfullt komið
fyrir höndina á honum . . .
96 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-21-1
Leiðb.verð: 2.980 kr.
SAGA UM STELPU
Kristín R. Thorlacius
Myndskr.: Erla Sigurðardóttir
Í sveitinni áttu allir að gera
eitthvað til gagns og stelp-
unni fannst alls ekki leiðin-
legt að reka kýrnar. Þær voru
notalegur félagsskapur. En
á næsta bæ var hundurinn
Bólu-Bangsi. Það var vissara
að vara sig á honum.
32 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-07-5
Leiðb.verð: 2.480 kr.
Íslensk skáldverk
BLÓÐBERG
Ævar Örn Jósepsson
Voveiflegir atburðir við Kára-
hnjúka eru rannsakaðir sem
hugsanlega mannskæðasta
hryðjuverkið á Íslandi.
Blóðberg er þriðja sagan
eftir Ævar Örn þar sem
lögreglumennirnir Stefán,
Katrín, Guðni og Árni takast
á við flókin morðmál.
403 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-10-5
Leiðb.verð: 1.980 kr. Kilja
HÁLMSTRÁIN
Magnús Sigurðsson
Sögumaður er ungur Íslend-
ingur, staddur í sólríkri borg
við Miðjarðarhafið og glímir
þar við orðsins list. Óvel-
komnar hugsanir ásækja
hann eins og draugar úr forn-
um sögum, heimþrá gerir vart
við sig og ekki er laust við að
hitasvækjan þarna suður frá
trufli einbeitingu hans.
Magnús Sigurðsson er ung-
ur höfundur sem stígur hér
fram á ritvöllinn með sína
fyrstu bók. Stíllinn er fágaður
og sögupersónurnar búa um
sig í huga lesandans.
128 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-09-9
Leiðb.verð: 3.980 kr.
LAND TÆKIFÆRANNA
Ævar Örn Jósepsson
Ísland var land tækifæranna
í augum Mareks Pawlak. Hér
ætlaði hann að hefja nýtt líf
ásamt unnustu sinni og bróð-
ur, réttu megin laganna og
laus við alla fortíðardrauga.
Hann fór að vinna í bygg-
ingabransanum – en sá svo
ný tækifæri sem hann gat
ekki með góðri samvisku lát-
ið ónotuð.
Líkt og Marek var Daníel
Marteinsson í byggingabrans-
anum, þótt á öðrum forsend-
um væri. Á undraskömmum
tíma varð hann einn ríkasti
maður landsins, svellkaldur
útrásarvíkingur sem baðaði
sig í kastljósi fjölmiðla og að-
dáun almennings jafnt sem
ráðamanna.
Haustið 2008 reynist ör-
lagaríkt. Andrzej, bróðir
Mareks, finnst myrtur og stór-
kostleg spilaborg Daníels og
útrásarvina hans hrynur, með
skelfilegum afleiðingum fyrir
alla íslensku þjóðina. Þegar
illa útleikið lík Daníels finnst
í hálfkláruðu risaeinbýlishús-
inu (sem hann var að reisa í
stað þess sem hann lét rífa)
reynist því enginn skortur á
grunuðum . . .
Rannsóknarlöggurnar Katr-
ín, Guðni, Árni og Stefán
finna fljótlega tengsl á milli
þessara gjörólíku manna – en
hvort þau skipta einhverju
máli er svo allt annar hand-
leggur.
356 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-16-7
Leiðb.verð: 4.980 kr.
SANDÁRBÓKIN
Pastoralsónata
Gyrðir Elíasson
Fráskilinn málari sest að í
hjólhýsabyggð og hyggst
einbeita sér að því að mála
tré. Dvöl hans í þessari sér-
kennilegu byggð er öðrum
þræði hugsuð til að freista
þess að öðlast hugarró. Ýmis-
legt reynist þó standa í veg-
inum.
Gyrðir Elíasson er einn
listfengasti rithöfundur þjóð-
arinnar. Sandárbókin er nýr
áfangi í höfundarverki hans
og var lofuð einróma af
lesendum og gagnrýnend-
um þegar hún kom út árið
2007.
118 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-9772-7-8
Leiðb.verð: 1.980 kr. Kilja
SKÍTADJOBB
Ævar Örn Jósepsson
Árni, nýliðinn í rannsóknar-
lögreglunni, og þrautreynd-
ur yfirmaður hans, Stefán,
mæta á vettvang þar sem
maður hefur látið lífið eftir
að hafa fallið niður af hárri
íbúðablokk.
Skítadjobb er fyrsta sag-
an eftir Ævar Örn þar sem
lögreglumennirnir Stefán,
Katrín, Guðni og Árni takast
á við flókin sakamál. Eftir
bókinni hafa verið gerðir vin-
sælir sjónvarpsþættir, Svartir
englar.
347 bls.
Uppheimar
ISBN 978-9979-659-11-2
Leiðb.verð: 1.980 kr. Kilja
Sögumaður er hinn góðkunni útvarps- og fréttamaður Finnbogi Hermannsson.
Stíllinn ætti að koma kunnuglega fyrir sjónir þeim sem hafa hlustað á pistla Finn-
boga gegnum tíðina, góðlátleg kímnin á sínum stað og tekur völdin í textanum.
Reykjavík eftirstríðsáranna lifnar við fyrir galdur tungumálsins.
Í húsi afa míns
. . . makalaus bók