Skessuhorn - 03.03.2010, Blaðsíða 5
Blaðið verður prentað í 25.000 eintökum
og mun það liggja frammi á öllum
upplýsingamiðstöðvum og fjölförnum
áningarstöðum ferðafólks á Vesturlandi,
aðkomuleiðum þangað og víðar.
Dreifing þess hefur verið afar góð og blaðið
víðlesið, enda hefur það öðlast sess sem helsta
uppflettirit ferðamanna um Vesturland.
Ferðablaðið mun áfram birta góðar upplýsingar
og staðarlýsingar fyrir ferðafólk um Vesturland
ásamt fjölda fallegra mynda af svæðinu. Meðal
efnis er þjónustuskrá fyrirtækja, viðburðaskrá
sumarsins, héraðslýsingar fyrir Borgarfjörð,
Dali, Snæfellsnes og Hvalfjarðarsveit ásamt
Akranesi, Borgarnesi og öðrum stærstu
þéttbýlissvæðum á Vesturlandi. Í blaðinu er
einnig að finna ábendingar um aðra
áhugaverða viðkomustaði og viðburði sem
vert er að sækja. Blaðið er litprentað í A5
broti og verður um 120 blaðsíður.
VESTURLAN
D
2010
Útgefandi: S
kessuhorn -
Fréttaveita
Vesturland
s
Sími: 433 5
500 - www.
skessuhorn
.is
Ferðablaðið
Vesturland 2010 kemur út 1. maí.
Ve
tu
r á
V
es
tu
rla
nd
i
En
gl
ish
V
er
sio
n
Pa
ge
1
00
-1
10
ferðablaðið
Ferðablaðið Vesturland 2010
Tíu ára reynsla – góð dreifing – ánægðir viðskiptavinir
Hnitmiðuð
markaðssetning
Meðal nýjunga:
English Version og Vetur á Vesturlandi
English Version og vetur á Vesturlandi
Ýmsar nýjungar verða í þessu blaði frá fyrri útgáfum. Meðal annars verða þjónustuaðilar sem nýta
sér það auðkenndir á kortum innan síns svæðis með númeri, þannig að auðvelt sé að finna
staðsetningu þeirra út frá þjónustuskrá, umfjöllun eða auglýsingu.
Þá verður að þessu sinni 10 síðna kafli um helstu ferðamannasvæði Vesturlands á ensku. Kaflinn
verður vel merktur á forsíðu og mun það auka auglýsingagildi blaðsins mikið þar sem það mun
einnig gagnast erlendu ferðafólki á svæðinu.
Ferðaþjónustufyrirtækjum gefst nú kostur á að kynna sérstaklega möguleika í ferðaþjónustu að
vetri. Vetur á Vesturlandi verður einnig merktur inn á forsíðu blaðsins og lengir endingartíma
blaðsins til muna.
Auglýsingasala og
þjónustuskráning
Panta þarf auglýsingapláss og þjónustuskráningar tímanlega eða í síðasta lagi 31. mars (miðvikudag
fyrir páska). Stefnt er að útgáfunni þetta snemma þar sem fyrirhugaðar eru ferðasýningar
innanlands í byrjun maí. Um sölu auglýsinga og skráningu þjónustuskrár í blaðinu sér Anna
Björgvinsdóttir. Netfang hennar er anna@skessuhorn.is og sími 433-5500.
Útgefandi: Skessuhorn – Fréttaveita Vesturlands, Kirkjubraut 54-56, 300 Akranesi.
Sími. 4335500, www.skessuhorn.is og skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn
Ritstjóri Ferðablaðsins
Vesturlands 2010 er Jóhanna
Harðardóttir blaðamaður.
Hægt er að senda henni
upplýsingar um áhugavert efni
á netfangið: johanna@hlesey.is
eða hringja í síma 566-7326.