Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2010, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 21.04.2010, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL Í síð ustu viku var hald in síð bú- in af mæl is há tíð fé lags mið stöðv ar- inn ar Arn ar dals á Akra nesi, en 12. jan ú ar á þessu ári voru 30 ár lið- in frá því fé lags mið stöð in var opn- uð. Af mæl is dags ins var þá minnst með bæj ar stjórn ar fundi unga fólks- ins, sem hald inn var þann dag enda bar hann upp á þriðju dag, sem er dag ur bæj ar stjórn ar funda á Akra- nesi. Um kvöld ið komu ung menn- in svo sam an í súkkulaði köku veislu á Arn ar dal, svo lít illi af mæl is veislu. Heiðrún Janus ar dótt ir og Lúð vík Gunn ars son for stöðu menn Arn- ar dals segja að á þess um tíma hafi ver ið mik ið að gera hjá ung ling- um á Akra nesi og því talið betra tóm til að und ir búa af mæl is há tíð nú á vor dög um. Stutt var lið ið frá þrett ándu brenn unni þar sem jafn- an yfir eitt hund rað ung ling ar taka virk an þátt. Í fram haldi af því verk- efni er síð an efnt til pizzu veislu og gistinæt ur í fé lags mið stöð inni. „Ég veit að það eru marg- ir for stöðu menn fé lags mið stöðva sem öf unda okk ur af svona mik- illi þátt töku ung linga í við burð- um eins og þrett ándu brenn unni,“ sagði Heiðrún þeg ar blaða mað ur Skessu horns hitti for stöðu menn- ina í spjalli í frí stunda mið stöð inni Þorp inu á fimmtu dag inn. Fé lags- mið stöð in Arn ar dal ur, sem er fyr ir 13-16 ára ung linga, flutti í Þorp ið í árs byrj un 2008 af Kirkju braut inni. Þar er einnig til húsa starf semi sem var áður í Hvíta hús inu, fyr ir eldri ung linga, og Fjör fisk ar, tóm stunda- starf fyr ir fötl uð börn. Þá hef ur Sí- mennt un ar mið stöð in á Vest ur landi haft að stöðu fyr ir kennslu og nám- skeið und an farna tvo vet ur auk þess sem ýms ir í þrótta- og tóm stunda- hóp ar fá inni í Þorp inu með sína við burði. Þannig hef ur tóm stunda- mið stöð in Þorp ið ver ið ið andi af lífi frá flutn ingi æsku lýðs starf sem- inn ar í hús ið. Glæsi leg af mæl is dag skrá Þeg ar blaða mað ur ræddi við Heiðrúnu og Lúð vík var af mæl is- há tíð in kom in vel af stað og ljóst að þátt taka og mæt ing á við burð- ina yrði góð. Seinnipart mánu- dags var öll um bæj ar bú um boð ið í kaffi og kök ur auk þess sem ljós- mynd ir frá starf inu í 30 ár prýddu veggi húss ins. Á þriðju dags kvöld- inu var skemmti kvöld sem var vel heppn að. Á mið viku dag var svo kaffi húsa kvöld sem for varn ar hóp- ur Fjöl brauta skóla Vest ur lands hélt ut an um. Þar var einnig hús fyll- ir. Dans leik ur var svo á dag skránni á fimmtu dags kvöld inu og sund- laugarpar tí á Jað ars bökk um á föstu- dag. „Menn ing ar ráð Vest ur lands veitti okk ur mynd ar leg an styrk sem gerði okk ur kleift að gera þessa af- mæl is há tíð veg lega og þökk um við kær lega fyr ir það“ seg ir Lúð vík. Hann seg ir það al gjöra bylt ingu að koma í Þorp ið af Kirkju braut- inni. „ Þetta stóra og góða hús næði býð ur upp á svo mikla mögu leika. Reynd in hef ur líka ver ið sú að að- sókn in hef ur auk ist til muna, sér- stak lega hjá eldri ung ling un um,“ seg ir Lúð vík þar sem blaða mað ur geng ur með hon um um „Þorp ið.“ Arn ar dal ur er með sína bæki stöð í suð ur hluta húss ins og Hvíta hús ið að norð an. Á veggj um eru mynd- ir frá starf inu um tíð ina, marg- ar mjög skemmti leg ar. Þar sést að brydd að hef ur ver ið upp á ýmsu og ekki er síst skemmti legt að sjá mörg kunn ug leg and lit, sem sum hver eru fyr ir tals verðu kom in í full orð- inna manna tölu. Að spurð segja þau Heiðrún og Lúð vík að á hverj um degi komi að jafn aði um eða yfir hund rað manns í tóm stunda starf ið í Þorp inu. Ný breytn in alltaf nauð syn leg Lúð vík seg ir að breyt ing ar í fram boði af þrey ing ar í fé lags mið- stöðv um hafi ver ið mikl ar síð ustu fimmt án árin, ekki síð ur á Akra nesi en ann ars stað ar. „Ein ar Skúla son fyrr ver andi for stöðu mað ur Arn ar- dals sagði að í kring um 1990-1995 hefði stærsti hóp ur inn kom ið til að horfa á Stöð-2 eða vid eo. Þá voru mörg heim ili ekki kom in með af- rugl ara og jafn vel ekki mynd bands- tæki. Þannig að vid eo kvöld in voru líka mjög vin sæl. Seinni árin hef- ur þörf in auk ist til muna á því að brydda upp á ein hverju nýju, þótt alltaf séum við með þau leik tæki hér sem ekki er greið ur að gang- ur að ann ars stað ar, eins og billj- ard borð in, borð tenn is og fót bolta- spil in. Það er sí fellt þörf á ein hverri ný breytni og dag skrá in hjá okk ur má aldrei fest ast í ein verj um vana, svo krakk arn ir fái ekki leið á hlut- un um. Brjóst syk ur s kvöld in eru til dæm is mjög vin sæl. Leikja kvöld- in líka þar sem far ið er í ýmsa sam- kvæm is leiki. Þar virð ast krakk arn ir njóta sín mjög vel og þannig mætti á fram telja,“ seg ir Lúð vík. Hann nefn ir þá breyt ingu sem orð ið hafi á af þr ey ingu ung linga, að hér áður fyrr voru ung ling ar að eins á tveim- ur fót bolta æf ing um í viku, en með til komu Akra nes hall ar inn ar séu æf- ing arn ar orðn ar fjór ar í viku og jafn vel einn leik ur að auki. Ein set inn skóli breytti miklu Heiðrún nefn ir að eft ir að grunn- skól inn varð ein set inn hafi tóm- stunda tím inn orð ið sam felld ari hjá börn um og ung ling um og kall að fram breyt ing ar á tóm stund un um. Einnig hafi fjölg un val greina í skól- un um á Akra nesi kom ið í stað inn fyr ir ým ist klúbba starf í fé lags mið- stöð inni. „Við skipu leggj um dag skrána í góðu sam starfi við um sjón ar menn fé lags starfs í bæði Grunda skóla og Brekku bæj ar skóla. Við fögn- um góðu tóm stunda starfi í skól- un um öll um og í þrótta fé lög un um. Við erum ekki í sam keppni við þau, held ur er það gat an og ein semd in sem við erum að keppa við. Það er ekki síst okk ar hlut verk sem vinn um í fé lags mið stöðv un um að sinna leit- ar starfi, greina þá ein stak linga sem ekki finna sig í hefð bundnu tóm- stunda- og í þrótta starfi. Þess vegna erum við með svo kall aða vina hópa. Við leit umst við að fara í heim sókn- ir með þá ung linga og kynna þeim þá mögu leika sem í boði eru. Við höf um ver ið í góðu sam stafi við mörg fé lög, eins og t.d. skát ana og Björg un ar fé lag ið. Sem bet ur fer eru marg ir sem hafa fund ið sig í því starfi. Það er okk ar tak mark að öll börn og ung ling ar finni sér holl og góð við fan gefni,“ sagði Heiðrún Janus ar dótt ir að end ingu. þá Í sam keppni við göt una og ein semd ina Af mæl is há tíð in í síð ustu viku var mjög vel sótt. Lúð vík Gunn ars son og Heiðrún Janus ar dótt ir for stöðu menn fé lags mið stöðv ar- inn ar Arn ar dals. Mörg um kunn ug leg um and lit um bregð ur fyr ir þeg ar skoð að ar eru gaml ar mynd ir frá við burð um í Arn ar- dal. Í fé lags mið stöðv un um er fund ið upp á ýmsu til skemmt un ar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.