Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2010, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 21.04.2010, Blaðsíða 15
15ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL Rétt lögheimili við bæjar- stjórnarkosningar 2010 Við komandi bæjarstjórnarkosningar sem fram fara þann 29. maí n.k. er nauðsynlegt að íbúar séu skráðir rétt til heimilis. Þeir sem flutt hafa búferlum nýverið eða eru ekki rétt skráðir í íbúaskrá og hafa ekki tilkynnt flutning lög­ heimilis, eru hvattir til að ganga frá tilkynningu sem fyrst á bæjarskrifstofunni Stillholti 16­18, þjónustuveri 1. hæð. Afgreiðslutími er frá 09:30 – 12:00 og 12:30 – 15:30. Kjörskrá er miðuð við íbúaskrá þremur vikum fyrir kjördag. Uglan 2010 Vorið er komið! Við bjóðum til fjölskyldu-og menningarhátíðar á Uglukletti. Sumardaginn fyrsta 22.apríl milli kl. 14-16. Sýning á verkum barnanna og kaffisala. Ágóðinn mun renna til kaupa á útileikföngum fyrir börnin. Enginn posi á staðnum. Foreldrar, systkini, vinir, kunningjar, fjarskyldir ættingjar, allir velkomnir! Stjórn foreldrafélags Uglukletts. Fundur um atvinnumál Gamla Kaupfélagið við Kirkjubraut, föstudaginn 23. apríl kl. 16:00 til 19:00. á Akranesi Á fundinum verða kynnt ýmis verkefni og aðgerðir sem komin eru í farveg á vegum Akraneskaupstaðar auk þess sem kynntir verða þeir möguleikar og úrræði sem í boði eru af hálfu Vinnumálastofnunar fyrir atvinnuleitendur og fyrirtæki. Á fundinn mæta forsvarsmenn fyrirtækja og ræða stöðu og horfur í atvinnumálum á Akranesi. Hópastarf og pallborðsumræður. Nánari dagskrá auglýst síðar. Starfshópur um átak í atvinnumálum Þeg ar úr slit voru kynnt í stærð- fræði keppni grunn skóla nema á Vest- ur landi ný lega, sem Fjöl brauta skóli Vest ur lands stend ur fyr ir, vakti at- hygli frá bær frammi staða nem enda Grunn skól ans í Borg ar nesi. Ár ang ur Borg nes inga var svo góð ur að varla gat ver ið um neina til vilj un að ræða, enda nem end ur úr skól an um áður stað ið sig vel í keppn inni. Vænt an- lega á þarna góð ur stærð fræði kenn- ari ein hvern hlut að máli og þess vegna var upp lagt að eiga smá spjall við Ingu Mar gréti Skúla dótt ur kenn- ara sem fylgdi börn un um úr Borg ar- nesi í keppn ina en hún kenn ir stærð- fræði við GB á samt fleir um. Inga Mar grét er fædd og upp al- in í Siglu firði en flutt ist í Borg ar- nes haust ið 1993 á samt manni sín- um Inga Tryggva syni. „Ætl un in var að stoppa ekki lengi við í Borg ar nesi, en svo kunn um við á gæt lega við okk- ur, Ingi keypti fyr ir tæki og hér erum við enn þá. Hér er gott sam fé lag og gott að vera með börn en við eig um tvö, Guð rúnu 17 ára og Atla Stein- ar 13 ára,“ sagði Inga Mar grét í upp- hafi spjalls ins. „Það var nú svo erfitt að fá kenn- ara stöð ur á þess um tíma, að fyrsta vet ur inn kenndi ég mat reiðslu og sinnti svo al mennri kennslu í 1. bekk eft ir ára mót in. Ég fór síð an út í stærð fræði kennsl una, enda hef- ur hún alltaf ver ið mitt upp á halds- fag. Hún er grunn ur inn að öllu eins og ég segi bæði í gamni og al vöru við nem end ur mína. Um tíma var ég að kenna í 4.-6. bekk en núna seinni árin hef ég fært mig upp á ung linga stig- ið og kenni stærð fræði og nátt úru- fræði í 7.-10. bekk. Ég reyni að hvetja nem end ur mína til að stunda nám ið vel og í fram haldi af grunn skól an um velja sér rétt ar braut ir í fram halds- skóla með á fram hald andi hag nýtt nám í huga.“ Bland að ar kennslu að ferð ir Að spurð hvort hún beiti ein hverj- um sér stök um að ferð um við stærð- fræði kennsl una, svar ar Inga Mar- grét því til að hún hafi svona bland- aða að ferð. „Það er nauð syn legt að nem end ur fái við fangs efni við sitt hæfi og séu örv að ir til ár ang urs. Í þeim til gangi skipt um við í Grunn- skól an um í Borg ar nesi bekkj um gjarn an í þrjá hópa og telj um okk- ur þannig koma til móts við þarf ir allra nem enda. All ir með náms efni við hæfi. Þeir sem standa sig mjög vel geta síð an byrj að á fram halds- skóla á föng um í 10. bekk. Til koma Mennta skóla Borg ar fjarð ar hef ur skipt sköp um fyr ir þessa krakka og hafa nem end ur okk ar stað ið sig afar vel í MB. Í þeim mikla nið ur skurði sem nú herj ar á okk ur á reynd ar að taka fyr ir að mennta skól ar fái heim- ild til að taka við grunn skóla nem- end um, en við erum að von ast til að geta hald ið á fram. Síð an MB byrj- aði hafa grunn skól arn ir í Borg ar- byggð ver ið í þró un ar verk efni með MB sem heit ir Borg ar fjarð ar brú- in og snýst um að hafa skil in milli grunn- og mennta skóla „fljót andi.“ Þessi vinna hef ur geng ið vel og því væri það mjög mið ur ef þetta verk- efni yrði ekki á fram. Því þarf að fara var lega í þeim mikla nið ur skurði sem boð að ur er í skóla mál um. Við í Grunn skól an um í Borg- ar nesi erum á byggi lega svo lít ið í halds sam ir kenn ar ar og leggj um bæði á herslu á lær dóm á helstu regl- um stærð fræð inn ar og al menn an skiln ing. Ég held að þessi kunn átta skapi á kveðna til finn ingu og rök- hugs un fyr ir reikn ingi. Við kenn- um að al lega svo kall að nýja náms- efni sem bygg ir mik ið á skiln ingi á stærð fræð inni. Okk ur finnst reynd- ar ljóð ur inn við það efni að æf ing- ar og dæmi sem fylgja eru oft of fá og yf ir ferð in full hröð. Einnig er stund um full mik ill texti sem fylg ir hverju dæmi og hræð ir þá frá sem standa höll um fæti í lesskiln ingi. Stærð fræð in er grunn ur inn að öllu Því not um við gam alt stærð fræði- efni með því nýja. Það má því segja að við blönd um sam an gömlu og nýju kennslu efni sem okk ur finnst koma vel út.“ Fjöl breytni nauð syn leg Inga Mar grét seg ist hafa mjög gam an af kennsl unni og reynd ar þyki henni mjög gam an að vinna með börn um og ung ling um, ekki síst ung ling um. En fær hún aldrei leið á stærð fræð inni? „Nei, eig in lega ekki. Auð vit að er ekki jafn gam an alla daga og þá leyf ir mað ur sér stund um að breyta að eins út af venj unni. Við meg um auð vit að ekki gleyma okk ur al veg yfir kennslu bók un um og reyn um að gera eitt hvað skemmti legt fyr ir utan þær. Því er stærð fræði keppn- in mjög góð til breyt ing í kennsl- unni. Okk ur hef ur tek ist að virkja krakk ana til þátt töku í keppn inni. Þau hafa sýnt mik ið frum kvæði sjálf, keppn is skap ið hef ur geisl að frá þeim. Þetta er hvati fyr ir þau og fyr ir vik ið fáum við kannski enn fleiri á huga sama og góða nem end- ur í stærð fræði en ella hefði orð- ið. Nám ið á að vera þannig að það sé sí fellt að ögra og hvetja. Þannig held ég að stærð fræði keppn in hafi náð til gangi sín um, að minnsta kosti í okk ar skóla. Þessi góði ár- ang ur nem enda okk ar í ár er að stærst um hluta þeirra eig in dugn- aði að þakka. Það eru for rétt indi að kenna svona frá bær um krökk- um. Ég er líka bara einn kenn ari af góð um kenn ara hópi í Grunn skól- an um í Borg ar nesi. Okk ur tekst þetta í góðri sam vinnu en erum um leið afar stolt af nem end um okk ar,“ sagði Inga Mar grét Skúla dótt ir að end ingu. þá Inga Mar grét Skúla dótt ir stærð fræði kenn ari í Borg ar nesi. Lokað eftir kl. 15 föstudag Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi verður lokuð frá kl. 15.oo föstudaginn 23. apríl vegna námskeiðahalds starfsfólks. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.