Skessuhorn


Skessuhorn - 28.07.2010, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 28.07.2010, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ Í síð asta þætti birt ist vís an ,,Eitt sinn þeytt ust út um nótt“ án höf und­ ar en nú hef ur mér ver ið bent á að hún sé eft ir Andr és Björns son eldri eða að minnsta kosti hafi ver ið eign uð hon um og mun ég hafa þann sann­ leik uns mér verð ur sýnt fram á ann­ an betri. Fleiri bregða sér á leik á nótt unni en kett irn ir þó það þoli kannske ekki allt of mikla birtu. Birg ir Hart­ manns son vann ein hvern tím ann með sm á vöxn um manni sem átti fjölda barna en kona sem vann með þeim fé lög um furð aði sig mjög á hvern ig svo smár mað ur hefði get ið af sér svo mörg börn. Þá orti Birg­ ir: Mér finnst ég verða að fræða yður frú ­ um nátt úr unn ar lög. Með litl um hamri lag inn smið ur lem ur bara fleiri slög. Guð mund ur Krist jáns son orti umþá þró un sem verð ur í hjóna­ band inu þeg ar líð ur á æv ina: Ást ar bál í elli kynt enga veit ir gleði þeg ar sam an þurrt og lint þarf að deila geði. Oft er tal að um jafn rétti kynj­ anna en þess ber jafn an að gæta að það nái jafnt yfir rétt indi og skyld­ ur. Garð ar Hall dórs son kvað um þær ó líku kröf ur sem gerð ar eru til kynj anna: Af körl um heimt ast holds ins ris hefj ist för til losta gjánna en eig in kon ur ein ung is auka bil ið milli hnjánna. Losta gjár munu vera þekkt ör­ nefni víða um land og tíð ar skoð un­ ar ferð ir manna á þær slóð ir. Manni nokkrum varð það á að fara eitt hvað að sinna annarri konu en sinni eig­ in enda var hans ekta víf far ið að láta á sjá eft ir mikla vinnu og yf ir höf uð ó gæti lega brúk un. Þá kvað Björn St. Guð munds son: Synd in heit í leyni lá, ljúft var stund ar gam an og betra en að brölta á bein un um ein um sam an. Kunn ingi Birg is Hart manns son­ ar lenti í svip uð um að stæð um og hljóp kona sú und an manni sín um og tók upp sam búð með kunn ingj­ an um. Rúmu ári seinna hitti Birg ir kon una og þótti hún hafa lát ið á sjá enda vafa laust þurft að hafa meira um leikis en hún var vön áður: Menn í grann ans garði sjá grös og tekst að ná þeim. ­ Þau gulna fljótt hin grænu strá gangi mað ur á þeim. Ekki veit ég hver orti eft ir far andi en marg ir gætu haft gagn af þessu heil ræði: Finn ég sum ar auka ást um mitt hjarta streyma, það hefði ver ið skömminni skást að skilj´ana eft ir heima. Lengi vel var ís lensk vísna gerð mjög kenn inga rek in og þótti jafn­ vel að als merki á skáld skap að kenn­ ing ar væru bæði marg ar og tor­ skild ar. Sum ir léku sér þó að búa til nýj ar kenn ing ar og jafn vel bregða menn slíku enn í dag. Agn ar Jóns­ son á Ill uga stöð um á Vatns nesi, sem drukkn aði í sjó róðri 1875, orti ein­ hvern tím ann þeg ar hann sá til ferða konu sem hann taldi að ætti er indi við einn fé laga sinn: Hing að fær ist nú á ný nist is kæra jörð in en skjóma stær ir skyggn ist í Skugga læra fjörð inn. Vænt an lega hef ur ekki ver ið hægt að segja um þá góðu konu eins og Bjarni frá Gröf kvað um aðra lít ið brúkaða heið urs matrónu: Ást fang in hún aldrei varð, æv in týr ið sef ur. Inn í henn ar ald in garð eng inn kom ið hef ur. Sú góða kona hef ur vænt an lega ekki þurft að hafa yfir eft ir far andi ,,Sveitapíu heit“: Aldrei skal ég eiga púð ur. Aldrei skal ég reikja ,,Fíl“. Aldrei hlusta á ástaslúð ur. Aldrei kyssa menn í bíl. Aldrei slá á ásta streng. Aldrei blikka sveita dreng. Aldrei faðma, aldrei klappa. Aldrei seint um göt ur vappa. Fyr ir nokkrum árum eins og reynd ar oft ar var rætt um ný at­ vinnu skap andi tæki færi og auð vit að var rætt um hví lík ir snill ing ar Borg­ firð ing ar væru al mennt, þó jafn sjálf­ sagt sé nátt úr lega að all ir viti það. Krist ján B. Snorra son var þá úti bús­ stjóri Bún að ar bank ans í Borg ar nesi en Guð laug ur Ant ons son stjórn aði Nauta stöð inni. Bjarki Már Karls son sendi mér eft ir far andi tölvu póst: Þótt sjáv ar afl inn færi oss fé finnst þeim sem um hag vorn þinga að Ís lands mesta auð lind sé erfða mengi Borg firð inga. Svo glutrist ekki í grýtta jörð gena mengi stór snill inga þarf sæð is banka í Borg ar fjörð byggð an fyr ir skatt pen inga. Ekki þarf með aug lýs ingu úti bús stjóra að ráða þessi eini úr Upp lyft ingu auð vit að skal fá’ða! Bú ast má í bið röð við Borg firð inga sk ara. Ó þreyju fulla með inn legg ið óð fúsa að spara. Ef inn legg ið læt ur á sér standa þó á kaft sértu knú inn þá er á staðn um þér til handa þjón ustu full trú inn. Í ná grenn inu er Nauta stöð nýta mætti reynslu það an. En hug mynd þessi­ góði gvöð ger ir mann sko dauð skelk að an. Menn eiga víst að mæta þar og muna bara að slappa af úr því Gulli og Ingi mar al van ir þér tappa af! Bank inn leys ir byggða vanda brýn var orð in þörf in. Nú má segja að borg firzk blanda beztu skapi störf in. Ef út við flytj um ætt ar smér auð legð lofa hag fræð ing ar og bráð um verða í heimi hér hund rað millj ón Borg firð ing ar. Með an fjöl miðl arn ir voru ekki bún ir að drepa nið ur hæfi leika fólks til að tala sam an og miðla hvort öðru fróð leik um kveð skap, veð ur­ far, skepnu höld, ætt fræði og al menn tíð indi voru fróð ir og skemmti leg ir menn aufúsu gest ir í fásinn inu. Um einn slík an kvað Krist ján Sam son ar­ son frá Bugðu stöð um: Margt og fag urt fór hann með, föng til Braga sótti. Þeim sem baga bætti geð batna hag ur þótti. Lát um það verða loka orð in að sinni. Með þökk fyr ir lest ur inn, Dag bjart ur Dag bjarts son Hrís um, 320 Reyk holt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Vísnahorn Með litl um hamri lag inn smið ur - lem ur bara fleiri slög Skessuhorn hefur tekið upp nýtt smáauglýsingakerfi og er nú hægt að setja mynd með. Smáauglýsingar gagnast hvort sem þú þarft að selja eða kaupa bíl, barnavörur, heilsuvörur, húsnæði eða hvaðeina annað. Smáauglýsingar Skessuhorns njóta sívaxandi vinsælda og eru þúsundir manna sem nýta sér þær í hverri viku. Auglýsingar eru skráðar í gegnum www.skessuhorn.is Skráning fyrir klukkan 12:00 á þriðjudögum tryggir birtingu í næsta blaði. Markaðstorg Vesturlands Þarftu að selja eða kaupa? Nýjung!Smáauglýsingar nú einnig með mynd Verð á textaauglýsingu 950 kr. - Verð á textaauglýsingu með mynd 2.500 kr.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.