Skessuhorn - 21.09.2011, Síða 31
31MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER
Hamar ehf. er málmiðnaðarfyrirtæki með aðsetur
í Kópavogi, Sandgerði, Grundartanga, Akureyri,
Eskifirði og Þórshöfn.
Við leitum eftir:
Stálsmiðum, vélvirkjum, rafsuðumönnum og rennismiðum
á allar okkar starfsstöðvar.
Starfsmaður á
vélaverkstæði
Upplýsingar í síma
660-3613
Umsóknir sendist á
siggil@hamar.is
Eitt af okkar helstu markmiðum er
góður starfsandi á vinnustað og
fagleg vinnubrögð.
Gott vald á íslensku eða
ensku er skilyrði.
Samkeppnishæf laun í boði
Frábær vinnustaður, skemmtilegt fólk
Fullum trúnaði heitið
Ath. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Safnaskáli Byggðasafnsins í
Görðum á Akranesi var fullur út
úr dyrum sl. þriðjudag þegar efnt
var til hátíðar í tilefni útkomu
bókarinnar „Ríkisfang: Ekkert,“
eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur. Bókin
fjallar um flóttakonurnar sem fluttu
á Akranes haustið 2008 og ástæður
þess að þær lentu á flótta. Af þessu
tilefni var því einnig haldið upp
á að liðlega þrjú ár eru frá komu
þeirra á Akranes. Ætla má að á
fjórða hundrað gesta hafi mætt á
hátíðina, hlustað á upplestur, söng,
horft á palestínskan debkadans og
skoðað ljósmyndir og margvíslega
muni frá Palestínu. Þá var boðið
upp á arabískan mat sem konurnar
elduðu sjálfar handa gestum og
gangandi. Bókin var til sölu og
seldist það upplag sem komið var
með á staðinn á örskömmum tíma,
eða liðlega 100 bækur.
„Það var ákaflega gleðilegt að sjá
allt þetta fólk á staðnum. Húsið var
stappað og stemningin frábær! Og
allt í einu var komin mikil biðröð
fólks sem vildi kaupa bókina og fá
hana áritaða,“ segir Sigríður Víðis
Jónsdóttir, en hún er fædd og
uppalin á Akranesi og bjó þar fram
yfir tvítugt. Sigríður segir þetta
verkefni hafa verið mjög spennandi
og krefjandi, og þrátt fyrir að sagan
sé mjög átakanleg, hafi verkefnið
verið skemmtilegt.
Fyrir útgáfuveisluna var sett upp
ljósmyndasýning í Garðakaffi, auk
þess sem til sýnis voru margvíslegir
munir úr eigu kvennanna, meðal
annars búningar frá Palestínu
og útsaumaðir púðar. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, fyrrum
utanríkisráðherra, lagði ennfremur
til margvíslega hluti frá ferðalögum
sínum á svæðið. Sýningin verður
opin í nokkrar vikur í viðbót.
Skáldsögu líkust
Í upphafsorðum „Ríkisfang:
ekkert,“ segir höfundurinn að bókin
sé byggð á viðtölum sem tekin voru
við flóttakonurnar á tímabilinu
janúar 2009 til desember 2010.
„Í þeim naut ég aðstoðar
arabískumælandi túlks. Hvert viðtal
var tveir til þrír tímar og skrifað
nákvæmlega upp að því loknu. Á
því tveggja og hálfs árs tímabili sem
ég vann verkefnið fór ég einnig í
marga tugi óformlegra heimsókna
til fjölskyldnanna á Akranesi. Þá
eru ónefnd öll samtölin í síma
og komur þeirra suður til mín.
Í mars 2009 fór ég til
Íraks vegna bókarinnar
og heimsótti Al Waleed
flóttamannabúðirnar þar
sem flóttakonurnar höfðust
við í lengri og skemmri
tíma áður en þær komu
til Íslands. Í þeirri ferð
dvaldi ég í þrjá mánuði í
Damaskus og kynnti mér
aðstæður palestínskra
og íraskra flóttamanna
í Sýrlandi, Jórdaníu
og Líbanon,“ segir
höfundurinn Sigríður
Víðis Jónsdóttir m.a.
þar sem hún lýsir því
hvernig hún vann að
gerð sögunnar, en
þar aflaði hún mikilla
heimilda og studdist
einnig við eigin
mei s taraverke fn i .
Hún segir að ekki sé
hægt að segja allt í einni bók, en
sagan er átakanleg og ekkert undan
dregið. „Ég vildi að ég gæti sagt að
þessi bók væri skáldsaga. Því miður.
Allir atburðir í bókinni gerðust í
raun og veru.“
Neyðin í tjaldbúðunum
Sagan byrjar á því að höfundurinn
lýsir tjaldbúðum flóttafólksins. Með
góðfúslegu leyfi Sigríðar gluggum
við í upphaf þess kafla.
„Hvernig er að búa í tjaldi í
eyðimörk og komast hvergi í
skjól undan brennandi sólinni?
Hitamollan er kæfandi, hvergi
skugga að fá. Sól er hátt á lofti en á
samt enn eftir að rísa hærra. Getur
ekkert skyggt á hana? Kannski
sandstormur geti dregið ský fyrir
sólu. Hann veitir þó ekki mikið
skjól fínn sandurinn fyllir öll
vit, smýgur inn undir fötin, ofan
í lungun. Kæfir þá sem húka inni
í þunnum tjöldum með klút fyrir
andlitinu. Og bíða. Bíða eftir að
storminn lægi, bíða eftir að komast
í burtu úr flóttamannabúðum í
einskismannslandi. Einhver hlýtur
að heyra um neyð þeirra og láta
sig hana varða. Hjálparstofnanir
hafa þegar allt kemur til alls
ítrekað varað við lífsskilyrðum á
þessum stað. Á sumrin er ljósgulur
sandurinn brennheitur en yfir
vetrarmánuðina skríða tjaldbúar
skjálfandi undir teppi. Það er þó
sama hversu mörg teppin eru, þeim
hitnar ekki. Endalaus skjálftinn
þreytir en það er of kalt til að ná
að festa blund, kuldinn nær inn
að beini. Ísköld nóttin er óralöng
og virðist aldrei ætla að víkja fyrir
morgunbirtunni. Hvort er betra að
kafna úr hita eða frjósa úr kulda?
Ég er stödd í Al Waleed
flóttamannabúðunum í vesturhluta
Íraks. Sveifla myndavélinni og
veit ekki alveg hvað ég á að segja
eða gera. Nýkomin úr rúmgóðri
íbúð í Reykjavík, jólaútsölunum
var rétt að ljúka þegar ég lagði
af stað. Yfir tjaldbúðunum eru
undarleg þyngsli. Kannski það sé
sorgin, lamandi sorg yfir látnum
ástvinum, lífi sem einu sinni var
en er ekki lengur. Sumu er erfitt
að gleyma, sumt verður aldrei hægt
að komast yfir. Kannski þyngslin
orsakist af örvæntingu tjaldbúa yfir
því að gleymast úti í hrjóstrugri
eyðimörk og vera að öllu leyti upp
á aðra komnir. Aðra sem ef til vill
hafa lítinn áhuga á neyð þeirra,
jafnvel engan.“
Þess má að lokum geta að
næsta laugardag, 24. september,
munu Sigríður og söguhetjurnar í
bókinni árita bækur í Eymundsson
á Akranesi frá klukkan 1214, auk
þess sem lesnir verða valdir kaflar.
þá/ Ljósm. fh
Ríkisfang ekkert - sagan um
flóttakonurnar á Akranesi
Kápa
bókarinnar Ríkisfang:
ekkert!
Flóttakonurnar ásamt börnum sínum og Önnu Láru Steindal á
Safnasvæðinu sl. þriðjudag.
Fullt var út úr dyrum þegar konurnar árituðu bækurnar í Safnaskálanum í Görðum.
Önnur áritun þeirra verður næstkomandi laugardag kl. 1214 í Eymundsson á
Akranesi.
Skotvopnanámskeið
og veiðikortanámskeið
Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir umsækjendur
um skotvopnaleyfi og undirbúningsnámskeið fyrir
hæfnispróf veiðimanna.
Skráning fer fram á www.veidikort.is
Staðsetning: Grundaskóli Akranesi
Skotvopn bóklegt: 13. og 14. okt kl 18.00-22.00
Skotvopn verklegt: 15. okt kl 10.00 Skotsvæði.
Veiðikortanámskeið: 25. október kl 17.00-23.00
Staðsetning: Hótel Hamar
Skotvopn bóklegt: 20. og 21. okt kl 18.00-22.00
Skotvopn verklegt: 22. okt kl 10.00 Skotsvæði.
Veiðikortanámskeið: 23. október kl 11.00-23.00
Þátttakendur á skotvopnanámskeiðum þurfa að skila inn sakavottorði, læknisvottorði og passamynd
til skrifstofu sýslumanns fyrir námskeiðin. Læknisvottorðið þarf að vera sérstaklega útgefið vegna
skotvopnaleyfis. Skráning fer fram á vefnum veidikort.is. Nánari upplýsingar á veidikort.is.
Akranes
Borgarnes
Veiðikortanámskeiðið kostar kr. 10.500,- og
skotvopnanámskeiðið kr. 20.000.-