Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2011, Page 6

Skessuhorn - 12.10.2011, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER Kjalar missir hlutinn í HB Granda LANDIÐ: Kjalar, fyrirtæki Ólafs Ólafssonar sem kenndur er við Samskip, hefur framselt Arion banka öll hlutbréf félagsins í HB Granda hf. Um er að ræða hluta af skuldauppgjöri Kjalars við bankann. Við framsalið eignaðist Arion banki um 33% hlut í HB Granda. Í tilkynningu kemur fram að eignarhlutur bankans í fyrirtækinu verður settur í söluferli þegar aðstæður leyfa. -mm Afmælisnefnd verði skipuð AKRANES: Stjórn Akranesstofu lagði til á síðasta fundi sínum að bæjarráð skipi fimm fulltrúa í sérstaka afmælisnefnd sem hafi með höndum undirbúning ýmissa verkefna og viðburða í tengslum við 70 ára afmæli Akraneskaupstaðar á næsta ári. Fyrir fundinum lá einnig erindi frá Haraldi Bjarnasyni og Friðþjófi Helgasyni þess efnis að gerð verði kvikmynd í tilefni 70 ára afmælis kaupstaðarréttinda á Akranesi. Stjórn Akranesstofu telur þetta áhugavert verkefni og fól Tómasi Guðmundssyni verkefnastjóra að afla nánari upplýsinga um kostnað við það. -þá Ungir VG stækka starfssvæðið VESTURLAND: Þann 27. september sl. fór fram aðalfundur Ungra vinstri grænna í Borgarbyggð í Skemmunni á Hvanneyri. Ný lög voru samþykkt fyrir félagið og starfssvæði þess breytt um leið. Félagið heitir nú „Ung vinstri græn á Vesturlandi“ og nær yfir Vesturland, Vestfirði og Kjós. Á fundinum lét Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir af embætti formanns, en hún var hinsvegar kjörin formaður Ungra vinstri grænna á landsfundi hreyfingarinnar sem fram fór á Suðureyri 1. ­ 2. október sl. Stjórn Ungra vinstri grænna á Vesturlandi starfsárið 2011­2012 skipa þau Bjarki Þór Grönfeldt formaður, Anna Ragnarsdóttir Pedersen gjaldkeri og Kári Gautason ritari. -mm Vímugjafa leitað í húsagörðum AKRANES: Lögreglan á Akranesi þurfti að skipta sér af hegðun ungra manna í vikunni. Tilkynnt var um grunsamlegar mannaferðir í görðum í íbúðahverfi. Þarna reyndust vera á ferðinni þrír ungir menn í leit að ofskynjunarsveppum. Var þeim vísað á braut. Einn ökumaður var tekinn fyrir akstur undir áhrifum ávana­ og fíkniefna í liðinni viku. Reyndist hann undir áhrifum kannabisefna við aksturinn. Lögregla sinnti útköllum vegna hvassviðris á laugardagsnótt og um morguninn. Tvö trampólin fóru á ferðalag án þess þó að valda skemmdum. Var brugðið á það ráð að skera dúkinn úr þeim og fergja svo ekki hlytist tjón af. -þá Þingmenn sagðir áhugalausir LANDIÐ: Grasrótarfélagið Landsbyggðin lifi hélt aðalfund sinn í Fljótum sl. laugardag. Þar var m.a. samþykkt ályktun þar sem harmað er áhugaleysi þingmanna á stöðu landsbyggðarinnar en enginn þingmaður mætti á fund félagsins. „Enginn þeirra sá ástæðu til að mæta á fundinn sem fjallaði um opinbera þjónustu á landsbyggðinni. Umræðan var boðuð með góðum fyrirvara til alþingismanna með aðalfundarboði samtakanna,“ segir í ályktun félagsins. -mm Leiðrétting Í frétt um námurannsóknir í Hvalfirði í síðasta blaði kom fram að sandur hefði verið tekinn þar fyrir Sementsverksmiðjuna. Það er ekki rétt því skeljasandur fyrir Sementsverksmiðjuna er tekinn af hafsbotni úti á Faxaflóa og einvörðungu Björgun sem nýtt hefur jarðefni af botni Hvalfjarðar. Beðist er velvirðingar á þessu. -hb Minni sumarumferð HVALFJÖRÐUR: Um 8.000 færri ökutæki fóru um Hvalfjarðargöng sumarmánuðina júní, júlí og ágúst í ár en á sama tímabili í fyrra. Umferðin var eilítið meiri í ágúst en minni í júní og júlí. Þegar á heildina er litið hefur umferð um göngin dregist saman um 4,5% það sem af er árinu 2011, þ.e. frá janúar til september. Ætla má að efnahagssamdrátturinn í samfélaginu og hátt eldsneytisverð komi þarna við sögu, segir á vef Spalar. Umferð á þjóðvegum landsins hafi minnkað og það hljóti líka að birtast undir Hvalfirði. Vegagerðin gerir ráð fyrir að umferð dragist saman um 4,8% að jafnaði á landinu og miðar þá við 16 valda talningarstaði á hringveginum. Það sem af er ári 2011 hefur umferðin dregist mest saman á Suðurlandi en minnst á sjálfu höfuðborgarsvæðinu og næstminnst í grennd við það. -þá Hóp ur knárra hesta manna úr upp sveit um Borg ar fjarð ar fór í frem ur ó vana leg an leið ang ur síð­ ast lið inn föstu dag. Verk efn ið fólst í að smala hópi 16 ungra naut gripa sem sluppu á af rétt uppi af Borg ar­ fjarð ar döl um í á gúst en naut grip­ irn ir þess ir eru í eigu kúa bús ins á Hvann eyri. Höfðu grip irn ir ver ið í haga í Máva hlíð í Lund ar reykja dal frá því í vor það an sem hluti hóps ins slapp til fjalla. Smöl un og rekst ur á föstu dag inn gekk vel. Hald ið var af stað frá Gilj um í Hálsa sveit um ell­ efu leyt ið um morg un inn og rið ið á Suð ur fjall ið þar sem hóp ur inn hélt sig. Kvíg ur sem geng ið hafa á af­ rétti lengi geti ver ið býsna villt ar og erf ið ar við fangs. Þrátt fyr ir það tóks að reka hóp inn til Rauðs gils rétt ar þang að sem kom ið var um tvöleyt­ ið um dag inn. Ekki vildi þó bet ur til en svo, þrátt fyr ir að Rauðsg ils­ rétt sé ramm byggð, að þeg ar reka átti kvíg urn ar á vagna tryllt ist ein þeirra, stökk yfir veggi og til fjalla. Þrátt fyr ir mik inn elt ing ar leik náð­ ist hún ekki enda reyndi hún ít rek­ að að ganga í skrokk á eft ir reið ar­ mönn um sem urðu frá að hverfa. Sást að lok um und ir klauf arn ar á henni á hraðri leið til fjalla þar sem hún er enn. Af og til ber ast af því fregn ir um land ið að mik il stiggð komi að kvígu hóp um sem þess um. Þannig hafa heyrst sög ur af æsi leg um elt­ ing ar leik bænda og búaliðs við slíka hópa jafn vel svo vik um skipt ir. Því er á stæða til að hvetja bænd ur til að forð ast af megni að slík ar að stæð ur geti kom ið upp því villt ir naut grip ir geta al gjör lega um pól ast í hausn um og líta þá á smala sem mikla ógn og verða jafn vel hættu leg ir mönn um. Lár us Pét urs son bú stjóri á Hvann­ eyri seg ir að enn eigi hann eft ir að ná hluta kvígu hóps ins sem gekk í Máva hlíð en mik il stiggð er í hópn­ um. Hef ur hann feng ið að láni sér­ staka kvígu gildru frá Helga vatni og smám sam an er að nást í hana. Lár us bæt ir því við að kvíg urn ar sem í hlut eiga hafi ver ið afar spak­ ar heima í fjósi. Þrátt fyr ir stiggð­ ina úti hafi þær um svifa laust aft ur orð ið spak ar og mann elsk ar eft ir að þeim var kom ið á hús. Þá má geta þess að Pét ur Pét­ urs son bóndi í Geirs hlíð í Flóka­ dal lenti í því á síð asta ári að kljást við hóp kvíga sem erf ið lega gekk að koma á hús. Þeg ar far ið var að elt ast við þær á snjó sleð um á fönn í fyrra­ haust hlupu þær jafn vel fyr ir björg. Því lét Pét ur smíða kvígu gildr una sem sjá má á með fylgj andi mynd. Gildrunni er kom ið fyr ir ná lægt hópn um og heyrúlla sett í miðj una. Þeg ar naut grip ur set ur haus inn inn til að éta læs ist slá in um háls hans þannig að hann fær sig ekki hreyft. Fylgst með því úr sjón auka þeg­ ar kvíga er föst í gildrunni og er þá hæg ur vandi að mýla hana og koma á vagn. Pét ur sagði að gildra þessi hefði dug að vel. mm Kvíg urn ar komn ar í Rauðs gils rétt. Ljósm. Guð finna Guðna dótt ir. Smöl uðu trylltu kvígustóði af af rétti Smal arn ir sem náðu kvígu hópn um af Suð ur fjalli sl. laug ar dag leggja hér af stað frá Gilj um. Ljósm. ákj. Kvígu gildr an sem Pét ur í Geirs hlíð lét smíða í fyrra og nýtt ist hon um með góð um ár angri. Ljósm. es.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.