Skessuhorn


Skessuhorn - 02.11.2011, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 02.11.2011, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER Inn an rík is ráðu neyt ið hef ur fellt úr skurð varð andi stjórn sýslu kæru Sig ur björns Hjalta son ar og Ragn­ heið ar Þor gríms dótt ur gegn Hval­ fjarð ar sveit. Þar kærðu þau á kvörð­ un sveit ar stjórn ar frá 14. júní 2011 um breyt ingu á að al skipu lagi á Grund ar tanga svæð inu. Þess var kraf ist að hin kærða á kvörð un yrði ó gild og að mál inu í heild yrði vís­ að til nýrr ar og lög legr ar með ferð ar í sveit ar stjórn. Kær an var þrí þætt. Í fyrsta lagi var sveit ar stjórn ar mað ur­ inn Sæv ar Ari Finn boga son sak að­ ur um að víkja af fundi á for send um van hæf is þeg ar á kvörð un var tek in um af greiðslu að al skipu lags. Vildu kærend ur meina að sveit ar stjórn­ ar mað ur inn hefði ekki ver ið van­ hæf ur. Í öðru lagi töldu kærend ur að ann mark ar hefðu ver ið á máls­ með erð sveit ar stjórn ar vegna van­ hæf is Sæv ars Ara. Í þriðja lagi töldu kærend ur að odd vit inn, Sig urð ur Sverr ir Jóns son, hafi ver ið van hæf­ ur til þátt töku í und ir bún ingi máls­ ins, með ferð og af greiðslu. Ráðu­ neyt ið hafn aði öll um þess um kæru­ lið um og lýk ur þar með ó vissu sem ríkti um að al skipu lag Grund ar­ tanga svæð is ins. Fagn ar nið ur stöð unni Um sókn ir þriggja fyr ir tækja, sem sótt hafa um at hafna­ og iðn að ar­ lóð ir á Grund ar tanga, hafa ver ið í bið stöðu í all nokkra hríð vegna drátt ar á af greiðslu að al skipu lags­ ins á Grund ar tanga. Gísli Gísla­ son hafn ar stjóri Faxa flóa hafna seg­ ist að spurð ur fagna nið ur stöð unni. „Vissu lega erum við á nægð með að á kvörð un sveit ar stjórn ar Hval fjarð­ ar sveit ar hafi ver ið stað fest með úr­ skurði inn an rík is ráð herra og upp á­ skrift Skipu lags stofn un ar. Nú geta um rædd fyr ir tæki leit að eft ir bygg­ ing ar leyfi hjá sveit ar fé lag inu og það mun vera í und ir bún ingi,“ seg­ ir Gísli í sam tali við Skessu horn. Og Gísli ít rek ar það sem hann hef ur nefnt áður, að ó heppi legt sé fyr ir Faxflóa hafn ir sf. og þau fyr­ ir tæki sem hafa á huga á að hefja starf semi á Grund ar tanga að fer­ ill inn við úr lausn mála drag ist úr hófi. „Nú er kom in nið ur staða og því von umst við til að mál in kom ist sem fyrst á þann rek spöl sem að var stefnt. Eng inn vafi er að á Grund­ ar tanga liggja afar á huga verð tæki­ færi fyr ir ýmis kon ar starf semi sem hvorki munu hafa í för með sér ó við un andi meng un eða veru leg um hverf is á hrif. Það skipt ir miklu máli að sveit ar stjórn Hval fjarð ar­ sveit ar og í bú ar og eig end ur Faxa­ flóa hafna sf., séu sam mála um að hverju skuli stefnt. Upp bygg ing svæð is ins mun þannig best styrkja at vinnu líf og aðra upp bygg ingu norð an og sunn an Hval fjarð ar,“ seg ir Gísli Gísla son. Sækja um bygg inga leyfi Um rædd þrjú fyr ir tæki sem beð­ ið hafa eft ir úr lausn á lóða mál um á Grund ar tanga eru Krat us, sem hygg ur á end ur vinnslu álgjalls, fyr­ ir tæk ið GMR ( Geothermal metal recycl ing), sem hef ur á prjón un um end ur vinnslu brota málma og svo Járn og blikk, sem er þjón ustu fyr­ ir tæki m.a. við stór iðj una. Að sögn Gísla hef ur GMR sótt um bygg ing­ ar leyfi til sveit ar fé lags ins og Krat­ us und ir býr um sókn, en ekki ligg ur end an lega fyr ir með fram kvæmd ir á veg um Blikks og járns. Þá er verk­ fræði stof an Ver kís að vinna að at­ hug un á því fyr ir Faxa flóa hafn ir sf. hvern ig megi end ur heimta vot lendi á Grund ar tanga svæð inu. „Á huga­ vert er að safna að nýju vatni í Kata­ nestjörn ina, en á liðn um ára tug um var unn ið að því með marg vís leg­ um að gerð um að þurrka tjörn ina upp með fram ræslu. Með end ur­ heimt vot lend is ins má auka bind­ ingu kolefn is, sem kem ur um hverf­ inu til góða auk þess sem fugla líf end ur heimt ir líf ríka tjörn. Ó sagt skal lát ið hvort þær að gerð ir leiði til þess að Kata nes dýr ið láti sjá sig að nýju,“ seg ir Gísli að end ingu í gam an söm um tón. mm/þá Bið stöðu vegna lóða mála á Grund ar tanga er nú lok ið í kjöl far stjórn sýslu dóms inn an rík is ráðu neyt is ins. Ráðu neyt ið hafn ar kæru lið um stjórn sýslu kæru Bið stöðu aflétt og fyr ir tæki sækja nú um bygg inga leyfi á Grund ar tanga

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.