Skessuhorn


Skessuhorn - 03.04.2012, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 03.04.2012, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL Strax í kjöl far al þing is kosn ing­ anna vor ið 2009 á kvað nú ver andi rík is stjórn Sam fylk ing ar og Vinstri hreyf ing ar inn ar ­ græns fram boðs að setja að ild að Evr ópu sam band­ inu á dag skrá ís lenskra stjórn mála. Þrem ur árum síð ar hef ur meg in und ir bún ings vinnu við ræðna ver ið lok ið og hafa samn inga við ræð ur nú náð fullu skriði. Skipu lag við ræðna er þannig að samið er á grund velli 35 mála flokka eða samn ings kafla sem rædd ir eru hver í sínu lagi. Fyr ir hönd Ís lands er sér stök samn­ inga nefnd sem skip uð var af ut an­ rík is ráð herra. For mað ur henn ar er Stef án Hauk ur Jó hann es son sem jafn framt skip ar stöðu að al samn­ inga manns Ís lands. Auk hans sitja í nefnd inni 17 ein stak ling ar sem hafa til að bera sér fræði þekk ingu og reynslu af hin um 35 mála flokk­ um. Á veg um ESB sem ur sér stök nefnd fasta full trúa að ild ar ríkj anna 27 sem leidd er af full trúa þess rík­ is sem fer með for mennsku í ráð­ herra ráð inu hverju sinni. Svo vill til að Dan ir gegna því emb ætti nú. Blaða mað ur Skessu horns slóst í för með stór um hópi ís lenskra blaða manna í lið inni viku, brá sér til Brus sel og kann aði stöðu og gang að ild ar við ræðn anna sem vissu­ lega eru með um deild ustu póli tísku mál um sam tím ans hér á landi. Hér á eft ir fylg ir frétta skýr ing um stöðu við ræðn anna, af stöðu þing flokka og fleira þessu tengt. 15 kafl ar opn að ir ­ 10 lok ið Efn is leg ar samn inga við ræð­ ur milli Ís lands og ESB ríkj anna hófust form lega 27. júní í fyrra. Þá voru lið in tæp tvö ár síð an meiri­ hluti Al þing is veitti rík is stjórn­ inni um boð til að sækja um að ild á grund velli á lits ut an rík is mála­ nefnd ar þings ins. Samið er form­ lega á svoköll uð um ríkja ráð stefn­ um sem samn inga nefnd Ís lands og nefnd fasta full trúa að ild ar ríkja ESB sækja. Ráð stefn urn ar eru haldn ar með reglu legu milli bili og fara fram á vett vangi ráð herra ráðs sam bands­ ins í Brus sel. Hing að til hafa ríkja­ ráð stefn urn ar ver ið fjór ar. Samið er á grund velli 35 mála flokka. Eft ir síð ustu ríkja ráð stefnu sem fram fór á fimmtu dag inn hafa alls 15 samn­ ings kafl ar ver ið opn að ir. Þar af hafa tíu ver ið lok að ir sem þýð ir að um þá hafa náðst samn ing ar. Það úti­ lok ar þó ekki að við ræð ur um þá verði tekn ar upp að nýju en lok un kafla eru til bráða birgða með an al­ menn ar samn inga við ræð ur Ís lands og ESB ríkja standa yfir. Þess ir tíu flokk ar eru; frjáls för vinnu afls, fé­ lags rétt ur, hug verka rétt ur, fyr ir­ tækja­ og iðn stefna, sam evr ópskt net, rétt ar varsla og grund vall ar­ rétt indi, vís indi og rann sókn ir, mennt un og menn ing, neyt enda­ og heilsu vernd og loks ut an rík is­, ör ygg is­ og varn ar mál. Enn verð ur rætt um nokkra kafla Þeir fimm samn ings kafl ar sem enn standa opn ir eru orku mál, fram lags mál, sam keppn is mál, op­ in ber inn kaup og kafli um upp­ lýs inga sam fé lag ið og fjöl miðla. Á stæða þess er sú að fram hafa kom ið sjón ar mið frá báð um samn­ ings að il um sem enn er ver ið að semja um. Einnig eiga Ís lend ing ar eft ir að inn leiða lög á þess um svið­ um. Til dæm is þá mun köfl um um op in ber inn kaup og upp lýs inga­ sam fé lag ið og fjöl miðla verða lok­ að þeg ar nú ver andi lög gjöf á þeim svið um hef ur ver ið inn leidd að fullu í ís lensk an rétt. Báð ir kafl ar til heyra EES skuld bind ing um Ís­ lend inga og munu hvað sem að ild líð ur verða leidd ir í lög hér á landi. Í orku mál um hef ur samn inga nefnd að ild ar ríkja ESB stað fest að kæmi til að ild ar Ís lands muni hún ekki hafa á hrif á eign ar hald á orku auð­ lind um lands ins. Þá vildi samn inga­ nefnd ESB ríkj anna að Ís lend ing ar legðu fram tíma á ætl un um hvern­ ig þeir hyggð ust upp fylla kröf­ ur sam bands ins um innri mark að með raf orku og um ör yggi kjarn­ orku og geisla varna. Einnig hef­ ur ver ið samið um á milli land anna að lög gjöf ESB um inn flutn ing á hrá ol íu og mark að fyr ir nátt úru­ legt gas þurfi ekki að inn leiða á Ís­ landi sök um sér að stæðna í land inu. Enn er op inn kafli um sam keppn­ is mál. Samn inga nefnd Ís lands hef­ ur á rétt að að nú ver andi fyr ir komu­ lag í sölu á á fengi og tó baki í land­ inu verði haft í ó breyttri mynd. Einnig legg ur samn inga nefnd in á það á herslu að fé lags leg ur hús­ næð is sjóð ur á borð við Í búða lána­ sjóð verði á fram rek inn á Ís landi í því augna miði að fram fylgja fé lags­ legri stefnu stjórn valda í hús næð is­ mál um. Enn er samið um þessi at­ riði en telja má lík legt að að þeim verði geng ið. Sem dæmi þá er nú­ ver andi fyr ir komu lag á feng is sölu á Ís landi ekki ó svip að því kerfi sem er til stað ar í Sví þjóð nú á dög um. Að lok um hafa Ís lend ing ar sett fram sér staka ósk um tíma bundn ar í viln­ an ir varð andi fram lög til ESB sök­ um efna hags legra þreng inga frá banka hrun inu 2008. EES sam starf ið Þar sem Ís land hef ur ver ið þátt­ tak andi í Evr ópska efna hags svæð­ inu (EES) frá ár inu 1994 hef­ ur Al þingi þurft að taka upp í lög­ gjöf sína ýmis lög og reglu gerð­ ir frá ESB sem snerta mál efni því tengd. Af köfl un um 35 eru 21 hluti af mála svið um sem tengj ast EES og 14 ekki. Þess vegna standa samn­ inga við ræð ur stutt yfir á ýms um svið um þar sem lög gjöf og reglu­ verk er nán ast það sama og í ESB. Vegna þessa hafa sum ir sagt að Ís­ land sé með hálf gerða auka að ild að sam band inu. Í und ir bún ings vinnu Ís lands og ESB fyr ir við ræð urn­ ar fór með al ann ars fram rýni vinna þar sem lög gjöf land anna í samn­ ings köfl un um 35 var bor in sam an af emb ætt is mönn um á Ís landi og hjá fram kvæmda stjórn sam bands­ ins. Mark mið rýni vinn unn ar var að greina hvað var líkt í lög gjöf Ís­ lands og að ild ar ríkja ESB á þess um svið um og hvað væri ó líkt. Vinn an leiddi í ljós að lög gjöf ESB hef ur að mestu eða öllu leyti ver ið tek in upp af Ís lend ing um í 21 kafla í gegn­ um EES samn ing inn. Af leið ein­ ing af þess ari vinnu er sú að nán ast forms at riði er að klára suma samn­ ings kafla á ríkja ráð stefn um. Sem dæmi voru tveir kafl ar, ann ars veg­ ar um ut an rík is­, varn ar­ og ör ygg­ is mál og hins veg ar um neyt enda­ og heilsu vernd, opn að ir og lok að­ Að ild ar við ræð ur Ís lands við Evr ópu sam band ið Hver er stað an í við ræð un um í dag? Helstu stofn an ir ESB í Brus sel. Til vinstri má sjá höf uð stöðv ar ráð herra ráðs ins og til hægri höf uð stöðv ar fram kvæmda stjórn ar inn ar. Frá ríkja ráð stefnu Ís lands og ESB á fimmtu dag inn. Frá hægri Þór ir Ib sen sendi herra Ís lands gagn vart ESB, Stef án Hauk ur Jó hann es son að al samn inga mað ur Ís lands, Bryn dís Kjart ans dótt ir samn inga nefnd ar mað ur, Högni S. Krist jáns son samn inga­ nefnd ar mað ur og ó nefnd ur full trúi samn inga nefnd ar ESB ríkja. Stef an Füle stækk un ar stjóri ESB (ann ar frá vinstri) ræddi við ís lenska fjöl miðla­ menn í síð ustu viku á fundi í Brus sel. Jó hanna Sig urð ar dótt ir for sæt is ráð herra og Her mann van Rompuy for seti ráð­ herra ráðs ESB á fundi í nóv em ber í fyrra.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.