Skessuhorn


Skessuhorn - 07.11.2012, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 07.11.2012, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 Nafn: Thelma Rut Eð varðs dótt ir Starfs heiti/fyr ir tæki? Að stoð ar­ mað ur tann lækn is á tann lækna­ stofu AB í Ó lafs vík. Fjöl skyldu hag ir/bú seta? Í sam­ búð með Sæv ari Gísla syni sjó­ manni. Ég á tvö börn og hund, en bara 9 ára göm ul dótt ir okk ar býr heima, son ur inn er í skóla og vinnu í Reykja vík. Vinnu dag ur inn: Fimmtu dag ur­ inn 01. nóv em ber 2012 Dag ur inn byrj ar eins og aðr ir virk ir dag ar á að ég vakna kl. 07. Ég er alltaf fyrst á fæt ur svo að ég byrja á að bjóða hund in um góð an dag inn og hleypa hon um út. Næst er svo dóttir in vak in með kossi á kinn og drif in á fæt ur. Morg un­ korni skellt í skál fyr ir ung frúnna og hafra graut ur inn svo hit að ur og borð að ur fyr ir fram an tölv una og frétt ir dags ins skoð að ar. Það sem ger ir þenn an dag öðru vísi en aðra virka daga er að Sæv ar er heima, búin að vera bræla alla vik una og hann því heima vinn andi hús móð­ ir sem skutl ar okk ur í vinnu og skóla svo hann geti tek ið bíl inn og skellt sér í kaffi á N1. Vinnu dag ur inn hófst á að ég fer yfir tann lækna stof una og kveiki á tækj um. Skrepp svo á kaffi stof­ una í morg un kaff ið og býð fólk­ inu góð an dag inn. Yf ir leitt sit ég við tann lækna stól inn hjá Ara milli þess sem ég svara í sím­ ann á þess um tíma dags. Hjör dís „ súperklínkan“ kem ur svo klukk­ an 9 og upp úr því fer að kom ast meira líf í þetta hjá okk ur. Dag­ arn ir eru mjög mis jafn ir hjá okk­ ur. Við skipt umst á að svara í sím­ ann og reyn um að af greiða sím­ töl in eft ir bestu getu, sótt hreins­ um verk fær in og göng um frá þeim, og svo sitj um við auð vit­ að við stól inn hjá hon um Ara og spjöll um (og spjöll um mik ið). Um kl. 12.30 skrepp ég heim í mat og byrja þá aft ur á að heilsa hund in um og hleypa hon um út, skelli í mig núðl um og reyni að vera kom in aft ur kl 13.00 í vinn­ una svo Hjör dís kom ist í mat líka. Kl 16.00 er svo vinnu deg in um mín um lok ið. Sæv ar bíð ur eft­ ir mér til að láta mig fá bíl inn og fer ég þá á tveim ur hjól um nið ur í Sól ar sport þar sem klukku tíma púl hjá Hörpu Finns tek ur við. Næst er það svo Versl un in Kass­ inn, vant ar smott erí fyr ir kvöld­ mat inn og næsta dag. Mér finnst voða gott að setj ast nið ur í nokkr­ ar mín út ur við tölv una með kaffi­ bolla og skoða Face book áður en ég hjálpa dótt ur inni með heima­ lær dóm inn. Alltaf gott að koma heim að lokn um vinnu degi þó að ég sé svo hepp in að vera í vinnu sem mér lík ar svona vel við og er búin að vera í þessu starfi síð an 1996. Kvöld mat ur inn er að hætti Sæv ars og svo er sest yfir frétt­ ir og slapp að af. Kvöld ið er ó sköp ró legt, skóla task an yf ir far in og föt fyr ir dótt ur ina tek in til fyr ir næsta dag og geng ið frá þvotti. Þetta er ó sköp venju leg ur dag ur hjá okk­ ur og all ir sofna sæl ir og hlakka til næsta vinnu dags. Dag ur í lífi... Að stoð ar manns tann lækn is Körfu bolti nýt ur nokk urra vin sælda á Vest ur landi og eru sem dæmi sjö meist ara flokkslið skráð til leiks í Ís­ lands mót inu á yf ir stand andi keppn­ is tíma bili, fimm karla lið og tvö kvenna lið. Lið in leika fjöl marga leiki, bæði í deild og bik ar yfir tíma­ bil ið og krefst þátt taka þeirra út­ halds og á huga leik manna, þjálf ara og að stand enda lið anna, svo ekki sé minnst á alla þá á han gend ur sem styðja lið sín í gegn um súrt og sætt. Ó missandi hluti körfu bolta leikja er hins veg ar nær vera dóm ara. Þeirra hlut verk er að fram fylgja regl um og passa upp á að leik ur inn fari rétt og heið ar lega fram. Án dóm ar anna færu ein fald lega eng ir körfu bolta­ leik ir fram. Feðgarn ir Ein ar Þór Skarp héð ins son og Þor kell Már Ein ars son í Borg ar nesi starfa sem körfu bolta dóm ar ar og dæma fyr ir hönd Skalla gríms í Ís lands mót inu. Ein ar er með reynslu meiri dóm ur­ um sem nú dæma hér á landi og hef­ ur hann dæmt nán ast sleitu laust síð­ an hann hóf form lega að flauta árið 1988. Þor kell eða Doddi eins og hann er jafn an kall að ur byrj aði að dæma í upp hafi árs 2010 þá ein ung­ is 15 ára gam all, en hann er fædd ur árið 1995 og er yngsti körfuknatt­ leiks dóm ari lands ins. Skessu horn tók þessa hressu dóm ara feðga tali um helg ina og ræddi við þá um dóm ara störf in. Eld skírn í fyrsta leik Ein ar, sem er fædd ur árið 1968, hef ur dæmt körfu bolta leiki nán­ ast síð an hann hóf að æfa körfu­ bolta á æsku slóð um í Hafn ar firði. „Ég hef dæmt al veg ó grynni leikja. Ég æfði körfu bolta hjá Hauk um í Hafn ar firði og var mik ið við loð­ andi yngri flokka starf ið hjá fé lag­ inu. Til dæm is var ég ætíð til bú­ inn að dæma leiki á fjöl liða mót um á þess um árum. Þetta var al veg hell­ ing ur af leikj um,“ seg ir Ein ar. Hann seg ir að vegna þessa hafi hann haft á gæta reynslu af dóm gæslu áður en hann skráði sig á dóm ara nám skeið hjá Körfuknatt leiks sam bandi Ís­ lands haust ið 1988. Einnig hafi góð leið sögn og hvatn ing Ingv ars Jóns­ son ar sem var allt í öllu í körfu bolt­ an um hjá Hauk um á þess um árum haft sitt að segja. „Ingv ar hvatti mig og fé laga minn til að fara á dóm­ ara nám skeið. Hann hafði séð okk­ ur dæma einn leik og sagði við mig að ég hefði stað ið mig svona hel­ víti vel. Ég tók þess ari hvatn ingu vel og skráði mig á nám skeið og fékk þannig dóm ara rétt indi,“ seg ir hann. Fyrsti leik ur inn var eld skírn að sögn Ein ars, há spennu leik ur í 1. deild kvenna á milli KR og ÍS sem Ein ar dæmdi á samt Sig urði Vali Hall dórs syni. „Leik ur inn var eft ir­ minni leg ur. Ég bjóst við frek ar ró­ leg um leik en raun in varð að leik­ ur inn breytt ist í spennu leik. Svona ger ist nú stund um,“ bæt ir Ein ar við. Hann lék jafn framt um tíma með lið um í Úr vals deild og 1. deild með fram dóm ara störf um og hafi leik reynsl an ver ið gott vega nesti í dóm gæslu störf in. Afi keyrði í leiki Doddi neit ar því ekki að spurð ur að á hugi á dóm gæslu hafi að ein hverju leyti kvikn að vegna emb ætt is starfa föð ur hans. Hann seg ist hins veg ar alla tíð haft mik inn á huga á körfu­ bolta og um stang inu í kring um Feðgarn ir Ein ar Þór Skarp héð ins son og Þor kell Már Ein ars son við dóm gæslu: Dóm ara starf ið er krefj andi en á nægju legt í þrótt ina. „Ég hef æft körfu bolta með Skalla grími frá því ég mátti byrja að æfa og hef fylgst mjög mik­ ið með bolt an um. Þá hef ég ver­ ið dug leg ur við að starfa í kring­ um fjöl liða mót og ung linga flokks­ leiki á rit ara borð inu nið ur í í þrótta­ húsi. Þarna má segja að á hug inn hafi kvikn að,“ seg ir Doddi. Það var loks í jan ú ar 2010 sem Doddi fór á dóm ara nám skeið hjá KKÍ. Um­ sjón ar mað ur þess var einmitt ann­ ar Borg nes ing ur, Guðni Ei rík­ ur Guð munds son, en Borg nes ing­ ar hafa ætíð átt þó nokkra dóm­ ara með rétt indi á Ís landi. Í kjöl far nám skeiðs ins fékk Doddi út hlut að verk efni og dæmdi hann fyrsta leik sinn skömmu síð ar en það var leik­ ur í drengja flokki hjá Skalla grími í Borg ar nesi. Með dóm ari var Ein ar fað ir hans og voru þeir feðg ar sam­ mála um að það hafi geng ið vel. Upp frá þessu fékk Doddi fleiri verk efn­ um út hlut að og hafa þeir feðg ar oft dæmt sam an sem helg ast kannski af praktísk um á stæð um. Í mars á þessu ári fékk Doddi bíl próf þeg ar hann varð 17 ára gam all. Síð an þá hef­ ur hann get að ekið í leiki sjálf ur en oft kom fyr ir að afi hans hafi þurft að keyra hann í leiki þar sem Ein ar fað ir hans var að dæma ann ars stað­ ar! Hans nán ustu hafa því stutt vel við bak ið á dóm ara störf um hans. Fag mennska hef ur auk ist Ein ar er nú að hefja sitt 25. tíma bil sem körfuknatt leiks dóm ari. Spurð­ ur um fjölda leikja sem hann hef­ ur dæmt seg ist hann ekki hafa ná­ kvæma tölu. „Leik irn ir eru orðn­ ir svona 1100­1200 tals ins. Úr vals­ deild ar leik irn ir eru orðn ir meira en 300, þannig að mað ur er orð­ inn hok inn af reynslu,“ seg ir Ein ar. Hann seg ir að fé lags skap ur körfu­ bolta dóm ara hafi ver ið öfl ug ur alla tíð en þeir hafa með sér sam­ tök, Körfuknatt leiks dóm ara fé lag Ís lands, sem stend ur á fimm tugu á næsta ári. Yf ir um sjón með dóm ara­ mál um, nið ur röð un á leiki Ís lands­ móts ins og skipu lagn ing dóm ara­ nám skeiða er hins veg ar í hönd­ um dóm ara nefnd ar KKÍ. „Síð an ég byrj aði finnst mér að fag mennska hafi auk ist til muna með al dóm ar­ anna. Aukn ar kröf ur eru nú gerð ar að dóm ar ar séu í góðu formi og þá er reglu lega stað ið fyr ir upp rifj un­ um á regl un um. Í að drag anda sér­ hvers tíma bils fer fram haust fund­ ur þar sem lín urn ar eru lagð ar fyr ir kom andi tíma bil, skerpt á ein stök­ um at rið um sem Al þjóða körfu bolta­ sam band ið FIBA legg ur á herslu á og far ið yfir reglu breyt ing ar ef ein­ hverj ar eru. Allt þetta hjálp ar okk­ ur að vera bet ur í stakk bún ir til að dæma og ger ir leik inn betri,“ seg­ ir Ein ar. Þá hafi starfs skil yrði dóm­ ara batn að á und an förn um árum, seg ir Ein ar en störf in krefj ast ferða­ laga og fjar veru frá vinnu og fjöl­ skyldu. „All ir sem dæma eru í fullri vinnu ann ars stað ar. Þetta er því bæði auka vinna og á huga mál. Mað­ ur þakk ar fyr ir að eiga skiln ings rík­ an vinnu veit enda en það er grunn­ for senda þess að hægt sé að dæma,“ bæt ir hann við. Mik il vægt að flauta í flaut una Feðgarn ir eru sam mála um að það að vera dóm ari sé viss í þrótt. Grunn for send an er sú að hafa á huga á í þrótt inni og það hafa þeir feðg ar svo sann ar lega. Blaða mað ur Skessu horns spyr þá hvort að ekki sé stund um erfitt að dæma, enda oft bæði leik mönn um, þjálf ur um og á horf end um ansi heitt í hamsi á leikj um. „Vissu lega er dóm ara starf­ ið krefj andi og það reyn ir oft á okk­ ur í leikj um. Fyr ir kem ur að sum um verði of heitt í hamsi en þá er bara að taka á því með þeim úr ræð um sem við höf um. Flest ir leik ir fara hins veg ar vel fram og ganga á falla­ laust fyr ir sig,“ seg ir Ein ar. „Lyk il­ at riði fyr ir dóm ar ann í öll um leikj­ um er að flauta hátt og ör ugg lega í flaut una. Það trygg ir festu í leikn­ um og eyk ur lík urn ar að hann fari vel fram,“ bæt ir Ein ar við. Þá hafi það bætt dóm gæsl una að mati Ein­ ars að á kveð ið hafi ver ið að fjölga dóm ur um í þrjá í Úr vals deild karla þetta tíma bil. Stefn ir á að verða al þjóða dóm ari Ein ar dæm ir í öll um deild um Ís­ lands móts ins og er einmitt næsta verk efni hans leik ur Tinda stóls og Kefla vík ur á Sauð ár króki í Dom in os deild karla. Næsta verk efni Dodda er aft ur á móti leik ur Smára og Mostra frá Stykk is hólmi í 2. deild karla á föstu dag inn í Reykja vík. Doddi dæm ir nú ung linga flokks leiki, leiki í 2. deild karla og 1. deild kvenna en von ast til að fá tæki færi til að dæma í ein hverri af efri deild un um í vet­ ur. Spurð ur um hvert hann stefni sem dóm ari þá seg ir Doddi að hann ætli sér að verða al þjóða dóm ari og þannig dæma lands leiki og Evr ópu­ leiki í körfu bolta. Ein ar seg ir að þó að starf andi sé nokk ur hóp ur dóm­ ara á land inu sé engu að síð ur skort­ ur á dóm ur um. Næg séu verk efn­ in. Báð ir mæla þeir ein dreg ið með starf inu sem sé gef andi, krefj andi en þó um fram allt á nægju legt. hlh Til bún ir að dæma í Borg ar nesi. Ljósm. Fann ey Þor kels. Feðgarn ir Þor kell Már Ein ars son og Ein ar Þór Skarp héð ins son körfu bolta dóm ar ar í Borg ar nesi. Ljósm. hlh.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.