Skessuhorn - 03.01.2013, Side 3
Árið 2012 framleiddum við yfir 280.000 tonn af áli í álverinu
á Grundartanga. Verðmæti þess er ríflega 610 milljónir
bandaríkjadala, eða um 76 milljarðar króna. Til framleiðslunn-
ar notuðum við mikla raforku, um 4.300 GWst, eða tæplega
fjórðung alls rafmagns sem unnið er á Íslandi. Þessa orku
kaupum við af fyrirtækjum í eigu almennings, Orkuveitu
Reykjavíkur, Landsvirkjun og HS Orku.
Í álverinu sjálfu starfa að jafnaði um 600 manns og um 1.000
manns til viðbótar hafa atvinnu af margskonar þjónustu
sem tengist starfsemi okkar – flutningum, framkvæmdum,
tækniþjónustu, birgðaöflun og fleiru. Norðurál er langstærsti
atvinnurekandi á Vesturlandi og reyndasta starfsfólkið hefur
verið með okkur allt frá upphafi, í 15 ár.
Íslenskt ál er notað um allan heim til að létta bíla, klæða
hús og pakka inn nesti, smíða tölvur, snjallsíma, húsmuni og
veggi. Ál úr grænni, íslenskri orku er ekki bara létt og sterkt,
heldur líka fallegt og umhverfisvænt, enda má endurnýta
það nánast endalaust.
Létt, sterkt og fallegt
Við óskum landsmönnum gleðilegs árs og þökkum farsælt samstarf.