Skessuhorn


Skessuhorn - 10.04.2013, Page 15

Skessuhorn - 10.04.2013, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2013 Staða skipulags- og byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar er laus til umsóknar Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga til að samþætta og leiða þróttmikið starf. Starfslýsing - Megin viðfangsefni Skipulags- og byggingafulltrúi annast framkvæmd byggingareftirlits í sveitarfélaginu skv. ákvæðum skipulags- og mannvirkjalaga og samþykktum sveitarstjórnar hverju sinni. Stafssvið hans er á sviði; skipulags- og byggingamála og umhverfismála. Hann hefur yfirumsjón með eignasjóði og verklegum framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins. Starfssvið: Helstu faglegu málaflokkar og verkefni sem skipulags- og byggingafulltrúi ber ábyrgð á eru: Skipulags- og byggingarmál, framkvæmdir sveitarfélagsins, framkvæmdaeftirlit og • framkvæmdaleyfi, ritun eignaskiptasamninga. Umsjón með veitukerfum, eftirlit með viðhaldi fasteigna eignasjóðs, umferðarmál og • samgöngur, viðhald gatna og holræsa, húsafriðun og brunamál. Umhverfismál, fráveitumál, hreinlætismál, skráning og viðhald vegna Fasteignaskrár • Íslands og landupplýsingakerfis. Undirbúningur funda umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefndar og ber ábyrgð • á eftirfylgni og frágangi mála sem þar eru til umfjöllunar. Menntunar-og hæfniskröfur: Háskólamenntun á svið skipulags- og byggingarmála sbr. 8 gr. Mannvirkjalaga • nr. 160/2010 og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Góð þekking á skipulags- bygginga- og umhverfismálum.• Reynsla af störfum í stjórnsýslunni kostur.• Reynsla af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi. • Reynsla í áætlanagerð; ss fjárhags- verk- og kostnaðaráætlunum skilyrði. • Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar.• Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.• Launakjör eru samkvæmt samningum stéttarfélaga við sveitarfélögin. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl nk. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is. Þar er fyllt út almenn atvinnuumsókn, umsókn þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, meðmæli, upplýsingar um frumkvæði, rökstuðningur umsækjanda og annað það er málið varðar. Öllum umsóknum verður svarað Nánari upplýsingar: Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri, sími 4338500 laufey@hvalfjardarsveit.is Sveitarstjóri S K E S S U H O R N 2 01 3 Kartöflugarðar 2013 Reitir í kartöflugörðum Akraneskaupstaðar eru lausir til útleigu fyrir sumarið 2013. Í boði eru 100 fermetra reitir sem munu kosta kr. 4.000 og 50 fermetra reitir sem munu kosta kr. 2.000. Athugið að takmarkað magn reita er til úthlutunar. Kartöflugarðar eru eingöngu fyrir íbúa sem hafa lögheimili á Akranesi. Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér reit hafi samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, í síma 433-1000 eða á akranes@akranes.is. S K E S S U H O R N 2 01 3 Sumarafleysingar Stéttarfélag Vesturlands auglýsir eftir starfsmanni í sumarafleysingar á skrifstofu félagsins í Borgarnesi, einnig er starfsmanninum ætlað að koma að eftirliti með vinnustaðaskírteinum. Um er að ræða 100% starf í þrjá til fjóra mánuði. Starfs- maðurinn þarf að geta hafið störf í lok maí og geta unnið til loka ágúst eða september. Starfið krefst hæfni í mann- legum samskiptum, þjónustulundar og nokkurrar tölvukunnáttu, auk færni í íslensku og ensku. Umsóknum, þar sem fram koma upplýsingar um menntun og fyrri störf, ber að skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands að Sæunnargötu 2a í Borgarnesi, fyrir 10. maí nk. Upplýsingar gefur Sjöfn Elísa Albertsdóttir skrifstofustjóri í síma 430 0434/430 0436 eða sjofn@stettvest.is SK E S S U H O R N 2 01 3 Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu Aðalfundur SDS 2013 Aðalfundur félagsins verður haldinn í Plássinu, Stykkishólmi laugardaginn 20. apríl kl.17:00 Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Veglegur kvöldverður verður borinn fram að fundi loknum í Narfeyrarstofu. Eyþór Ingi, fulltrúi okkar í Eurovision, syngur og skemmtir fundargestum. Við viljum skora á alla félagsmenn okkar að mæta og njóta góðra samveru í gleði og starfi. Rútuferðir verða til og frá: Búðardal, Snæfellbæ og Grundarfirði. Brottfaratími frá hverjum stað auglýstur síðar. Mikilvægt er að þið tilkynnið þátttöku hjá trúnaðarmanni eða hafið samband við skrifstofu með a.m.k. viku fyrirvara. Sími: 436-1077 Netfang: dalaogsnae@gmail.com Fax: 436-1078 Með von um að sjá sem flesta! Stjórn SDS Sal ur inn á Hót el Hell issandi var nán ast full ur síð ast lið ið laug ar dags­ kvöld þeg ar úr slita kvöld ið í trú­ badora keppn inni fór fram. Kepp­ end ur í úr slit um voru þau Ólöf Gígja, Aron Hann es, Frið þjóf ur Orri og Hlöðver Smári. Fluttu þau hvert um sig fimm lög og voru nok k ur þeirra frum sam in. Stóðu þau sig öll mjög vel og verð ur gam an að fylgj ast með þeim í fram tíð inni því hún er svo sann ar lega þeirra. Kynn ir á kvöld inu var Reyn ir Rún­ ar Reyn is son. Sal ur inn kaus að sjálf sögðu sinn flytj anda og gilti það 30% á móti dóm nefnd inni. Í dóm nefnd inni voru þær Erla Hösk­ ulds dótt ir og Guð rún Lára Pálma­ dótt ir. Gesta dóm ari var trú bador­ inn Halli Reyn is og spil aði hann nokk ur lög fyr ir gesti áður en úr­ slit in lágu fyr ir. Þeg ar úr slit in voru kynnt sagði Halli Reyn is að hon um þætti mik­ ið til koma hversu fær ir kepp end­ ur hafi ver ið þrátt fyr ir ung an ald­ ur. Taldi hann víst að ef kepp end ur héldu á fram í tón list inni ættu þeir enn frek ar eft ir að láta að sér kveða. Sagði hann að þeg ar hann hefði ver ið á þess um aldri hefði hann rétt ver ið far inn að læra grip in. Sig ur­ veg ari kvölds ins var Hlöðver Smári Odds son og hlaut hann 100 þús und krón ur í verð laun. þa Aron Hann es, Hlöðver Smári, Ólöf Gígja og Frið þjóf ur Orri. Hlöðver Smári sig ur veg ari í trú ba dora keppn inni Hlöðver Smári Odds son sig ur veg ari í keppn inni.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.