Skessuhorn


Skessuhorn - 17.07.2013, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 17.07.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 29. tbl. 16. árg. 17. júlí 2013 - kr. 600 í lausasölu HVAR OG HVENÆR SEM ER Með Arion appinu tekur þú stöðuna með einum smelli og borgar reikningana, hvar og hvenær sem er. Þú færð appið á Arionbanki.is. Skannaðu QR kóðann og sæktu appið frítt í símann þinn H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -1 8 9 2 LORATADIN LYFIS CETIRIZIN-RATIOPHARM Kátt í KJÓSINNI laugardaginn 20. júlí Sjá dagskrá á kjos.is ÚTSALA 40% afsláttur af öllum útsöluvörum Nýtt kortatímabil Opnunartími: Mán. - föstud. kl. 10.00 – 18.00 Laugard. kl. 10.00 – 15.00 Flest íslensk sumarhús eru byggð úr timbri og eldsmatur þar mikill. Þá er gróður gjarnan töluverður í kringum húsin og mikil hætta get- ur skapast af sinubruna þegar þann- ig hagar til. Í sumarhúsum er mikil- vægt að huga að eldhættu, ekki hvað síst á þéttbýlustu sumarhúsasvæð- unum. Á Suðurlandi eru skráð fleiri en 6.000 sumarhús og yfir 2.500 á Vesturlandi. Íbúum þessara svæða fjölgar því um nokkur þúsund á sumrin. Við sinubruna í Skorradal síðastliðið vor voru íbúar og gestir í um 25 sumarhúsum beðnir um að sækja slökkvitæki sín til að nota við slökkvistarfið. Aðeins þrír áttu slík tæki og einungis eitt þeirra virk- aði. „Vonandi gefur þetta ekki til kynna hvernig brunavörnum er al- mennt háttað í sumarhúsum. Þetta er þó verra hlutfall en á heimilum landsmanna því á tveimur af hverj- um þremur þeirra eru slökkvitæki, samkvæmt könnun sem gerð var árið 2012,“ segir Sigrún Þorsteins- dóttir sérfræðingur í forvörnum hjá tryggingafélaginu Vís. „Reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnarteppi þurfa að vera vel aðgengileg í öllum sumarhúsum og kunnátta til að nota búnaðinn. Jafnframt ætti að vera vatnsslanga sem nær hringinn í kringum hús- ið og sinuklöppur til að geta brugð- ist við sinueldi. Brýnt er að sýna ár- vekni við meðhöndlun elds. Gæta þarf vel að einnota grillum, notk- un eldavéla, varðeldum, logandi sígarettum, kertum, gasgrillum og útiörnum og tryggja að börn fikti hvorki með eld né eldfæri,“ segir Sigrún hjá Vís. mm Íslandmótið í hestaíþróttum fór fram í Borgarnesi í liðinni viku. Það var hestamannafélagið Faxi sem annaðist undirbúning mótsins og framkvæmd í samstarfi við nágrannafélögin Dreyra og Glað. Jakob Svavar Sigurðsson frá Steinsholti í Hval- fjarðarsveit kom sá og sigraði á mótinu, en hann varð fjórfaldur Íslandsmeistari og sigraði því í nánast helmingi keppnisgreina á mótinu. Hér hampar hann titlinum sem samanlagður sigurveg- ari í fjórgangsgreinum á stóðhestinum Al frá Lundum II. Þeir félagar undirbúa nú brottför til Berlínar þar sem þeir taka þátt í heims- leikunum í byrjun ágúst. Sjá nánar umfjöllun bls. 20. Ljósm. Iðunn Silja Svansdóttir. Samkvæmt svokallaðri K-orðs vísi- tölu greiningardeildar Arion banka, sem byggir á því hversu marg- ar fréttir eða greinar í íslenskum prent- og ljósvakamiðlum innihalda orðið „kreppa,“ þá hefur krepputal aldrei verið minna síðan í desember 2007. Greiningardeildin hóf mæl- ingar þessar sl. haust en þær byggja á mánaðarlegri úttekt deildarinnar á fréttum og greinum eins og þær birtast í ítarleit Fjölmiðlavaktar- innar. Samkvæmt vístölunni hef- ur kreppufréttum fækkað hægt og bítandi frá árslokum 2009 þó um- fjöllun hafi vitaskuld tekið kipp ein- staka mánuði. Þannig rauk vísitalan t.d. upp í apríl á þessu ári í kjölfar kosningabaráttu vegna kosninga til Alþingis eins og sjá má af grafinu, en fór hratt niður að þeim loknum. hlh Barist við sinueld í umræddu tilfelli í vor þegar einungis eitt nothæft slökkvitæki reyndist vera í 25 sumarbústöðum í Skorradal. Flestir gripu í tómt þegar á reyndi Rústir brunnins sumarhúss. Krepputalið aldrei minna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.