Skessuhorn


Skessuhorn - 17.07.2013, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 17.07.2013, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013 www.skessuhorn.is Á þriðja þúsund síður af efni á ári – um 160.000 fréttir, tilkynningar, greinar og annað efni af Vesturlandi Þetta allt færðu í Skessuhorni – hvergi annars staðar Ertu nokkuð að missa af? Ertu áskrifandi? Áskriftarsíminn er 433-5500 og á heimasiðunni: www.skessuhorn.is „Hmstc Endeavour,“ sem er segl- skúta í eigu breska hersins, hafði viðkomu á Akranesi á nýverið. Þetta er stór skúta, 67 fet að lengd eða rúmir 20 metrar, og á heima- höfn í Gosport á Suður-Englandi. Um borð var fjórtán manna áhöfn skipuð ungu fólki úr breska hern- um. Til Akraness kom skútan frá Reykjavík þar sem öll áhöfnin kom um borð en frá Akranesi hélt skút- an til Grindavíkur en áhöfnin ætl- aði að bregða sér í Bláa lónið. Tvær konur voru í áhöfn skútunnar en öll áhöfnin er á þrítugsaldri utan tveir yfirmenn, skipstjórinn rúmlega fimmtugur og stýrimaður rúm- lega fertugur. Báðir eru þeir líka í breska hernum. Frá Grindavík á svo að halda hring um Ísland með viðkomu í Grímsey en hringferðin endar svo í Reykjavík. Þjálfunar- og skemmtiferð Andy Fernie, skipstjóri í þessari ferð, er reyndur sjómaður, 56 ára gamall. Hann segir skútuna áður hafa verið í hringferðum rangsæl- is um hnöttinn með ferðamenn. „Það voru nokkrar svona skútur smíðaðar og voru sérstaklega hann- aðar í þessar hringferðir. Árlega var svo keppni milli þeirra í þess- um siglingum.“ Andy Fernie seg- ir svo breska herinn hafa eignast þrjár af þessum bátum fyrir tveim- ur árum og síðan hafi þeir siglt með ungt fólk úr hernum. „Eft- ir hálfan mánuð kemur svo önnur áhöfn um borð í Reykjavík og fer í sams konar ferð umhverfis landið en þrjár þannig ferðir verða í sum- ar en í síðustu ferðinni í júlí verð- ur siglt til Grænlands og farið upp með austurströndinni. Síðan sigl- ir skútan heim til Bretlands með viðkomu í Færeyjum.“ Andy Fer- nie segir að þessar ferðir séu hluti af skylduþjálfun hermannanna en einnig skemmtun. „Þetta er nokk- uð hörð þjálfun og með ferðunum er verið að venja unga hermenn við að búa við gjörólíkar aðstæður við þær sem þeir þekkja. Í leiðinni fái fólkið tækifæri til að kynnast fjar- lægri þjóð og skoða landið, sem all- ir væru mjög spenntir fyrir. „Við byrjuðum á að skoða okkur um hér á Akranesi og hér er margt athygl- isvert að sjá og þetta er snyrtileg- ur bær. Ferðin hefur gengið vel og fólkið er vinalegt.“ Einn ungu mannanna um borð tók svo sérstak- lega fram að mikið væri af fallegum stelpum á Akranesi. Vel búið skip Skipstjórinn bauð í skoðunarferð um bátinn. Fremst eru seglin og áhöld geymd. Allt er í röð og reglu eins og venja er í hernum. Tvö baðhergi með handsturtu og fjór- ir svefnklefar eru með þremur koj- um hver. Þetta eru nokkurs kon- ar hengirúm en slár eru þó beggja vegna. „Þetta er mjög góð hönn- un ef veðrið er slæmt og maður verður sjóveikur“, segir Andy. Þar næst er stjórnpallurinn með öllum siglingatækjum með fullkomnum tölvubúnaði og plotter. Neðst og aftast er eldhús og borðkrókur og var áhöfnin í þann mund að borða hádegismatinn þegar blaðamaður kom um borð. Í vélarrúminu er svo 500 hestafla díselvél sem fyrst og fremst er notuð í höfnum og ef byr er ekki nægur. hb Skúta frá breska hernum hafði viðkomu á Akranesi Andy Fernie skipstjóri á bresku skútunni við plotterinn og tölvuna í stjórnklefanum. Við hádegisverðarborðið. F.v: James Lambden, Guy Baker og Mark Lorriman- Hughes. Emma Jones er önnur tveggja kvenna um borð. Hin konan um borð; Georgina Nightingall teygir sig eftir mat. Við borðið sitja f.v: Guy Baker sem einnig er skipstjóri og Mark Lorriman-Hughes. Ian (Jim) Hawkins og Andy Fernie skipstjóri Endeavour við flotbryggju í Akraneshöfn Robert Gait. Skipverjar reyndu að veiða sér í soðið og sögðust hafa fengið einn smá ufsa og herfilega ljótan fisk sem samkvæmt lýsingu var marhnútur. Þeir sögðust hins vegar hafa séð krakka vera að veiða makríl við Sementsbryggjuna kvöldið áður og voru spenntir fyrir að ná honum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.