Skessuhorn - 17.07.2013, Blaðsíða 7
7MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Dynjandi hefur úrval af
heyrnahlífum frá 3M.
Komdu og skoðaðu úrvalið.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
HEYRNARHLÍFAR
GERA VINNUNA ÞÆGILEGRI!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
Félagsráðgjafi
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir
félagsráðgjafa. Um er að ræða 100% starf félagsráðgjafa
í félagsþjónustu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi.
Íbúafjöldi þjónustusvæðisins er um 4 þúsund.
Hjá FSS starfa forstöðumaður, 2 sálfræðingar, þroskaþjálfi,
kennslu- og starfsráðgjafi, ráðgjafi félagsþjónustu, 2 talmeina-
fræðingar auk starfsmanna heimaþjónustu, liðveislu og
málaflokks fatlaðs fólks.
Viðfangsefni
· Barnavernd
· Málefni fatlaðs fólks
· Ráðgjöf
· Þverfagleg teymisvinna
· Önnur verkefni félagsþjónustu sveitarfélaga
Hæfniskröfur
· Starfsbundin réttindi félagsráðgjafa
· Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
· Samskipta- og samstarfshæfni
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands.
Æskilegur upphafstími starfs er 1. september n.k.
Umsókn er tilgreini menntun, fyrri störf og umsagnaraðila berist
Sveini Þór Elínbergssyni, forstöðumanni Félags- og skólaþjónustu
Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ fyrir 30. júlí n.k.
Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 430 7800,
netfang: sveinn@fssf.is.
GMR endurvinnslan óskar eftir að ráða starfsmann
við gæðaeftirlit í framleiðsludeild
Helstu verkefni:
Vinna við efnagreiningarbúnað í framleiðsluferlinu.•
Gæðaúttektir á framleiðsluvörum.•
Mælingar og skráningar í gæðakerfi.•
Önnur verkefni.•
Hæfniskröfur:
Stúdenspróf eða önnur sambærileg menntun.•
Efnafræðikunnátta er kostur.•
Hæfni í mannlegum samskiptum.•
Góð almenn tölvukunnátta.•
Enskukunnátta.•
Stundvísi.•
Starfið hentar jafnt konum sem körlum.•
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf fljótlega.
GMR Endurvinslan er nýtt iðnfyrirtæki á Grundartanga.
Fyrirtækið sérhæfir sig í endurvinnslu brotamálma.
Umsóknir með ferilskrá sendist á netfangið; stefan@gmr.is
Upplýsingar veitir Stefán í síma 510-7742
Atvinna
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Geymsluhúsnæði
á Akranesi
Mæðrastyrksnefnd Vesturlands bráðvantar
geymsluhúsnæði á Akranesi til leigu eða láns. Vantar
geymslu þar til framtíðarhúsnæði fyrir starfsemina
fæst. Upplýsingar gefur Aníta Björk í síma 868-3547
eða maedrastyrkur@visir.is
Viðgerðir hafa stað-
ið yfir í sumar á ut-
anverðum veggj-
um gamla vitans á
Suðuarflös á Akra-
nesi. Það er Tré-
smiðjan Akur sem
sér um verkið og seg-
ir Halldór Stefánsson
framkvæmdastjóri að
verkið sé á lokametr-
unum og aðeins eft-
ir að ljúka örlítilli
múrvinnu, skipta um
gler í gluggum og
mála. Veðrið hefur
hins vegar ekki ver-
ið mjög gæfulegt til
múrvinnu þetta sum-
arið og tafið vinnuna.
„Veðrið hefur sett
strik í reikninginn og
núna erum við bara
að bíða eftir nokkr-
um þurrum dögum
til að ljúka verkinu,“
segir Halldór. Eftir
að vitinn hefur verið
lagaður að utan verð-
ur hann svo tekinn
í gegn að innan en
það verður hins veg-
ar ekki gert fyrr en á
næsta ári. jsb
Stjórn Ungmenna-
sambands Borgarfjarð-
ar hefur ráðið Pálma
Blængsson sem fram-
kvæmdastjóra væntan-
legrar þjónustumið-
stöðvar sambandsins
í Borgarnesi. Að sögn
Sigurðar Guðmunds-
sonar sambandsstjóra
UMSB hefur Pálmi
störf í ágúst og verð-
ur fyrst um sinn með
skrifstofu í húsnæði
sambandsins að Borg-
arbraut 61. Sigurður
sagði stjórn UMSB vera
ánægða með að hafa
ráðið Pálma til starfa og
væntir þess að fyrri störf hans muni
nýtast vel fyrir sambandið. „Pálmi
fær það verðuga hlutverk að byggja
upp þjónustumiðstöðina frá grunni
með okkur á næstu misserum. Það
verður skemmtileg áskorun fyrir
hann og okkur,“ sagði Sigurður.
Samningur um stofnun þjón-
ustumiðstöðvar UMSB var undir-
ritaður í lok apríl sl. á milli Borg-
arbyggðar og sambandsins í kjöl-
far stefnumótunarvinnu beggja að-
ila í íþróttamálum. Hlutverk henn-
ar verður fjölþætt og má helst nefna
að þar verður séð um öll samskipti
íþróttahreyfingarinnar í héraðinu
við Borgarbyggð. Miðstöðinni er
einnig falið að fylgjast með að starf
aðildarfélaga UMSB byggist á fag-
legum forsendum og að fylgjast
með og leiðbeina aðildarfélögum
um fjárhagslegan rekstur svo ein-
hver verkefni af mörgum séu nefnd.
Það kemur í hlut Pálma sem fram-
kvæmdastjóra að stýra þessum verk-
efnunum og sinna daglegum rekstri
þjónustumiðstöðvarinnar.
Pálmi er viðskiptafræðingur að
mennt frá Háskól-
anum í Reykjavík.
Hann er fæddur og
uppalinn Borgnes-
ingur og býr þar
ásamt fjölskyldu
sinni. Undafarin ár
hefur hann starfað
sem sölu- og mark-
aðsstjóri hjá Suzuki
umboðinu á Íslandi
í Reykjavík. Pálmi
hefur tekið þátt í
starfi íþróttahreyf-
ingarinnar í hér-
aðinu, var formað-
ur körfuknattleiks-
deildar Skallagríms
í tæp fjögur ár og
meðstjórnandi í stjórn knattspyrnu-
deildar félagsins um hríð. Einn-
ig hefur hann séð um keppnislið
Suzuki í moto-cross síðustu ár og
sjálfur keppt. „Þetta verður spenn-
andi verkefni að eiga við. Ég tók
þátt í stefnumótunarvinnu UMSB
meðan ég var formaður körfuknatt-
leiksdeildarinnar þar sem m.a. hug-
mynd um stofnun þjónustumið-
stöðvar var rædd. Það verður gam-
an að fylgja þeirri vinnu eftir sem
framkvæmdastjóri,“ sagði Pálmi í
samtali við Skessuhorn. hlh
Pálmi Blængsson, verðandi framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar
UMSB.
Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri hjá UMSB
Gamli vitinn að verða klár en
veðrið truflar framkvæmdir
Gamli vitinn á Akranesi er með elstu steinsteyptu byggingunum bæjar-
ins, frá 1918.