Skessuhorn


Skessuhorn - 17.07.2013, Síða 12

Skessuhorn - 17.07.2013, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013 Alþingismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Ásmundur Ein- ar Daðason, sem leiða starf starfs- hóps ríkisstjórnarinnar um hag- ræðingu í ríkisrekstri, áttu sam- an vinnufund í Brákarhlíð í Borg- arnesi í gær, þriðjudag. Sjálf- ur er Guðlaugur Þór frá Borg- arnesi en Ásmundur Einar þing- maður Norðvesturkjördæmis. Að sögn Ásmundar, sem er formaður starfshópsins, var um góðan fund að ræða þar sem ýmis mál sem snúa að starfi vinnuhópsins fram- undan voru rædd. Einnig notuðu þeir tækifærið og ræddu við íbúa og starfsfólk Brákarhlíðar. Ás- mundur segir verkefni hagræð- ingarhópsins viðamikið en hon- um er falið að leggja fram tillögur um hvernig ná megi fram sparn- aði í rekstri ríkisins, bæði hjá ráðuneytum og einstökum stofn- unum. Hann segir mörg tækifæri til hagræðingar bjóðast hjá rík- inu án þess að grípa þurfi til flats niðurskurðar. „Við munum skoða öll tækifæri ofan í kjölinn og velta við öllum steinum í vinnunni framundan sem kemur til með að standa yfir allt kjörtímabilið,“ sagði Ásmundur sem segir tölu- verða vinnu framundan en öll- um ráðuneytum og stofnunum er skylt að vinna með hópnum. Auk Guðlaugs Þórs og Ásmund- ar Einars situr Unnur Brá Kon- ráðsdóttir í hagræðingarhópnum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Vig- dís Hauksdóttir fyrir Framsókn- arflokkinn. Nú þegar hefur hóp- urinn fundað einu sinni saman formlega, en næsti fundur hans er áætlaður á morgun. hlh Vegfarandi af Akranesi, sem oft leggur leið sína upp á Akrafjall, sendi ritstjórn Skessuhorns þessa mynd af rolluhræi í haganum skammt frá veginum áleiðis á fjallið. Kvaðst viðkomandi hafa kvartað yfir því af og til undanfarnar þrjár vikur, en hvorki eigandi dauðu kindarinnar né fulltrúar sveitarfélaganna Akra- ness eða Hvalfjarðarsveitar brugð- ist við og látið fjarlæga hræin sem hafa verið tvö eða þrjú að undan- förnu. „Þetta er heilbrigðismál og sennilega er ekki hægt annað fyrst ekki hefur verið brugðist við, en fá fjölmiðla í lið með sér til að bænd- ur og landeigendur bregðist við,“ sagði viðmælandi blaðsins. Því hef- ur hér með verið komið á framfæri, en meðfylgjandi mynd var tekin 17. júní sl. og er hræið af kindinni enn á sama stað. mm Ólafur Valur Valdimarsson leik- maður meistaraflokks ÍA ver sumr- inu í að kenna á leikjanámskeiði fyr- ir börn á Akranesi. Ólafur, eða Óli eins og hann er oftast kallaður, spil- aði stórt hlutverk í knattspyrnuliði ÍA í Pepsí deildinni í fyrra og fékk meðal annars í fjölmiðlum viður- nefnið „Supersub,“ eða Bjargvætt- urinn í beinni þýðingu. Viðurnefn- ið fékk Óli fyrir að vera hálfgert leynivopn Skagamanna sem gat komið inn á og breytt gangi mála í leikjum. Í febrúar síðastliðnum meiddist Óli hins vegar þegar aft- ara krossband í hægra fæti slitnaði og verður hann frá knattspyrnuiðk- un í sex til níu mánuði sökum þess. Var strax ljóst að hann myndi missa af stærsta hluta keppnistímabils- ins með Skagamönnum þetta árið. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Óla og fékk hann til að lýsa því hvernig er að vera slasaður knattspyrnumaður sem ver sumr- inu með börnum. Tími til að prófa eitthvað nýtt Óli segist hafa þurft að aðlaga vinnu sína mikið að fótboltan- um í gegnum tíðina. Hann hafi starfað við ýmislegt og býsna ólík störf. Eftir að hafa unnið í bakaríi, hjá smiði og verið við sveitastörf, fékk hann þá hugmynd að prófa að vinna með börnum og gá hvort það væri ekki eitthvað sem honum þætti skemmtilegt. Eftir áramótin síðustu var hann ráðinn sem stuðn- ingsfulltrúi hjá Brekkubæjarskóla og vann auk þess hjá Frístunda- klúbbi Þorpsins. Hefur hann verið að vinna með börnum síðan. Í sum- ar starfar Óli sem kennari á leikj- anámskeiði Skátafélags Akraness og Akraneskaupstaðar. Það starf felst í að vera börnum til halds og trausts, leiðbeina við leiki og sjá til þess að allt fari vel fram. Að hans sögn felst þó mesta ábyrgðin í því að láta öll- um líða vel á leikjanámskeiðunum. Engir tveir dagar eins Hver vika á leikjanámskeiðinu er skipulögð fyrirfram og er þá búið að ákveða hvaða þema hver vika fær. Dæmi um þema í sumar eru, sveitaþema, bærinn minn Akranes þema, íþróttaþema, skátaþema og ævintýraþema. Dagskrá vikunnar er svo skipulögð í takt við þemað sem er í gangi hverju sinni. Reynt er þó að hafa þetta eins lauslegt og mögulegt er svo börnin séu ekki sí- fellt að elta dagskrána. „Þau eiga að fá að leika sér sem mest þann- ig að við reynum að koma inn eins miklum frjálsum tímum og hægt er,“ segir Óli. Hann bendir einnig á að veðrið getur haft áhrif á dag- skrána og þá verði að bregðast við því. „Ef það rignir er bara að finna eitthvað inni sem börnin hafa gam- an af að gera.“ Allt er þetta hluti af fjölbreytni starfsins sem Óli seg- ir að sé eitt það skemmtilegasta við verkefnið. „Það sem er einmitt skemmtilegast er að engir tveir dagar eru eins í þessu starfi og mað- ur lærir helling af því að bregðast við aðstæðum hverju sinni.“ Lærir af því að kenna Óli segir að starfið sé fyrst og fremst gefandi og skemmtilegt. Sjálfur hafi hann ekki verið mikið í kringum börn áður en hann fór að starfa með þeim í vetur. Hann segir að það lærist með tímanum hvern- ig á að hegða sér í kringum börn og koma þeim til hjálpar. Í leiðinni læri hann sjálfur að meta hversu ótrú- lega gaman og gefandi það er að vinna með börnum. „Það sem þarf fyrst og fremst að hafa í huga þeg- ar kemur að því að vinna með börn- um er að hafa þolinmæði, sýna já- kvæðni og vera með opið hugarfar,“ segir hann og bætir við að þetta sé svo sannarlega starf sem maður læri mikið af. Hann segist finna fyrir því að börnin líti upp til hans sem fyrir- myndar því þau viti að hann sé í fót- boltaliðinu á Akranesi. „Það virkar líka öfugt,“ segir hann. „Þetta starf hefur hjálpað mér mikið sem knatt- spyrnumanni því sjálfstraustið hef- ur aukist og maður verður jákvæð- ari og opnari gagnvart öðrum.“ Leiðinlegt að standa utan við Aðspurður um hvað honum finnst um gengi ÍA liðsins í sumar hafði Óli þetta að segja: „Það er alltaf erf- itt fyrir mann sem er í liði að þurfa að sitja uppi í stúku og fylgjast með. Annars hef ég alltaf haft tröllatrú á liðinu og er sannfærður um að hlut- irnir fari að ganga vel núna eftir erf- iða byrjun. Sjálfur get ég ekki tek- ið þátt í að snúa við gengi liðsins og það þykir mér auðvitað leiðinlegt. Meiðslin eru einfaldlega þannig að ég verð ekki klár til að spila fyrr en í september en þá verður tímabilinu að ljúka.“ Leikjanámskeiðin sem Óli starf- ar við í sumar verða alls níu tals- ins og verður það síðasta 16. ágúst. Eftir það mun hann halda áfram starfi sínu með börnum. Fer þá aft- ur að starfa sem stuðningsfulltrúi í Brekkubæjarskóla auk þess sem hann stefnir á að komast úr endur- hæfingu og í leikform fyrir næsta tímabil með ÍA. jsb Börnin á leikjanámskeiðinu á búningadegi í ævintýraviku. Þarna eru einnig Óli og Svava Mjöll Viðarsdóttir. „Vinna með börnum hefur hjálpað mér að verða betri knattspyrnumaður“ Óli í vinnunni í Skátahúsinu á Háholti. Rolluhræ látin liggja Guðlaugur Þór Þórðarson og Ásmundur Einar Daðason við fundarborðið í Brákarhlíð í Borgarnesi í gær. Grunnur að hagræðingu hjá ríkinu lagður í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.