Skessuhorn - 17.07.2013, Síða 23
23MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2013
Veiðivörur fyrir
fjölskylduna
Baulan - Sími 435-1440
Afgreiðslutími
þriðjud. til föstud. 12.30 – 18.00
Veiðivörur í miklu úrvali
Stekkjarholti 8-10 • Akranesi • 431 4318 • 894 2298
www.veidibudin.is • veidibudin@veidibudin.is
„Þetta er bara mokveiði hérna,“
sagði Þorkell Fjeldsted í Ferjukoti
þegar við heyrðum í honum nýlega.
Laxveiðin gengur gríðarlega vel
víða á landinu og kannski einkum
í ánum á vestanverðu landinu, þar
sem er mokveiði hefur verið að und-
anförnu. Flókadalsá hefur t.d. gefið
fleiri laxa núna en allt síðasta sumar
og nálgast nú 400 laxa veiði. Veiði-
menn eru að rótfiska á hverjum degi
fallega fiska sem koma vel haldnir úr
sjó. Veitt er á þrjár stangir í Flóku.
Í liðinni viku hafði áin gefið ríflega
104 laxa á stöng að jafnaði, sem er
besta veiði hér á landi. Hver stöng
í Haffjarðará hafði á sama tíma gef-
ið 95 laxa og Norðurá var í þriðja
sæti með 76 laxa á stöng. Undan-
farna daga hefur rignt talsvert og
laxinn kemur í stórum torfum í árn-
ar. „Það er sama hvar er spurst fyr-
ir hér í Borgarfirði, veiðin gengur
vel, það er einfaldlega mok. Norð-
urá hefur gefið vel og veiðin Gljúf-
urá er einnig fín. Það hefur helling-
ur gengið af fiski í hana,“ sagði Þor-
kell. „Þetta er allt önnur staða en
var í héraðinu í fyrra. Laxinn kem-
ur grimmt og er vel haldinn úr sjó,
svona á þetta að vera,“ sagði Keli
og bætti við að endingu: „Þverá og
Kjarará hafa verið að gefa blússandi
veiði og fiskurinn er að veiðast lús-
ugur upp í Rauðabergi. Hann syndir
hratt í gegnum ána og alla leið upp
á fjall.“
Laxfossinn fullur af fiski
„Þetta var skemmtilegt, fiskur-
inn tók rauða Frances,“ sagði Júl-
íus Bjarnason sem var að landa laxi
í Laxá í Leirsveit þegar við hittum
hann á veiðislóðum fyrir nokkrum
dögum. Laxfossinn var þá stappfull-
ur af fiski sem stökk grimmt. Laxá
í Leirársveit hafði um helgina gefið
250 laxa sem flestir eru 4 til 6 pund.
Fiskurinn hefur enn sem komið er
lítið farið upp fyrir fossinn. Þarna
var einnig Hjálmar Árnason skóla-
meistari og kastaði hann flugunni
grimmt. „Maður hefur ekki séð Laxá
í svona flottu vatni á þessum tíma árs
í mörg ár. Þetta er allt annað fyrir
okkur veiðimenn,“ sagði Hjálmar.
Gaman að veiða þó
veðrið sé ekki gott
„Það er gaman að veiða hérna
og við erum búnir að fá marga
fiska á Vatnsvæði Lýsu og víðar,“
sögðu þeir Andri Fannar Svans-
son og Magnús Anton Magnús-
son er við hittum þessa ungu veiði-
menn á veiðislóðum á Snæfellsnesi
um helgina. Þeir voru að drífa sig í
veiðina, þó það væri kalsaveður. En
veiðin hefur verið góð á Vatnasvæði
Lýsu að undanförnu, vatnið er gott
og fiskurinn vænni en oft áður. Lax-
inn er að vísu ekki mættur en hann
gæti komið á hverri stundu. Reynd-
ar fréttist að lax hefði veiðst á neðra
svæðinu í Lýsunni fyrir nokkrum
dögum.
„Við veiðum bara á fluguna, það
er miklu skemmtilega en maðka-
veiðin. Við höfum fengið góða veiði
hérna en ekki lax ennþá. Við misst-
um hann en það kemur,“ sögðu þeir
félagar Andri og Magnús og fóru að
kasta flugunni. Fiskurinn var ekki
í tökustuði. „Ég var í Veiðivötn-
um um daginn og fékk 8,5 punda
fisk. Það var frábært,“ sagði Magn-
ús Anton. Það var hvasst hjá strák-
unum, fiskurinn sást engu að síðu
vaka, en tók ekki. „Auðvitað vonast
maður eftir að fá lax, það gerir þetta
svæði svo spennandi,“ sagði Andri
Fannar, en hann sagðist hafa misst
lax og að nú væri kominn tími á að
setja vel í einn slíkan. Þeir héldu
áfram að kasta, við fórum annað,
meiningin var að kíkja við í Straum-
fjarðará og Haffjarðará.
Stærsti laxinn 17,5 pund
í opnuninni
„Veiðin byrjaði frábærlega hjá okk-
ur og fyrstu dagana veiddust 17
laxar og var sá stærsti 17,5 pund,“
sagði Kristjón Sigurðsson, er við
spurðum um Hvolsá og Staðar-
hólsá í Dölum. En opnunin í ánni
var óvenjugóð. „Það er mikið kom-
ið af fiski víða um árnar og sumarið
lítur vel út. Vatnið er gott enda hef-
ur rignt töluvert fyrir vestan. Bleikj-
an er aðeins að koma líka, það sáust
stórar bleikjur,“ sagði Kristjón.
„Það var fiskur á í
hverju kasti“
„Þetta er bara veisla hérna, áin er full
af fiski. Á Eyrinni í morgun kraum-
aði allt, ég hef aldrei séð svona fyrr
og það var fiskur á í hverju kasti,“
sagði Ari Þórðarsson við Norðurá í
Borgarfirði fyrir nokkrum dögum.
Áin er nú í langefsta sæti yfir veiði-
árnar, komin í um 1800 laxa. „Holl-
ið sem var að hætta fékk 268 laxa og
síðustu þrjú holl hafa verið að gefa
feiknavel, þetta er bara fjör! Vatnið
í ánni er gott og fiskurinn vel hald-
inn úr sjó,“ sagði Ari.
Gott í Straumu
„Veiðin gengur feiknavel hjá okk-
ur, en það hafa veiðst um 130 lax-
ar,“ sagði Ástþór Jóhannsson við
Straumfjarðará, en erlendir veiði-
menn eru við veiðar hjá þeim þessa
dagana. Á meðfylgjandi mynd eru
annarsvegar Manuel Falco frá Spáni
sem hefur veitt árlega í Straumfjarð-
ará síðustu 20 árin og nú kom sonur
hans með honum. Myndin er tek-
in um hádegi sl. mánudag. Sonur-
inn er þarna með Maríulaxinn sinn
fyrsta morguninn sinn í veiði. Það
hefur verið nokkur umræða um að
gömlu útlendingahollin endurnýi
sig hægt eða ekki, svo þess vegna er
fengur í að fá yngri menn erlend-
is frá til veiða með foreldrum sín-
um. Straumfjarðará fagnaði Trist-
an Falco með tveimur löxum og
sá fyrri kom nærri því í fyrsta kasti
hans með fluguna í Svartabakka.
Himnasæla veiðimanna við mokveiðar
Laxinn mættur snemma
í Reykjadalsá
Veiðin í Reykjadalsá í Borgarfirði
fer yfirleitt rólega af stað framan af
sumri, en núna er allt annað uppi á
teningnum og er laxinn mættur. Nú
hafa veiðst 17 laxar í ánni og flestir
hafa fiskarnir veiðst á Rauða Fran-
ses og fengist víða um ána, mest þó
á neðstu stöðunum; Klettsfossi og
Klettsfljótinu.Við heyrðum í veiði-
konum sem voru við veiðar þar í
fyrrakvöld. Þær höfðu orðið var-
ar við fiska en ekki fengið neitt,
en voru býsna vongóðar. Vatnið er
feiknagott í ánni. Hægt er að kaupa
veiðileyfi í Reykjadalsá á vef Stang-
veiðifélags Keflavíkur. Talsvert er
enn um óseld leyfi í ánni.
Loks má nefna að Andakílsá hef-
ur gefið 60 laxa og nokkra væna,
eins og við sögðum frá í liðinni
viku.
Veiðin byrjaði frábærlega í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum enda kættust
veiðimenn.
Andri Fannar og Magnús Anton á
Vatnasvæði Lýsu. Ljósm. gb.
Manuel Falco með Tristan syni sínum í
Straumfjarðará.
Klettsfoss, neðsti veiðistaðurinn í Reykjadalsá, hefur verið að gefa laxa að undan-
förnu.