Skessuhorn


Skessuhorn - 17.07.2013, Side 28

Skessuhorn - 17.07.2013, Side 28
ÞÚ FÆRÐ MEIRA Í STOFNI H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Síðastliðið haust keypti lögregl- an á Snæfellsnesi myndbandsupp- tökuvélar sem lögregluþjónar bera á brjósti sér við skyldustörf. Tölu- vert mörg lögregluembætti víðs- vegar um heiminn, og þá sérstak- lega í Bretlandi, hafa tekið upp notkun slíkra myndavéla. Lög- regluembættin á Snæfellsnesi og embætti lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum hafa tekið upp notkun slíkra myndavéla hér á Vesturlandi. Myndavél er komið fyrir á framan- verðum lögreglubúningi í brjóst- hæð og bíður upp á 170 gráðu sjón- svið. „Við hófum notkun þessara véla þar sem lögreglumenn á Snæ- fellsnesi vinna oft einir. Þetta fyr- irkomulag eykur sönnunarstöðu og er baktrygging gegn tilefnislausum kærum gegn lögreglu. Það er hægt að hreinsa menn af slíkum ásökun- um með því að skoða upptökur,“ segir Ólafur Guðmundsson yfir- lögregluþjónn á Snæfellsnesi í sam- tali við Skessuhorn. Með þessum búnaði sparast því kostnaður sem annars félli til vegna tilefnislausra mála. Jafnvel er hægt með upptökunum að spara dóms- mál sem annars væru höfðuð gegn lögreglumönnum af meintri ákæru um brot í starfi. Notkun slíkra myndavéla bíður því upp á mikinn tímasparnað og einfaldar sönnun- aröflun, sem og að hægt er að nota vélarnar til skýrslutöku. Tvær myndavélar voru keyptar á Snæfellsnes, ein er í Stykkishólmi og önnur í Ólafsvík. Vélarnar eru mjög sýnilegar framan á lögreglu- þjónum og ekki er um rafræna vökt- un að ræða. „Upptaka er ekki alltaf í gangi, heldur byrjar lögreglumaður upptöku þegar tilefni er til eins og við handtöku eða á brotavettvangi. Þá er viðmælendum alltaf bent á að upptaka sé í gangi. Enn eru fá til- vik þar sem vélarnar hafa verið not- aðar hjá okkur, en okkar reynsla er að fólk róast ef því er tilkynnt að upptaka sé í gangi. Notkun mynda- vélarnar býður upp á ýmsa mögu- leika og við erum enn að læra á þær, en það er ljóst að við getum notað þær við flest öll mál sem við fáumst við,“ segir Ólafur. Myndavélarnar eru þeim eiginleika búnar að þær taka sífellt upp síðustu 30 sekúndur áður en kveikt er á upptöku. Þann- ig er líklegt að það atvik sem orsak- ar að lögregluþjónn kveiki á vélinni náist á upptöku. Erlendar rannsóknir sýna jákvæða niðurstöðu Lögreglan í hundrað þúsund íbúa borginni Rialto í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum framkvæmdi árs- langa rannsókn í samstarfi við Cambridge háskólann á því hvern- ig hægt væri að fækka tilvikum þar sem lögreglan þurfti að beita valdi. Jafnvel vildu þarlend lögregluyfir- völd fækka tilvikum þar sem kvart- anir bárust gegn lögreglunni. Árið áður en embættið tók myndavél- arnar í notkun bárust 24 kvartan- ir gegn lögregluþjónum. Næsta ár, þegar myndavélarnar voru komnar í notkun, bárust embættinu eingöngu þrjár kvartanir og er það 87,5% fækkun á milli ára. Eins þurftu lög- regluþjónar að beita valdi 61 sinn- um á fyrra árinu en árið eftir, þegar myndavélarnar voru teknar í notk- un, þurftu lögregluþjónar að beita valdi 25 sinnum, sem var 59% lækk- un tilvika. Af þeim 25 tilvikum voru 17 þar sem lögreglumaður var ekki með myndavél og átta þar sem lög- reglumenn voru með myndavélar. Það sem meira er að í þeim átta til- vikum þar sem lögreglumenn þurftu að beita valdi lýstu allir sakborning- ar yfir sekt og því sparaðist mikið fé og tími við rannsóknir og dóms- meðferð mála. Einnig geta tilvik þar sem lögreglumenn geta lagt fram myndband sem sönnunargagn dreg- ið mikið úr skýrslugerð og dregið úr frekari rannsóknartíma. Lögreglumenn líklegri til að fylgja starfsreglum Lögregluembætti í Bretlandi hafa einnig framkvæmt rannsóknir á áhrifum myndavélanna og niður- stöður þar hafa lofað góðu. Rann- sóknir hafa sýnt að fólk hagar sér öðruvísi þegar það veit af því að upptökur eru í gangi og það dregur úr neikvæðum samskiptum lögreglu við almenning. Þá kemur í ljós að lögreglumenn eru einnig líklegri til að fylgja starfsreglum að fullu þegar upptökutæki sem þessi eru í gangi. Í Bretlandi eru myndavélar notað- ar í miklum mæli þegar lögreglu- menn tala við ölvað fólk og þar seg- ir myndband meira en þúsund orð því áfengi hefur mjög mismunandi áhrif á fólk og erfitt að lýsa ölvunar- ástandi með texta á blaði. Í Bretlandi hefur málum sem hægt er að ljúka án ákæru eða dómsmáls fjölgað mik- ið eftir að myndavélar voru teknar í notkun, þar sem margir brotamenn einfaldlega játa sekt sína eftir að hafa horft á viðkomandi myndskeið. Þetta sparar tímafreka rannsóknar- vinnu lögreglu, tíma ákæruvaldsins og tíma dómstólanna. „Flestir sem tekið hafa upp þennan búnað í lög- gæslu segja að þetta sé framtíðin eða það sem koma skal,“ segir Ólafur yfirlögregluþjónn á Snæfellsnesi að endingu. sko Eins og sést á þessari mynd frá Grundarfirði eru myndavélarnar mjög sýnilegar framan á lögreglubúningum. Myndavélar opna á ýmsa möguleika við löggæslu Upptökuvélar notaðar við löggæslustörf á Vesturlandi Ólafur Guðmundsson yfirlögreglu- þjónn á Snæfellsnesi. LOFTORKA óskar eigendum Hótels Hamars, Sigurði og Ragnheiði, til hamingju með áfangann. Um leið er þakkað fyrir samstarf við aðra verktaka sem að framkvæmdinni komu, en það er ekki heiglum hent að klára 14 ný hótelherbergi á 111 dögum. E n g j a á s 2 • 3 1 0 B o r g a r n e s i • s í m i 4 3 3 9 0 0 0 • w w w . l o f t o r k a . i s

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.