Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2013, Qupperneq 4

Skessuhorn - 02.10.2013, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinssdóttir gudny@skessuhorn.is Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Til að allir sjái Leiðari Í Skessuhorni í dag er sagt frá tillögu sem bæjarstjórn Akraneskaupstað- ar samþykkti samhljóða í síðustu viku. Hún er þess efnis að bjóða sveitar- félögunum Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð og Skorradalshreppi upp í dans, þ.e.a.s. viðra sameiningu þessara fjögurra sveitarfélaga í eitt. Hugmyndin er ekki ný af nálinni, kom líklega fyrst fram 1995. Eftir það hefur t.d. Ágúst Einarsson fyrrum rektor Háskólans á Bifröst endurvakið hana en án árang- urs. Nú er það Gunnar Sigurðsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjór- ninni á Akranesi sem flutti hana og fékk alla fulltrúa meirihlutans með sér í lið. Boltanum verður nú varpað til sveitarstjórnarmanna í nágrannabyggð- um. Blaðamenn Skessuhorns könnuðu reyndar fyrstu viðbrögð sveitar- stjórnarmanna sem biðlað er til. Þau voru fremur dauf. Býst ég því ekki við margra daga fundahöldum um þessa sameiningartillögur í fyrstu atrennu. Kannski vilja þeir ekki einu sinni halda einn fund? Vissulega finnst mér þetta hagsmunamál sem íbúar allir eiga að fá að taka afstöðu til. Því væri alveg borðleggjandi að sveitarstjórnirnar fjórar ræddu málin og hæfu und- irbúning kosninga samhliða sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þar feng- ist ótvírætt fram vilji íbúanna. Ég trúi því ekki að 30 sveitarstjórnarmenn í þessu mögulega 11 þúsund manna sveitarfélagi muni taka þá ákvörðun að leyfa okkur íbúunum ekki að segja okkar hug. Það mun hinsvegar koma í ljós hversu vænt mönnum þykir um völd og peninga sem þeim fylgir. Sameiningarmál tengjast þó einungis óbeint því sem ég ætlaði að færa í tal hér og nú. Í Skessuhorni í dag er sagt frá samningi sem sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit skrifaði undir í vikunni sem leið við verktakann sem mun leggja ljósleiðara heim að hverjum bæ í þeirri sveit og ljúka við næsta sum- ar. Þeir sem hafa kynnst lélegu síma- og netsambandi, svo ég tali nú ekki um slökum sjónvarps- og útvarpsskilyrðum, geta ímyndað sér þann lúxus sem íbúar í Hvalfjarðarsveit munu búa við eftir að verða tengdir við ljós- leiðara. Sveitarstjórinn lýsti þessu sem svipuðu og að bera saman nótt og dag. Sjálfur hef ég ljósleiðara inn í mína íbúð og þekki því þau forréttindi sem í því felast að hafa aldrei áhyggjur af neti, símasambandi eða sjónvarps- skilyrðum. Svipað munu íbúar í Hvalfjarðarsveit upplifa þegar þeir hafa fengið sínar tengingar. En þrátt fyrir að sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit geti með þessum hætti farið út í 300 milljóna króna fjárfestingu, og tekið fyr- ir því nánast undan koddanum, eru engar líkur á að flest önnur sveitarfé- lög geti ráðist í slíkt stórvirki. Hvalfjarðarsveit býr svo vel að innan hreppa- markanna eru stóriðjufyrirtæki sem greiða ríkulega skatta til samfélags- ins. Því geta menn byggt skóla og ljósleiðaravætt heilu sveitirnar á tveim- ur árum og fengið fyrir slíkum fjárfestingum svo gott sem af bankabókinni. Þetta eru forréttindi sem auðvitað er eftirsóknarvert að hafa. Þess vegna vilja aðrir sameinast þeim. Svo einfalt er það. Þau sveitarfélög sem búa við lakari fjárhagsstöðu, en það sem hér er nefnt, eru í verri stöðu, mætti kalla pattstöðu. Víða í dreifðari byggðum er ástand nets og síma með þeim endemum að það eitt og sér kemur í veg fyr- ir fólksfjölgun. Nýjasta dæmið sem ég heyrði er úr Staðarsveitinni þang- að sem fimm manna fjölskylda vildi nýverið flytja. Sú ákvörðun byggði á að hjónin gætu sinnt vinnu í gegnum netið, hálaunavinnu. Sökum skorts á þolanlegu net- og símasambandi varð þó ekkert úr þeim flutningi og verð- ur ekki í fyrirsjáanlegri framtíð. Mýmörg fleiri dæmi mætti nefna um þá annmarka sem léleg fjarskipti hafa á búsetuskilyrði fólks á landsbyggðinni. Meðal annars þess vegna er ég fremur fylgjandi sameiningu sveitarfélaga. Við þurfum öflugar stjórnsýslueiningar og fjárhagslega burðug sveitarfélög sem geta framkvæmt það sem er til bóta, þegnunum í vil. Ef íbúar hafna skynsamlegum sameiningum vegna stundar- eða sérhagsmuna er illa kom- ið. Landsbyggðin á þvert á móti að standa saman og gera byggðirnar öfl- ugri en þær eru í dag. Magnús Magnússon. Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur á hverju ári fyrir landsæf- ingu björgunarsveita. Til skipt- is eru þær haldnar á landi og á sjó. Æfingarnar eru haldnar víðs vegar um landið, en björgunarveitir á við- komandi svæðum sjá þá um skipu- lagningu þeirra og framkvæmd. Sveitir koma þá allsstaðar að af landinu og leysa fjölbreytt leitar- og björgunarverkefni. Laugardag- inn 12. október næstkomandi verð- ur landsæfing Slysavarnafélagsins Landsbjargar haldin í Borgarfirði. Það eru björgunarsveitir á svæði 4; björgunarsveitirnar Ok, Heið- ar, Brák, Elliði og Björgunarfélag Akraness sem hafa veg og vanda að skipulagningu æfingarinnar og vinna um þessar mundir að und- irbúningi. Þór Þorsteinsson hjá Björgunarsveitinni Ok er æfingar- stjóri fyrir landsæfinguna. „Það eru hátt í 100 félagar úr þessum björgunarsveitum auk fé- laga úr Slysavarnardeildinni Líf á Akranesi sem koma að undirbún- ingi og framkvæmd æfingarinnar og er þetta með stærri verkefnum sem við höfum tekið að okkur. Nú erum við að skipuleggja upp und- ir 70 leitar- og björgunarverkefni sem felast m.a. í fyrstu hjálp, fjalla- björgun, rústabjörgun, straum- vatnsbjörgun og leitarverkefnum auk ýmissa annarra verkefna sem eru misjafnlega tímafrek og stór í sniðum. Mörg þessara verkefna eru notuð aftur og aftur á sjálfan æfing- ardaginn,“ segir Þór. Félagar í þess- um fimm björgunarsveitum taka að sér ýmis verkefni og má þar nefna stjórnun æfingarinnar, stjórn fjar- skipta og samskipti við fjölmiðla. Auk þess eru verkefnastjórar yfir hverju verkefni sem sjá til þess að verkefnin séu leyst á réttan hátt auk þess að tryggja öryggi bæði þátt- takenda og sjúklinga en sjúkling- ar koma víða að og eru enn lausar stöður þar, að sögn Þórs. Hann seg- ir að nú þegar hafi á annað hundrað skráningar einstaklinga borist víðs vegar af landinu og eigi þeim eft- ir að fjölga næstu daga. „Við ger- um ráð fyrir að yfir 200 björgunar- sveitarmenn í 20-30 hópum mæti á æfinguna. Þá verður Landhelg- isgæslan einnig með og sendir lík- lega eina þyrlu sem þátt tekur í æf- ingunni.“ Landsæfingin hefst snemma að morgni laugardagsins 12. októ- ber og lýkur henni með kvöldmat í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit. mm Þessa dagana er að ljúka vegafram- kvæmdum í Melasveit þar sem lagt var bundið slitlag á 1,7 kílómetra kafla frá vegamótum Vesturlands- vegar við Skorholt og að bænum Bakka. Vegurinn var byggður upp fyrir nokkrum árum með malarslit- lagi. Verktakafyrirtækið Þróttur sá um lagningu undirlags fyrir mal- bikið sem Borgarverksmenn lögðu. Að sögn Ingva Árnasonar hjá Vega- gerðinni í Borgarnesi fengust 30 milljónir í þetta verk. Önnur fram- kvæmd í Hvalfjarðarsveitinni er síð- an í undirbúningi og verður boðin út á næstunni og er hún sínu stærri en verkið í Melasveitinni. Það er Leirársveitarvegur frá gatnamót- unum við Tungu upp að Kambs- hóli, um átta kílómetra vegarkafli en þar verður bundið slitlag lagt á malarveg líkt og gert var við Skor- holt. Aðalfjárveiting til verksins er á næsta ári og stefnt á að fram- kvæmdir byrji snemma næsta vor, að sögn Ingva Árnasonar. þá Nýr fjármálastjóri er kominn til starfa við Háskólann á Bifröst. Það er Borgfirðingurinn Þorvald- ur Tómas Jónsson frá Hjarðarholti. Þorvaldur tekur við starfinu af Stef- áni Sveinbjörnssyni sem nýlega var ráðinn framkvæmdastjóri Verslun- armannafélags Reykjavíkur. Þor- valdur hefur mikla reynslu af fjár- sýslu og endurskoðunarstörfum, en hann var m.a. um árabil fjármála- stjóri Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. þá Landsæfing björgunarsveitanna verður 12. október í Borgarfirði Fjallabjörgunarmaður úr Borgarfirði á æfingu. Ljósm. Þór Þorsteinsson. Frá æfingu björgunarsveita. Ljósm. Landsbjörg. Þorvaldur tekur við lyklavöldunum úr hendi Stefáns. Þorvaldur Tómas tekur við sem fjármálastjóri á Bifröst Bundið slitlag lagt á Melasveitaveg við Skorholt fyrir síðustu helgi. Vegaframkvæmdir í Melasveit

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.