Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Olíuverzlun Íslands hf. Við óskum eftir verslunarstjóra á þjónustustöð Olís í Stykkishólmi. Reynsla af verslunarstörfum og stjórnun er æskileg. Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð. Helstu verkefni • Umsjón með daglegum rekstri stöðvarinnar • Innkaup • Sala • Mannaforráð • Þjónusta við einstaklinga og fyrirtæki PI PA R\ TB W A · S ÍA · 1 32 81 8 Hæfni og þekking Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Almenn tölvukunnátta. Áhersla er lögð á ríka þjónustulund, stundvísi, snyrtimennsku og hæfni í mannlegum samskiptum. Skilyrði er að umsækjendur hafi hreint sakavottorð og séu reyklausir. Þín bíður spennandi starf í Stykkishólmi Vinsamlega sendið umsóknir merktar „Stykkishólmur“ ásamt ferilskrá í tölvupósti á netfangið frida@olis.is fyrir 13. október nk. Ef frekari upplýsinga er óskað má jafnframt senda fyrirspurn á sama netfang. Fræðslunefnd Borgarbyggðar, Grunnskólinn í Borgarnesi og stjórn foreldrafélags Grunnskólans í Borgarnesi boða hér með til foreldrafundar um málefni skólans. Á fundinum munu fræðslustjóri, starfandi skólastjóri og stjórn foreldrafélagsins kynna niðurstöður viðhorfskönnunar Skólavogarinnar, umbótaáætlun og stjórnskipulag skólans. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti þriðjudaginn 8. október klukkan 20:00-22:00. Foreldrar barna í Grunnskólanum í Borgarnesi eru hvattir til að mæta. Fræðslustjóri Foreldrafundur í Borgarnesi Útgefandi: Skessuhorn - Kirkjubraut 56 - 300 Akranes - s: 433 5500 Pantanir: www.skessuhorn.is Vefpóstur: tinna@skessuhorn.is Gefin út í tilefni 15 ára afmælis Skessuhorns Úrval vísnaþátta sem birtust í Skessuhorni síðastliðin fimmtán ár. 1760 tækifæris- og lausavísur höfunda víðsvegar af Íslandi. Dagbjartur Dagbjartsson safnaði, skráði og tengdi saman í lifandi frásögn. Myndskreytt með 128 skopteikningum Bjarna Þórs Bjarnasonar. Hvalvertíð ársins 2013 lauk um liðna helgi og veiddust 134 lang- reyðar á vertíðinni. Forstjóri Hvals hf. segist mjög sáttur með vertíð- ina þó að ekki hafi tekist að veiða 20 hvali af heildarkvótanum sem var 154 dýr. Veðurfar var rysjótt í sumar með tíðum lægðagangi sem truflaði veiðarnar. Forstjóri mjög sáttur Tveir bátar stunduðu veiðarnar. Hvalur 8 var enn á miðunum þeg- ar Hvalur 9 kom með síðustu lang- reyði vertíðarinnar að landi. Von- ir stóðu til að skipverjum á Hvali 8 tækist að fanga hval á föstudag- inn en sú ósk rættist ekki. Þar með var skipið kallað inn og kom það að bryggju í Hvalfirði á laugar- dagsmorgun. Með því lauk vertíð- inni endanlega. „Ég er mjög sáttur við vertíðina í sumar. Tíðin er búin að vera erfið. Þrátt fyrir það hætt- um við nú á svipuðum tíma og hér áður fyrr,“ sagði Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. þegar blaðamað- ur Skessuhorns leit við í Hvalstöð- inni á laugardaginn. Hvalur 8 lá þá við bryggju og starfsmenn önn- um kafnir í vinnslu á síðasta hvaln- um. Skipið hafði verið nokkra daga á miðunum djúpt vestur af land- inu án þess að tækist að finna lang- reyði. „Það var samt mikið af hvöl- um á slóðinni. Þeir sáu alls um 60 steypireyðar og um 20 sandreyðar í ferðinni, en enga langreyði. Þetta er oft svona þegar líður á haustið. Þá er eins og langreyðarnar dragi sig í hlé og leiti annað þegar hinar tegundirnar koma á miðin. Kannski eru þær farnar suður á bóginn eða norður með Vestfjörðum. Þar var óveðursstrengur og því ekki hægt að leita,“ sagði Kristján. Rétt ríflega helmingur veiddist Til samanburðar við veiði ársins má geta þess að 125 langreyðar veidd- ust á vertíðinni 2009. Á síðustu vertíð árið 2010 voru veidd 148 dýr. Veiðar lágu niðri árin 2011 og 2012, þar sem jarðskjálftar og flóð í Japan ollu tjóni á vinnslufyrirtækj- um þar í landi auk þess sem mjög dró úr neyslu hvalaafurða þar í kjöl- farið. Vertíðin í ár var sú síðasta sem leyfð er samkvæmt reglugerð sem Einar Kr. Guðfinnsson þáver- andi sjávarútvegsráðherra gaf út í ársbyrjun 2009 til fimm ára. Leyft var að veiða í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar á fimm ára tímabili allt til ársloka 2013. Sam- kvæmt þeirri ráðgjöf hefur ver- ið talið óhætt að veiða allt að 154 langreyðar á hverju ári tímabils- ins, eða 770 dýr alls. Nú liggur fyr- ir að á þessu fimm ára tímabili voru alls veidd 407 dýr, en það er 53% af heildar kvótanum. Nýtingin hef- ur þannig verið ríflega helmingur þess sem vísindamenn töldu óhætt að veiða. Boltinn er hjá stjórnvöldum Fyrsti hvalur vertíðarinnar í ár barst að landi 18. júní. Um 150 manns hafa starfað við veiðar og vinnslu í sumar, bæði í Hvalfirði, á Akra- nesi og í Hafnarfirði. Eigi veiðar á hrefnum og langreyðum eftir að halda áfram í atvinnuskyni næsta sumar er ljóst að núverandi ríkis- stjórn verður að taka ákvörðun þar um með útgáfu nýrrar reglugerð- ar. „Ég hef engar áhyggjur af fram- tíð veiðanna,“ sagði Kristján Lofts- son aðspurður um framhaldið. All- ar líkur eru á að hópur manna muni starfa á vegum Hvals hf. í Hvalfirði í vetur. Þeir munu þá bæði sinna við- haldi og endurbótum á sjálfri hval- stöðinni og íbúðahverfinu í gamla braggahverfinu að Miðsandi. mþh Langreyðarsporður skorinn til vinnslu í hvalstöðinni. Það er Sindri Smárason sem heldur á hnífnum. Hvalvertíð lokið þetta haustið Kristján Loftsson við vertíðarlok í Hvalfirði. Hann segist afar sáttur nú þegar upp er staðið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.