Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Fyrirlestraröðin, Fyrirlestrar í hér- aði, hefst í Snorrastofu þriðjudag- inn 8. október nk. með fyrirlestri Bjarna Guðmundssonar á Hvann- eyri, sem hann nefnir; „Frá hest- um til hestafla - jarðræktarsögur úr Borgarfirði.“ Fyrirlesturinn er samvinnuverkefni Snorrastofu og Landbúnaðarsafns Íslands en Bjarni er forstöðumaður þess í hlutastarfi. Fyrirlesturinn hefst samkvæmt venju kl. 20:30 og verður boðið til kaffiveitinga og umræðna. Sagt verður frá túnasléttun í upp- hafi umbótaaldar þegar farið var að nýta dráttarafl hestanna með verk- færum á grundvelli erlendrar verk- þekkingar. Áhersla verður eink- um lögð á umbótaverk jarðræktar- manna í Borgarfirði og sagðar jarð- ræktarsögur úr héraði. Þróuninni verður síðan fylgt fram á tíma véla- aflsins. Erindið er að miklu leyti byggt á rannsóknum Bjarna vegna uppbyggingar Landbúnaðarsafns- ins á Hvanneyri en sérstaklega þó vegna ritunar bókarinnar Frá hest- um til hestafla, sem er nýkomin út. Bókin verður fáanleg á sérstöku til- boði Landbúnaðarsafns í tengslum við fyrirlesturinn. Bjarni Guð- mundsson er Vestfirðingur. Hann er með doktorspróf frá Norska landbúnaðarháskólanum 1971 og hefur kennt á Hvanneyri sl. fjöru- tíu árin og rúmlega það. Jafnhliða hefur hann unnið að rannsóknum á sviði fóðuröflunar. Bjarni sinnir nú rannsóknum á landbúnaðarsögu, einkum á verkháttum á tuttugustu öld og þróun þeirra. Þá er þess einnig að geta að Forn- sagnanámskeið Snorrastofu, Land- námsseturs Íslands og Símennt- unarmiðstöðvarinnar á Vestur- landi fjallar í vetur um tengsl Fóst- bræðrasögu og Gerplu og hefst það mánudaginn 7. október í Land- námssetrinu. Skráning fer fram hjá Símenntunarmiðstöðinni. -fréttatilkynning Síðastliðið föstudagskvöld byrjaði Ómar Ragnarsson að segja ævisögu sína á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi, en setrið hefur samið við Ómar um að verða með uppi- stand í vetur. Í 30 ár hefur Ómar hafnað fjölmörgum hugmyndum bókaútgefenda um að skrifa ævi- sögu sína því ef hún yrði fest á blað vildi hann segja hana fyrst. Kjartan og Sirrý í Landnámssetrinu viðr- uðu þá hugmynd við kappann að hann byrjaði að flytja ævisöguna í sagnaformi á Sögulofti setursins og beit hann á agnið. Í þessum fyrsta hluta ævifrásagnar sinnar seg- ir Ómar sögur af minnisverðu og skemmtilegu fólki sem rekið hef- ur á fjörur hans, af fjölskyldu sinni og uppvexti á Skólavörðuholtinu. Í stuttu hófi eftir frumsýninguna kom fram að þessi frásögn yrði hugsanlega sú fyrsta af sjö, því sjálf- ur segir Ómar að æviskeið hans sé svo langt og litríkt að ekki komist fyrir í færri þáttum. Vel má ímynda sér að þegar flutningi sjöunda þátt- ar lýkur yrði það auðvelt verk fyr- ir færan skrásetjara að skrifa mynd- arlega bók byggða á þessum flutn- ingi. Vel má þannig ímynda sér t.d. sérstakan kafla um sjónvarps- ferilinn, leiklist og söng, rallíakst- ur, flugið, persónur sem hann hef- ur kynnst, fjölskylduna og ekki síst náttúruverndarmál sem hann er í seinni tíð hvað þekktastur fyrir. Í það minnsta eru ekki margir nú- lifandi Íslendingar sem eiga heilan dag kenndan við sig, eins og Ómar vissulega hefur, en dagur íslenskrar náttúru var ákveðinn á sjötíu ára af- mæli hans 16. september 2010. Óhætt er að segja að Ómar hafi náð athygli gesta sinna á Söguloft- inu frá fyrsta andartaki síðastlið- ið föstudagskvöld og allt til enda. Fyrirfram höfðu ýmsir haft af því áhyggjur að ströng viðvera Óm- ars í Gálgahrauninu vikurnar áður myndi setja strik í reikninginn við undirbúning hans. Þær áhyggj- ur voru auðgleymdar. Þrátt fyrir að vera kominn á áttræðisaldur er heilsa, bæði andlegt og líkamlegt atgervi, þessa þekktasta sjónvarps- manns Íslendinga með hreinum ólíkindum. Stálminnugur er hann á fólk og ættir þess og aragrúa af skemmtilegum persónum úr æsku og uppvexti kynnti hann fyrir gest- um. Foreldrum sínum gerði hann góð skil á hreinskiptinn en um leið fallegan hátt. Vissulega var faðir hans skrautleg persóna sem glímdi lengst af við drykkjuvandamál en Jarðræktarsögur úr Borgar- firði á dagskrá í Snorrastofu Ómar byrjaður að segja ævisögu sína stundaði engu að síður sína vinnu. Móðir sína dáði Ómar alla tíð og skipaði hún afar stórt hlutverk í þessum fyrsta hluta af sjö í æviminn- ingum hans. Frásögn sína byrjar hann reyndar á forfeðrum foreldra hans og þeirra lífsbaráttu. Alltof langt mál væri að fara yfir allt sem Ómar hafði að segja á skemmtilegri kvöldstund á Söguloftinu. Sjálfur er ég ekki mikill leikhússmaður, við- urkenni það alveg, en þetta uppi- stand Ómars Ragnarssonar er með ánægjulegustu kvöldstundum sem ég hef átt í leikhúsi í langan tíma. Þeir sem komnir eru á miðjan ald- ur eins og ég muna vart tilveruna án Ómars Ragnarssonar. Öll eig- um við því eitthvað í honum karl- inum, frá veru hans í sjónvarpi og fjölmiðlum, sumargleði og reynd- ar ýmissi gleði á öllum árstímum. Kannski má því segja að hann sé einn af fjölskyldunni. Þessvegna var þetta svona skemmtilegt. Ég skora á alla sem vettlingi geta valdið að tryggja sér miða á sýninguna. mm Þessar myndir af foreldrum Ómars gegndu sérstöku hlutverki í sýninginni. Kjartan og Sirrý í Landnámssetrinu að lokinni sýningu með sögumanninn á milli sín. MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! SMUROLÍUR OG SMUREFNI Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. GOTT AÐ VITA! NÁMSKEIÐ OG FYRIRLESTRAR Á VEGUM ST.RV. OG SFR SPARNAÐUR OG HAGSÝNI Dags.: 29. okt., kl. 17.30–19.00 I Lengd: 1,5 klst. I Staður: Suðurgötu I Leiðb.: Lára Ómarsdóttir Farið verður í hvernig hægt er að lifa af litlu með bros á vör. Hvernig best er að spara og skipuleggja fjármálin. Hvar tækifærin liggja og hvernig hægt er að takmarka fjárhagsáhyggjur við þrjá daga í mánuði. Þessum spurningum er svarað ásamt fleirum er varða fjárhag og farið er yfir leiðir til að njóta lífsins til fulls. VERSLAÐ Á NETINU Dags.: 13. nóv., kl. 17.30–19.30 I Lengd: 2 klst. I Staður: Grundaskóli I Leiðb.: Sigurjón Jónsson Skemmtilegt og fræðandi námskeið um hvernig hægt er að versla á öruggan hátt á Netinu. Bent er á góðar leiðir til kaupa á ýmsum vörum, hvernig best er að leita að vörum á Netinu, öruggar greiðsluleiðir, hvaða sendingarmöguleikar eru í boði, viðbótarkostnaður (tollar og gjöld) og svo hvað þarf helst að varast í viðskipt- um á Netinu. Þetta er praktískt og gott námskeið. Það er mun einfaldara og ódýrara að versla á Netinu heldur en þig grunar. Ekkert búðarráp, bara láta fara vel um sig fyrir framan tölvuna og skoða gott vöruúrval á Netinu. HAGNÝT ENSKA Dags.: 22., 29. okt. 5., 12. og 19. nóv., kl. 17.00–19.00 I Lengd: 10 klst. Staður: Skrifstofa St.Rv. á Akranesi, Suðurgata 62 I Leiðb.: Helena Valtýsdóttir Lýsing: Námskeiðið er ætlað fyrir fólk sem vill auka færni sína í ensku. Sérstök áhersla er á að þjálfa ýmis konar hagnýta ensku fyrir atvinnulífið, s.s að svara í síma, skrifa tölvupóst og hagnýtan orðaforða. Áhersla er bæði á tal- og ritmál og reynt að koma til móts við mismunandi námsþarfir einstaklinga. Skráning og nánari upplýsingar á vefsíðu eða skrifstofum félaganna: • SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu • www.sfr.is • Sími 525 8340 • Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar (St.Rv.) • www.strv.is • Sími 525 8330 HAUST 2013

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.