Skessuhorn


Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Björgunarsveitin Klakkur var með hefðbundna bátaæfingu á dögun- um. Sigldu björgunarsveitarmenn m.a. um Kolgrafafjörð á Reyni SH, björgunarbáti þeirra. Þegar þeir voru að fara undir brúna og í Urt- hvalafjörð rákust þeir á fljótandi grindhval sem hafði geispað gol- unni. Og hvað gera björgunarsveit- armenn þegar að þeir rekast á fljót- andi grindhval? Jú, þeir athuga lífs- mörk og hvort að þeir geti bjarg- að skepnunni. En því miður fyrir þennan grindhval þá var það of seint og fékk hann því að fljóta sína leið. Þeir Svavar Áslaugsson, Erling Pét- ursson og Kári Gunnarsson stóð- ust þó ekki mátið að athuga burð- argetu hvalsins og reyndist hann rúma einn háseta með góðu móti. Á myndinni er Kári Gunnarsson að athuga burðarþol hvalsins. tfk/ Ljósm. Erling Pétursson. Starfsmannafélag Rarik í Stykkis- hólmi vildi leita leiða til að ná nið- ur umferðarhraða á þjóðveginum ofan Stykkishólms. Margir starfs- menn ganga og hjóla til vinnu upp að Hamraendum og umferð hef- ur verið fremar hröð. Starfsmanna- félagið leitaði því fyrir sér með möguleika á uppsetningu á hraða- skilti rétt ofan Hamraenda. Leitað var eftir samstarfi við Vegagerðina og Stykkishólmsbæ, sem var auð- sótt. Aðrir sem koma að fjármögn- un og uppsetningu hraðaskiltisins eru Umferðaröryggissjóður, Orku- salan ehf, Rarik ohf. og Starfsmenn Rarik í Stykishólmi. Skiltið var sett upp föstudaginn 27. september og tengt rafmagni. Starfsmenn Rarik í Stykkishólmi vilja koma á framfæri þökkum til framangreindra aðila sem gerðu þetta mögulegt og vonast til að umferðarhraði lækki á svæðinu og inn í Stykkishólm og öryggi veg- farenda aukist þar með. sá Bókin Stolin krækiber – skopmynda- skreytt úrval vísnaþátta í Skessu- horni, kom úr prentun síðastliðinn fimmtudag. Af því tilefni komu höf- undarnir í kaffi á ritstjórn Skessu- horns og árituðu nokkur eintök af bókinni fyrir áhugasama kaupend- ur. Þetta voru þeir Dagbjartur Dag- bjartsson sem safnaði og skráði efni í bókina og Bjarni Þór Bjarna- son listamaður sem myndskreytti. Skessuhorn gefur bókina út í tilefni 15 ára afmælis útgáfunnar. Næstu daga verður bókinni dreift í versl- anir vítt og breitt um landið en þeir sem vilja geta pantað sér eintak á vef Skessuhorns og verður bókin þá send heim (sendingarkostnað- ur innifalinn í verði) Bókin kostar 4.990 krónur, er í stóru kiljuformi, 252 blaðsíður. -fréttatilkynning Niðurstöður könnunar fræðslu- nefndar Knattspyrnufélags ÍA á Norðurálsmótinu 2013 liggja nú fyrir. Öllum þjálfurum og forsvars- mönnum þátttakendaliða var send spurningakönnun þar sem spurt var út í ýmsa framkvæmdarliði á mótinu auk þess sem svarendum var gefinn kostur á að benda á það sem væri gott og annað sem betur mætti fara. „Niðurstöður könn- unarinnar eru væg- ast sagt frábærar og mikil hvatning fyr- ir aðstandendur móts- ins að halda áfram á sömu braut. Könnunin skiptist í þrettán bein- ar spurningar þar sem tengiliðar þátttöku- liða gátu tekið afstöðu til ákveðinna málefna sem tengdust mótinu. Í lok spurningakönnun- arinnar gafst þátttakendum kostur á að skrá hluti sem væru vel gerð- ir á Norðurálsmótinu, ábending- ar um það sem betur mætti fara og koma á framfæri öðrum ábending- um eða athugasemdum til Knatt- spyrnufélagsins,“ segir í tilkynn- ingu frá ÍA. Þegar spurt var um skipulagn- ingu mótsins í heild sem snýr að keppnis- og vallarskipulagi voru allir sammála um að þau mál væru til fyrirmyndar. Sama var uppi á teningnum er spurt var um upp- lýsingagjöf, fæðismál og gistingu. Um 90% þátttakenda voru á þeirri skoðun að þau mál væru til fyrir- myndar. Skemmtilegt er frá því að segja að allir sem svöruðu könn- uninni sögðust hiklaust mæla með Norðurálsmótinu. „Ég mæli með að mitt félag fari alltaf á Norður- álsmótið. Það yrði algjört slys að missa af þátttöku á því.“ Og annar fararstjóri sagði: „Norðurálsmót- ið er algjörlega í sér klassa að öllu leyti. Þetta mót er hreinlega frábær auglýsing fyrir Akraneskaupstað.“ Þegar spurt var um afstöðu til af- þreyingar sem í boði var fyrir aðra en iðkendur voru 10,5% aðspurðra frekar óánægðir á móti 47% sem voru ánægðir eða frekar ánægðir, en 42% voru hlutlausir í sinni skoðun. Ábendingar koma fram um að aug- lýsa megi betur þá þjónustu sem er í boði fyrir gesti á mótinu. Akra- nes sé góður bær til að sækja heim en ekki sé auðvelt að fá upplýsing- ar um þá þjónustu sem er í boði. Sá þáttur sem kom verst út í könnun- inni er kvöldskemmtunin. Um 22% aðspurðra voru óánægðir eða frek- ar óánægðir með hana. Þessi nið- urstaða er þó um 10% bæting frá fyrra ári en þá kom kvöldskemmt- unin einnig verst út í matinu. 44% þátttakenda eru hlutlausir en rúm- lega 33% eru ánægðir eða frekar ánægðir með skemmtunina. „Heildarniðurstöð- ur könnunarinnar sýna svo ekki verður um villst að mikil ánægja er meðal þátttakenda með framkvæmd Norður- álsmótsins á Akranesi. Knattspyrnufélag ÍA hefur fengið fjölda fyr- irspurna varðandi þátt- töku á mótinu sumarið 2014 og vilja fjölmarg- ir forsvarmenn íþrótta- félaga fastsetja bókun á mótið fyrir sitt félag. Áhuginn er svo mik- ill að ljóst er að færri komast að en vilja,“ segir Haraldur Ing- ólfsson framkvæmdastjóri félags- ins. Þá segir í tilkynningu frá ÍA: „Knattspyrnufélag ÍA þakkar öllum þeim sem tóku þátt í könnuninni kærlega fyrir þátttökuna, en þessi könnun er liður félagsins í að gera gott mót betra. Einnig er fræðslu- nefnd félagsins færðar þakkir fyrir vel unnin störf við framkvæmd og úrvinnslu á könnuninni. Norður- ál á einnig heiður skilið fyrir þeirra aðkomu að mótinu. Síðast en alls ekki síst þá vill Knattspyrnufélag ÍA þakka foreldrum og forráðamönn- um kærlega fyrir þeirra framlag en án þeirra væri ekki hægt að halda mótið og heiðurinn og sóminn er algjörlega þeirra.“ mm Litlu munaði að logarnir læstu sig í húsnæði niðursuðuverksmiðj- unnar Akraborgar þegar verk- stæði Trésmiðju Akraness brann til kaldra kola að kvöldi 18. septem- ber síðastliðins. Snarræði Slökkvi- liðs Akraness og Hvalfjarðarsveit- ar forðaði því að ekki fór verr. Í þakklætisskyni færði Rolf Hákon Arnarson framkvæmdastjóri Akra- borgar slökkviliðinu því rafknúna sög fyrir vel unnin störf á vettvangi þessa mikla bruna. Gjöfin var af- hent á fundi slökkviliðsins 26. sept- ember síðastliðinn. Þráinn Ólafs- son slökkviliðsstjóri tók við gjöf- inni að viðstöddum starfsmönn- um slökkviliðsins, slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar, Regínu Ásvalds- dóttur bæjarstjóra og embættis- mönnum Akraneskaupstaðar. Bæj- arstjóri þakkaði ennfremur slökkvi- liðinu fyrir frábært starf í sumar. Á síðustu vikum hefur slökkvilið- ið þurft að glíma við tvo stórbruna á Akranesi. Fyrra skiptið var þegar kviknaði í fiskibátnum Magnúsi SH í húsnæði Þorgeirs og Ellerts hf. í Slippnum. Seinna skiptið var svo þegar Trésmiðja Akraness brann. Í báðum tilfellum kom slökkviliðið í veg fyrir að enn meira tjón en ella hlytist af brununum. mþh Björgunarfélag Akraness hefur starfrækt ungliðadeildina Arnes frá því haustið 2006. Starfið í Arnesi er hugsað fyrir ungmenni í 9. og 10. bekk og er bæði til gagns og gamans fyrir unglingana. Starfsemi af þessu tagi skilar betri einstaklingum inn í björgunarsveitir landsins og inn í lífið almennt en þau hljóta góðan grunn og þekkingu í ungliðadeild- inni. Kvennadeildin Líf gaf Arnesi 100 þúsund krónur nú á dögun- um sem þakklætisvott fyrir hjálp- ina við sölu á merkjum Sjómanna- dagsins. „Ungliðadeild Arnes vill koma þakklæti til Kvennadeildar- innar Líf fyrir þennan veglega styrk sem á eftir að koma að góðum not- um í starfi Arnes,“ segir í tilkynn- ingu frá deildinni. „Að jafnaði mæta um 30 unglingar á fundi hjá Arnesi og eru krakkar úr 9. og 10. bekk vel- komnir að mæta á sunnudagskvöld- um klukkan 20.“ grþ Svipmynd frá mótinu í sumar. Ljósm. þá. Mikil ánægja þátttakenda með Norðurálsmótið 2013 Dagbjartur Dagbjartsson og Bjarni Þór Bjarnason árita fyrstu bækurnar. Höfundar árituðu Stolin krækiber Bros mætir þeim sem mæta í Hólminn – aki þeir eins og menn Frá afhendingu peningagjafarinnar. Ungliðadeildin Arnes fær góða gjöf Björgunarsveitarmenn könnuðu flotþol grindhvals Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri býður til veitinga. Ljósm. Akraneskaupstaður. Slökkvilið fékk sög frá þakk- látum niðursuðumönnum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.