Skessuhorn - 02.10.2013, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
Sími 820-3722 • hilmirb@simnet.is
Bílaleiga • Car rental
Reitarvegi 3 • 340 Stykkishólmi • Sími: 438 1586
Réttum, sprautum
hjólastillum
Rúðuskipti
Almennar viðgerðir
Reitarvegi 3, 340 Stykkishólmi
690 2074 / 438 1586
TRÉSMIÐJAN AKUR EHF.
Trésmiðjan Akur ehf. • Smiðjuvöllum 9
300 Akranesi
Sími 430 6600 • akur@akur.is • www.akur.is
ÖLL ALMENN TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Endurbætur og nýsmíði
Þök – Klæðningar – Gluggar – Útihurðir – Sólpallar
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
435-1252 • 893-0688 • velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Nokkur umræða hefur átt sér stað
undanfarnar vikur um niðurstöð-
ur úr Skólavoginni sem er matstæki
ætlað fyrir fræðsluskrifstofur og
sveitarfélög til notkunar við grein-
ingarvinnu í ytra mati á skólum.
Mér finnst umræðan um Grunn-
skólann í Borgarnesi hafa verið nei-
kvæð og ósanngjörn. Einungis það
sem betur má fara hefur verið dreg-
ið fram, ekki minnst á það góða og
jákvæða starf sem unnið er í skól-
anum.
Í þessari grein ætla ég að draga
fram nokkrar af þeim mikilvægu
jákvæðu niðurstöðum sem fram
komu í Skólavoginni, skýrslu Karls
Frímannssonar og úttekt mennta-
málaráðuneytisins frá því í maí
2011. Einnig mun ég stikla á úr-
bótaáætlun skólans þar sem kem-
ur fram hvernig unnið verður með
þá þætti sem betur mega fara í skól-
anum. Úrbótaáætlunina má finna í
sjálfsmatsáætlun skólans sem er á
heimasíðu hans. Því neikvæða hef-
ur verið gerð góð skil og sé ég ekki
ástæðu til að fara í þá umræðu.
Þegar foreldar eru spurðir um
að hve miklu leyti þeir séu sam-
mála eftirfarandi staðhæfingum
þá svara:
95% að þeir séu mjög eða frek-
ar sammála því að flestir kennar-
ar séu hæfir og metnaðarfullir
85% að þeir séu mjög eða frek-
ar sammála því að skólinn fylgist
grannt með námsárangri
85% að þeir séu mjög eða frekar
sammála því að skólinn standi sig
vel í að mennta nemendur
84% að þeir séu mjög eða frekar
sammála því að námslegum þörf-
um nemenda sé mætt
92% að þeir séu mjög eða frek-
ar sammála að skólastarfið stuðli
að læsi og færni nemenda í víð-
um skilningi
92% að þeir séu mjög eða frekar
sammála að skólastarfið stuðli að
heilbrigði og velferð nemenda
89% að þeir séu mjög eða frekar
sammála að barni þeirra líði al-
mennt vel í skólanum
96% að þeir séu mjög eða frek-
ar sammála að það séu góð sam-
skipti á milli umsjónarkennara og
barns þeirra.
Þegar starfsfólk er spurt um að
hve miklu leyti þeir séu sam-
mála eftirfarandi staðhæfingum
þá svara:
96% að það sé mjög eða frek-
ar sammála því að það sé ánægt
í starfi
93% að það sé mjög eða frek-
ar sammála því að það sé stolt af
starfinu sínu
91% að það sé mjög eða frekar
sammála því að samvinna sé góð
í skólanum
89% að það sé mjög eða frekar
sammála því að það beri traust til
yfirmanns síns
92% að það sé mjög eða frekar
sammála því að það sé ánægt með
samskipti við yfirmann sinn
96% að það sé mjög eða frek-
ar sammála því að það sé góður
starfsandi í skólanum
98% að það sé mjög eða frek-
ar sammála því að því líði vel í
vinnunni.
Um niðurstöður nemenda úr
Skólavoginni má segja, heilt yfir,
að þær eru hvorki jákvæðari né nei-
kvæðari en gengur og gerist á lands-
vísu. Þegar nemendur eru spurðir
um að hve miklu leyti þeir séu sam-
mála eftirfarandi staðhæfingum þá
svara:
92% að þeir séu mjög eða frek-
ar sammála því að þeir hafa góða
eiginleika
84% að þeir séu mjög eða frekar
sammála því að flestir kennarar
séu áhugasamir um að nemend-
um líði vel
79% að þeir séu mjög eða frek-
ar sammála því að flestir kennar-
ar hlusti vel á það sem þeir hafa
að segja
82% að þeir séu mjög eða frekar
sammála því að þeir fái auka að-
stoð frá kennurum sínum
86% að þeir séu mjög eða frekar
sammála því að öðrum líki við þá
90% nemenda sögðust sjaldan
eða aldrei verið skildir útundan.
Í skýrslu Karls Frímannsson-
ar, sem unnin var að beiðni Borg-
arbyggðar nú í haust, kemur fram
að „...í megindráttum stendur starf
Grunnskólans í Borgarnesi vel“ og
að stjórnendur skólans hafi nú þeg-
ar gert drög að umbótaáætlun í
ljósi þeirra gagna sem liggja fyrir í
Skólavoginni og sjálfsmati skólans.
Þessi drög sem Karl vitnar í eru
komin út í sjálfsmatsskýrslu sem er
á heimasíðu skólans. Í umbótaáætl-
uninni kemur fram að lögð verður
áhersla á að skerpa og bæta eftirfar-
andi þætti í skólastarfinu:
Eineltismál og úrvinnslu 1.
þeirra
Agamál og úrvinnslu þeirra2.
Stjórnun skólans3.
Upplýsingagjöf4.
Líðan nemenda og sjálfs-5.
mynd.
Jafnframt því hefur sveitarstjóri
lagt til að skipaður verði starfshóp-
ur sem á að meta viðhald skólans og
hvernig húsnæðismálum skólans til
lengri tíma verði háttað og kom-
ið verði upp virku samstarfi á milli
foreldrafélagsins, skólastjórnar og
fræðsluyfirvalda.
Skólaárið 2010-2011 var unnin
úttekt á vegum Menntamálaráðu-
neytisins og kom út skýrsla í maí
2011 með niðurstöðum þeirra út-
tektar. Í henni kemur m.a. fram að:
„Það er samhljóða álit skýrslu-
höfunda að í Grunnskólanum í
Borgarnesi sé unnið metnaðarfullt
og framsækið skólastarf sem bygg-
ir á gamalli hefð og hugmyndarík-
um stjórnendum, öflugu starfsfólki
og góðum nemendum.“
Skýrsluhöfundar komust að þess-
ari niðurstöður eftir að hafa rýnt í eft-
irfarandi gögn: Skólanámskrá, starfs-
áætlun, sjálfsmatsskýrslur, skipu-
rit skólans, upplýsingar um valgrein-
ar, upplýsingar um öryggisnefnd og
helstu verkefni hennar, lög foreldra-
félags og helstu verkefni þess, skóla-
ráð, skipan, kjör og helstu verkefni
þess, upplýsingar um nemendafjölda
og upplýsingar um starfsmannafjölda
eftir starfsheitum og starfshlutföllum.
Úttektaraðilar heimsóttu
Grunnskólann í Borgarnesi tvisv-
ar og dvöldu í skólanum í þrjá
kennsludaga. Tekin voru viðtöl
við hagsmunaaðila, gengið var um
húsnæði skólans og reynt að fanga
skólabrag, einnig var mötuneytis-
aðstaða skoðuð. Rýnihópaviðtöl
voru tekin við eftirfarandi aðila:
Stjórnendur skólans (skólastjóra,
aðstoðarskólastjóra og deildar-
stjóra), fulltrúa kennara (8 kenn-
arar sem spönnuðu vel skólastarf-
ið), fulltrúa nemenda (8 nemend-
ur, 4 úr 10. bekk, 2 úr 9. og 2 úr 8.
bekk), fulltrúa foreldra (5 fulltrú-
ar, 2 fulltrúar úr stjórn foreldrafé-
lags, fulltrúi kennara í stjórn for-
eldrafélags, 2 aðrir foreldrafull-
trúar), fulltrúa annars starfsfólks
(7 fulltrúar, húsvörður, stuðnings-
fulltrúar, bókavörður, ritari, skóla-
liðar, starfsmaður lengdrar við-
veru) og rýnihóp frá sveitarfélagi
og sérfræðiþjónustu sem sátu í
sátu fræðslustjóri, sálfræðingur og
sveitarstjóri auk tveggja fulltrúa úr
fræðslunefnd.
Af þessu má sjá að úttektin var
vönduð og fagmannlega að henni
staðið á allan hátt, hægt er að nálg-
ast úttektina á heimasíðu Mennta-
málaráðuneytisins.
Meðal stjórnenda og starfsfólks
Grunnskólans í Borgarnesi hefur
verið mikill vilji til að standa fag-
lega að öllu skólastarfi og vinna
öll verk af alúð. Því til staðfesting-
ar má benda á nýbreytni og þróun-
arstörf sem skólinn hefur lagt út í,
með hag nemenda að leiðarljósi og
að skólinn hefur haft forystu um
að fá ytra mat. Niðurstöður þeirra
úttekta sem hér hefur verið vitn-
að í, eru á þann veg að þær stoðir
sem hið almenna skólastarf hvílir á
séu sterkar og stöðugar. Nú er það
brýnt að allir sem skipa skólasam-
félag skólans hafi hag nemenda að
leiðasljósi og vinni saman að því að
gera góðan skóla enn betri.
Hilmar Már Arason,
settur skólastjóri.
Pennagrein
„…í megindráttum stendur starf Grunnskólans í Borgarnesi vel“
Grunnskólinn í Borgarnesi. Ljósm. Friðþjófur Helgason.