Skessuhorn - 02.10.2013, Síða 17
17MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Klassískt íslenskt jólahlaðborð
Verð kr. 7.600
Jólahlaðborð og gisting
kr. 14. 600
á mann í tveggja manna herbergi m/morgunverði
kr. 16. 600
á mann í eins manns herbergi m/morgunverði
Tilboð fyrir hópa í síma 437 1119
Pantanir í síma 437 1119 eða á
info@hotelborgarnes.is
Hótel Borgarnes
Egilsgata 16
310 Borgarnes
Sími 437 1119 · Fax 437 1443
www.hotelborgarnes.is
info@hotelborgarnes.is
Jólahlaðborð á
Hótel Borgarnes
Verð 7.600 kr.
22. 23. 29. og 30. nóvember
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Frá hestum til hestafla –
jarðræktarsögur úr Borgarfirði
Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri flytur
Þriðjudaginn 8. október 2013
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Smáralind og Kringlunni
Verið velkomin
Við tökum vel á móti ykkur
Sími 544-4220 - 568-4344
NÝJAR VÖRUR VIKULEGA!
F R Á B Æ R T I L B O Ð Í G A N G I
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Í síðustu viku kallaði Safnahús
Borgarfjarðar í Borgarnesi eftir
munum og gögnum er varða rekst-
ur Sparisjóð Mýrasýslu, en í gær,
þriðjudaginn 1. október, voru 100
ár síðan starfsemi hans hófst. Aug-
lýsing þessa efnis var birt í héraðs-
blöðum í síðustu viku og var til-
gangur hennar að safna sem flestu
er snertir sögu sjóðsins vegna þess-
ara tímamóta. Í tilefni þessa boð-
aði Arion banki í Borgarnesi full-
trúa Safnahúss á sinn fund á stofn-
degi sjóðsins þar sem nokkur merk
gögn úr sögu hans voru afhent. Má
þar sérstaklega nefna fyrstu spari-
sjóðsbókina og fyrsta ársreikning-
inn. Meira mun svo fylgja síðar. Við
afhendinguna kom m.a. fram í máli
Guðrúnar Jónsdóttur forstöðu-
manns Safnahúss að gögnum um
sögu sparisjóðsins hafi verið haldið
til haga í Arion banka og slíka rækt-
arsemi þætti mönnum vænt um fyr-
ir hönd héraðsins þar sem starfsemi
sparisjóðsins átti stóran þátt í sögu
þess um langt skeið, eins og kunn-
ugt er.
Fyrsta sparisjóðsbókin var í eigu
Sigurðar Guðjónssonar Bach-
mann. Á umslagi með henni stend-
ur eftirfarandi með rithönd Frið-
jóns Sveinbjörnssonar: „Bókin
var stofnuð á fyrsta afgreiðsludegi
sparisjóðsins 1. okt. 1913, með 5
krónu inleggi sem Sigurður Bach-
mann fékk að gjöf frá föðursystur
sinni Málfríði – c.a. 2 lambsverð.
Sigurður Bachmann afhendi spari-
sjóðsstjóra, Friðjóni Sveinbjörns-
syni, bókina sem gjöf til sparisjóðs-
ins 30. júlí 1985.“
Það var Steinunn Ásta Guð-
mundsdóttir sem afhenti gögn-
in fyrir hönd Arion banka, en svo
skemmtilega vildi til að hún átti 36
ára starfsafmæli sama dag.
mm/gj
Sigurður Ingi Jóhannsson um-
hverfis- og auðlindaráðherra hef-
ur ákveðið veiðidagar á rjúpu í ár
verði tólf talsins og skiptast á fjór-
ar samliggjandi helgar. Fyrsti veiði-
dagur verður föstudaginn 25. októ-
ber en sá síðasti sunnudaginn 17.
nóvember. Leyfilegur heildarfjöldi
veiddra rjúpna er 42.000 og mið-
að við að hver veiðimaður láti sér
nægja að skjóta sex til sjö fugla, eða
nægjanlegt til eigin nota á heim-
ili. Jafnframt eru veiðimenn hvattir
til að særa ekki fugla umfram veiði.
Umhverfisstofnun hefur verið falið
að fylgja eftir áframhaldandi sölu-
banni á rjúpum. Lagt er til að þetta
fyrirkomulag haldist næstu þrjú ár
hið minnsta, að óbreyttum forsend-
um. Frekari upplýsingar er hægt að
sjá á vef Umhverfisstofnunar.
Sölubann við rjúpum virðist hafa
skilað árangri og með því hefur
heildarveiði minnkað mikið undan-
farin ár. Jafnframt virðist hvatning
um hófsemi einnig hafa skilað ár-
angri og um það vitna veiðitölur úr
veiðikortakerfinu, segir í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu. sko
Rjúpnaveiði verður leyfileg í tólf daga
Fyrsta sparisjóðsbókin afhent Safnahúsinu
Umslagið sem getið er
um í fréttinni.
Ljósm. Guðrún
Jónsdóttir.
Steinunn Ásta Guðmundsdóttir og
Guðrún Jónsdóttir. Á myndinni sést
viðurkenning sem sparisjóðurinn fékk
sem fyrirtæki ársins 2004. Ljósm.
Jóhanna Skúladóttir.