Skessuhorn - 02.10.2013, Page 31
31MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Um helgina fór fram Minningar-
mótið um Atla Helgason í Íþrótta-
húsin við Vesturgötu á Akranesi.
Badmintonfélag Akraness held-
ur mótið og er um að ræða frem-
ur öflugt mót í badmintonheim-
inum. Alls tóku 54 spilarar frá sex
félögum þátt en keppt var í meist-
araflokki, A-flokki og B-flokki
og leiknir 99 leikir. Atli Helga-
son lést af slysförum 1980, en
hann var formaður Badminton-
félags Akraness um skeið og mik-
ill áhugamaður um íþróttina. Eft-
ir að hann lést ákváðu foreldrar
hans að halda mótið til að halda
minningu hans á lofti og gáfu þau
verðlaun á mótið fyrstu árin sem
það var haldið.
Mótið um helgina gekk vel og
voru Skagamenn í mörgum af úr-
slitaleikjunum en höfnuðu oft-
ast í öðru sæti. Borgnesingurinn
Harpa Hilmisdóttir varð í öðru
sæti í Meistaraflokki kvenna og í
fyrsta sæti í tvíliðaleik í A-flokki
kvenna ásamt Línu Dóru Hannes-
dóttur TBR. Harpa var eini kepp-
andinn fyrir sitt félag. Alexandra
Ýr Stefánsdóttir varð í fyrsta sæti
í einliðaleik kvenna í A-flokki og
Steinar Bragi Gunnarsson í fyrsta
sæti í tvíliðaleik karla í B-flokki
ásamt Axel Erni Sæmundssyni frá
Þór, en Steinar Bragi varð jafn-
framt í öðru sæti í einliðaleik í
sama flokk. Nánar má sjá um úr-
slitin á: ia.is, undir badminton.
kf
Íþróttanefnd Félags eldri borgara í
Borgarnesi og nágrenni heldur ár-
legt einmenningsmót í boccía laug-
ardaginn 26. október nk. og hefst
mótið klukkan 11.00 í íþróttamið-
stöðinni í Borgarnesi. Keppt verð-
ur í 5 manna riðlum og ræðst riðla-
fjöldi af þátttöku. Þátttökugjald
er 1000 krónur og skal greiða það
í upphafi móts. Þátttöku skal til-
kynna Flemming Jessen, flemm-
ingj@simnet.is eða í síma 868-1008
í síðasta lagi 18. október kl 20.00.
Veitingar verða seldar á staðnum;
súpa, brauð, kaffi/te, djús. „Þau
ykkar sem eru með dómararétt-
indi gefið ykkur fram. Mótin ganga
vel þegar við snúum bökum saman,
vinnum saman,“ segja Ingimundur
og Flemming í fréttatilkynningu.
mm
Þorvaldur Örlygsson hefur lok-
ið störfum fyrir ÍA við þjálfun
meistaraflokks karla í knattspyrnu.
Ákveðið var á fundi hans með
stjórn knattspyrnufélags ÍA í síð-
ustu viku að rétt væri að nýr þjálf-
ari tæki við liðinu eftir tímabilið,
en ráðning hans náði aðeins til loka
keppnistímabils. Þorvaldur kom til
starfa hjá ÍA í lok júní og var því við
stjórnvölinn í þrjá mánuði. Har-
aldur Ingólfsson framkvæmdastjóri
ÍA segir að nú hefjist leit að nýjum
þjálfara og ætli menn að gefa sér
tíma í það, ekki væri hægt að nefna
nein nöfn í sambandi við óskalista.
Búast mætti við að allavega myndi
það taka meira en vikuna að ráða
nýjan þjálfara. Haraldur sagði einn-
ig í samtali við Skessuhorn að nú
væri framundan uppbyggingarstarf
sem miðaði að því að móta meist-
araflokk ÍA til næstu ára.
þá
Snæfellingar töp-
uðu stórt þegar þeir
mættu Keflvíking-
um í undanúrslitum
deildarbikarkeppninn-
ar í körfubolta í Njarðvík sl. föstu-
dagskvöld. Lokatölur í leiknum
urðu 96:70. Hafþór Ingi Gunn-
arsson var stigahæstur í liði Snæ-
fells með 12 stig og næstur kom
Jamarco Warren með 11 stig.
Grindavík vann KR 76:70 í hin-
um undanúrslitaleiknum. Keflvík-
ingar unnu síðan öruggan sigur á
Grindvíkingum í úrslitaleiknum
sem fram fór í Njarðvík á sunnu-
dag, 89:58.
þá
Uppskeruhátíð Snæfellssamstarfs-
ins í fótbolta var haldið í íþrótta-
húsi Snæfellsbæjar í Ólafsvík á
laugardaginn. Þar voru veittar oru
viðurkenningar fyrir mestu fram-
farir og bestu og markahæstu leik-
menn á liðnu sumri. Í sumar varð
3. flokkur drengja Íslandsmeistari
og sýnir það að góður árángur hef-
ur náðst með samstarfi sveitarfélag-
anna á Snæfellsnesi. Það voru leik-
menn meistaraflokks Víkings sem
sáu um að afhenda börnunum við-
urkenningar og verðlaun. Öllum
iðkendum var boðið í pylsupartí og
síðan var farið að horfa á lokaleik í
Pepsídeildinni.
af
Bæði Vesturlandsliðin í Pepsídeild-
inni, Víkingur og ÍA, náðu ekki að
kveðja deildina með sigri í lokaum-
ferðinni sem fram fór sl. laugardag.
Leikur beggja liða bar þess vott að
þau voru fallin og því ekki eftir miklu
að slægjast. ÍA tapaði 1:3 fyrir Fylki
á Akranesvelli og Víkingar töpuðu
stórt 0:5 á Ólafsvíkurvelli gegn Val.
Víkingar enduðu því með 17 stig,
fimm stigum neðan við Fram sem
varð í 10. sætinu og ÍA varð neðst
með 11 stig.
Orð Þorvaldar Örlygssonar þjálf-
ara ÍA liðsins, sem reyndar er hætt-
ur með liðið, lýstu leiknum ágætlega,
þar sem hann talaði um áhugaleysi
og að menn vildu bara klára leikinn
og koma sér svo heim. „Við fengum
á okkur klaufaleg mörk,“ sagði Þor-
valdur og það voru orð að sönnu.
Slakur varnarleikur hjá ÍA orsakaði
það að Fylkismenn skoruðu strax á
3. og síðan 31. mínútu. Fylkismenn
gerðu síðan út um leikinn með marki
í seinni hálfleiknum áður en Skaga-
mönnum tókst að klóra í bakkann
með marki Jóhannesar Karls Guð-
jónssonar, sem hann skoraði með
skalla eftir hornspyrnu. Ljósið í
myrkri vikunnar var þó að sl. mið-
vikudag lögðu Skagamenn KR-inga
í næstsíðasta leik mótsins 3:1 í leik
sem spilaður var í Akraneshöllinni.
Víkingar misstu mann út af með
rautt spjald um miðjan fyrri hálfleik-
inn og eftir það var ljóst að róðurinn
yrði erfiður. Markalaust var í hálf-
leik en Valsmenn voru iðnir við kol-
ann og skoruðu fimm mörk í seinni
hálfleiknum, þar af tvö síðustu í við-
bótartíma. Þar með lauk tímabilinu
hjá Vesturlandsliðunum í Pepsídeild-
inni og keppni í 1. deild bíður þeirra
næsta sumar. þá
Snæfell tapaði
í undanúrslitunum
Leit byrjuð að nýjum
þjálfara hjá ÍA
Atlamótið í badminton
spilað á Akranesi
Verðlaunahafar ÍA: Daníel Þór
Heimisson, Helgi Grétar Gunnarsson,
Dalrós Sara Jóhannsdóttir, Alexandra
Ýr Stefánsdóttir, Írena Rut Jónsdóttir,
Steinar Bragi Gunnarsson og Ragnar
Harðarson.
Borgnesingurinn
sigursæli, Harpa
Hilmisdóttir.
Snæfellsnessamstarfið í fótbolta
hélt uppskeruhátíð
Ejub þjálfari með börnum sínum en
þau fengu viðurkenningar.
Hópurinn er býsna stór.
Einmenningsmót í boccia framundan
Svipmynd úr leik Víkings og Vals sem
spilaður var í Ólafsvík í afleitu veðri.
Ljósm. af.
Vesturlandsliðin töpuðu bæði í
lokaumferðinni
Markvörður Fylkis bindur enda á sókn Skagamanna gegn Fylki. Ljósm. þá.