Fjarðarpósturinn - 06.02.2014, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 6. febrúar 2014
Sunnudagurinn 9. febrúar
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11
Unglingakórinn syngur. Stjórnandi Helga
Loftsdóttir. Píanóleikari Anna Magnúsdóttir.
Organisti Guðmundur Sigurðsson. Prestur sr.
Þórhildur Ólafs
Miðvikudagurinn 12. febrúar
Morgunmessa kl. 8.15-8.45
Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Prestur sr. Þórhildur Ólafs
Morgunverður
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
RAGNAR SCHEVING
ÚTFARARÞJÓNUSTA
ÓLÖF HELGADÓTTIR
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON
ÚTFARARSTJÓRI
FRÍMANN ANDRÉSSON
ÚTFARARSTJÓRI
FJÖLSMÍÐ
LÍKKISTUVINNUSTOFA
Síðan 1993
Stapahraun 5
220 Hafnarfjörður
www.uth.is
uth@simnet.is
565-9775
Hafnfirska
fréttablaðið
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fór
nokkuð eftir bókinni. Rósa Guð
bjartsdóttir sigraði og Kristinn And
er sen kom skammt á eftir og varð í
öðru sæti. Misjafnt var hvernig
menn lögðu upp í sína baráttu. Á
meðan sumir nýttu sér ýmsa miðla,
Facebook, greinaskrif, auglýsingar og maður á mann
aðferðina létu aðrir fara minna fyrir sér og töldu jafnvel að
menn væru dæmdir af verkunum. Hvernig eiga bæjarbúar
og jafnvel flokksmenn að vita hvað gerist í hinum ýmsu
nefndum og ráðum og í bæjarstjórn. Fæstir leggja það á sig
að hlusta á bæjarstjórnarfundi og frumkvæði fólks er
sjaldnast hægt að lesa út úr fundargerðum. Hvort sem
mönnum líkar betur eða verr, skiptir almennt kynningarstarf
miklu máli. Þó allir stjórnmálaflokkar hafi jafnrétti
framarlega á sinni stefnuskrá vekur það alltaf svolítinn
kjánahroll hjá manni þegar fólk er sérstaklega hvatt til að
kjósa konur. Vísast hafa slíkar hvatningar lítil áhrif haft á
undanförnum árum en eitthvað virkaði nú því 4 konur
enduðu í 6 efstu sætunum og karlarnir röðuðu sér í neðstu
4 sætin. Óvæntustu úrslitin voru líklega höfnun sjálfstæðis
manna á bæjarfulltrúanum Geir Jónssyni sem sóttist eftir
einu af þremur efstu sætunum en endaði í 7. sæti. Leita má
ýmissa skýringa á þeim niðurstöðum og má telja hann í
síðari hópnum sem var nefndur hér að ofan. Frekar valdi
fólk minna reynda einstaklinga og hafnaði kannski að
bæjarfulltrúi færi á skjön við flokksmenn sína í samþykktum
um byggingu hjúkrunarheimilis á Völlum og tæki ekki
undir allar bókanir flokksmanna sinna við afgreiðslu
síðustu fjárhagsáætlunar.
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera í
stjórnmálum og það sannast best í prófkjörum. Spennandi
verður að fylgjast svo með flokksvali Samfylkingarinnar.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 9. febrúar
Guðsþjónusta kl. 11.00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
Sunnudagaskóli kl. 11.00
Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri,
fer fram uppi í suðursal kirkjunnar.
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12.00
súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Sunnudagur 9. febrúar
Messa kl. 11
Sunnudagaskóli á sama tíma
þriðjudagur 11. febrúar
Barna- og æskulýðsstarf
miðvikudagur 12. febrúar
Starf eldri borgara
Nanna Guðný Sigurðardóttir sjúkraþjálfari
fjallar um mikilvægi hreyfingar.
www.astjarnarkirkja.is
Ástjarnarkirkja
Kirkjuvöllum 1
Sunnudagurinn 9. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
„Trú , von og kærleikur“
Kór og hljómsveit kirkjunnar
leiðir sönginn.
www.frikirkja.is
Á mánudaginn var tekin skóflustunga að íbúðakjarna
fyrir fatlað fólk að Klukkuvöllum 2327. Þar koma til
með að búa 6 einstaklingar í hverri íbúð en íbúðirnar
verða sjö, þar af ein fyrir aðstöðu starfsfólks. Húsið
verður á einni hæð og áætlað er að íbúar flytji inn
snemma á næsta ári.
Það er Ás styrktarfélag sem sér um byggingu og rekstur
íbúðanna samkvæmt samningi við Hafnafjarðarbæ frá í
maí á síðasta ári.
Félagið fær einnig lóðina Arnarhraun 50 undir 2ja
hæða íbúða kjarna fyrir fólk með þroska skerðingu og
hefur jafnframt sótt um eina lóð til viðbótar.
Skóflustunga tekin að íbúðakjarna
fatlaðra á Klukkuvöllum
Styrktarfélagið Ás byggir á þremur stöðum í Hafnarfirði
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Athöfnin á lóðinni Klukkuvöllum 23-27 var mjög stutt,
tók aðeins um 3 mínútur og svo var rokið í kaffi.