Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 06.02.2014, Síða 12

Fjarðarpósturinn - 06.02.2014, Síða 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 6. febrúar 2014 Óábyrg meðferð á fjármunum bæjarbúa Nú stöndum við Framsóknar­ menn í Hafnarfirði í stífum undir búning fyrir vorið. Undir­ búningurinn miðar allur að því að vera tilbúin í að taka þátt í stjórn bæjarins eftir kosningarnar, að vera tilbúin með nýjar hug­ mynd ir að því hvernig við gerum bæinn okkar betri og lagfærum afleiðingar óskilvirkrar fjár­ málastjórnunar síðustu ára í bæjar stjórn. Bæjarfélagið, líkt og öll önnur bæjarfélög og allt annað á Íslandi, varð fyrir áfalli í hruninu, en hérna er ástandið verra. Hafnarfjarðar­ bær, bærinn okkar, er þriðja skuldsettasta sveitarfélagið á landinu. Ástæðan fyrir því er ekki að bæjarfélagið hafi lent í meira hruni en önnur bæjar­ félög, heldur ríkti gengdarlaus óráðsía í meðferð með fjármuni bæjarbúa á árunum fyrir hrun. Ástæðan fyrir því að við minn­ umst á kosningaundir búninginn er að síðustu vikur höfum við undirritaðir hellt okkur í fjármál bæjarins. Margir dagar og mikið erfiði hafa farið í þá vinnu og hafa undirritaðir ítrekað orðið von sviknir eftir þá skoðun. En fjárhagsstaða bæjarins dregur ekki skapið niður hjá öllum, því sumir virðast engar áhyggjur hafa af henni. Þar getum við nefnt sem dæmi kostnað við árs­ hátíð bæjarins 2013 ­ litlar 14 millj ónir króna. Við erum ekki á móti því að bærinn haldi árshátíð fyrir starfsmenn sína heldur er um við á móti því að slíkar árs­ hátíðir séu settar í 2007 búning. Vegna stöðu bæjarins var hálf skrítið að lesa í fréttum nýverið að Hafnarfjarðarbær hefði sent 14 starfsmenn á sömu sýninguna í London til að kynna sér þróun í tæknivæðingu leik­ og grunn­ skóla. Nú setja undirritaðir sig ekki á móti tæknivæðingu og gott og eðlilegt er að fylgjast með þróuninni – en 14 manns, er það ekki full mikið í lagt? Hver haus kostar bæjarfélagið um 250 þúsund krónur sem gerir heildar­ pakkann á litlar 3,5 milljónir króna. Það er tvennt sem okkur finnst athugavert við þessa ákvörðun. Í fyrsta lagi þá skuldar bærinn yfir 220% af árlegum tekjum sínum og á ekki efni á neinu bruðli og því er þessi ákvörðun illskiljanleg út frá því sjónarmiði. Í öðru lagi að senda 14 manns á sömu ráð stefnu/sýningu. Ef að bær­ inn vill fylgjast með því sem fram kemur á viðburði sem þessum þá væri nær að senda 1­2 starfsmenn, fá þá til þess að taka helstu ráðstefnugögn og halda góða kynningu fyrir aðra starfsmenn þegar heim er komið. Hvaða faglegu rök voru fyrir því að senda 14 starfs menn út? Gagnrýni okkar snýst ekki um fólkið sem vinnur hjá bænum, sem gerir sitt besta í sínu starfi við erfiðar aðstæður. Við erum hreinlega að kalla eftir því að bæjarstjórn tryggi að betur sé farið með þá litlu fjármuni sem bærinn þó hefur á milli handanna. Ágúst Bjarni Garðarsson, stjórnmálafræðingur Sigurjón Norberg Kjærnested, varaþingmaður Ágúst Bjarni Garðarsson Sigurjón Norberg Kjærnested Svo virðist sem fjöldi bæjarbúa ætlist til að aðrir þrífi upp eftir þá það sem þeir skilja eftir á víðavangi. Áberandi er í dag í öllum hverfum bæjarins leifar af skoteldum sem kveikt var í um áramót og á þrettándanum. Hafa íbúar lýst eftir eigendunum! Áramótadrasl bæjarbúa Bæjarbúar hvattir til að taka til eftir sig Öruggt leiguhúsnæði fyrir alla Eitt helsta verkefni okkar hér í Hafnarfirði á komandi kjör­ tímabili er að bregðast við þeim gífurlega húsnæðisvanda sem steðjar að bæjarbúum og raunar víðar á höfuðborgar­ svæðinu. Á fjölmörgum stöðum í grónum hverf um í Hafnarfirði eru reitir þar sem fyrir­ hugað er að reisa fjöl­ býli. Mikilvægt er að þarna verði að öllu leyti horft til þess að byggja litlar og ódýrar íbúðir fyrir almennan leigu­ markað, en eftir spurn eftir slíkum íbúðum er mjög mikil. Huga verður að öruggu húsaskjóli með lang tíma leigu að leiðarljósi. Með því að byggja minni íbúð ir, sem þó geta hæglega verið tveggja til þriggja her­ bergja, þá er verið að mæta þörfum hjá mjög stórum hópi fólks. Sérstaklega mætir þetta þörf um ungs fólks sem er að hefja búskap. En þetta mætir einn ig þörfum einhleyps fólks sem jafnvel er með börn og einnig eldra fólki sem hefur hug á að minnka við sig. Svona mætti lengi áfram telja þá hópa fólks sem myndi nýta sér slík húsnæði. Minni og hagkvæmari einingar gera fleira fólki kleift að komast í öruggt húsnæði. Í dag er framboðið nánast ekkert, og það litla sem er til er á al gjör lega óviðráðan­ legu verði, enda oftar en ekki alltof stórar íbúð ir sem byggðar voru fyrir hrun. Með því að byggja fjölbýlishús í grónum hverfum, erum við að þétta byggð og nýta þá grunnþjónustu sem nú þegar er til staðar, sbr. leikskóla, skóla, samgöngur og fleira. Auk þess sem slíkar bygg­ ingaframkvæmdir eru auðvitað örvun í atvinnulífið á meðan á framkvæmdum stendur, og auka í framhaldinu tekjur bæjarins í formi fasteignaskatta og veitu­ gjalda. Húsnæðisvandinn er stórt vanda mál og nú þarf að takast á við hann af fullum krafti og hugsa í lausnum. Við þurfum að skapa hér aðstæður svo hægt sé að bjóða uppá öruggt leiguhúsnæði og það þolir enga bið. Höfundur er viðskiptastjóri. Ófeigur Friðriksson Gróska á Völlunum Nýr tælenskur veitingastaður Ban Kúnn er heiti á nýjum tæ lensk um veitingastað að Tjarn­ ar völlum 15, við hliðina á Korn­ inu og Bónus. Ban Kúnn merkir á tælensku „heima hjá þér“ og þannig vilja þeir Svavar G. Jóns­ son og Natthawat Vora mool að gestum líði ­ eins og heima hjá sér. Staðurinn var opnaður sl. föstu­ dag og segir Svavar að þeir ætli að fara rólega af stað á með an verið sé að fínpússa hlut ina. Staðurinn er hlýlegur og rúm góð­ ur og hafa þeir félag ar lagt áherslu á að skapa gott and rúms loft. Matseðillinn var ekki kominn úr prentun þegar blaðamaður kíkti við strax eftir opnunina en í hádeginu voru í boði þrír réttir sem voru hverjum öðrum ljúf­ fengari. Systir Natthawat sem rek ur veitingastað í Tælandi á heiðurinn af súrsætu sósunni og hnetusósunni og enginn verður svikinn af sósunum. Bæjarbúar hafa margir hverjir smakkað á mat frá þeim félög um því þeir hafa á báðum Aust ur­ götuhátíðunum boðið upp á tælenskan mat fyrir utan hús sitt en þar hafa þeir verið duglegir við að rækta margar tegundir af grænmeti. Staðurinn er opinn alla daga kl. 11­22. Staðurinn er rúmgóður og litríkur. Natthawat Voramool og Svavar G. Jónsson eigendur Ban Kúnn Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Körfubolti Haukar í úrslit Kennalið Hauka mætir Snæ felli í úrslitum bikarkeppni kvenna í körfuknattleik eftir 76­66 sigur á Keflavík. Leikið verður 22. febrúar nk. Haukastúlkur hafa verið mjög öflugar í vetur og eru nú í 2. sæti í úrvalsdeildinni með 26 stig þegar 8 leikir eru eftir. U N bókhald ehf Almenn bókhaldsþjónusta Stofnun félaga Skattframtöl fyrir einstaklinga og fyrirtæki Allt á einum stað UN Bókhald ehf • Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði 568 5730 • unbokhald.is • unbokhald@unbokhald.is

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.